Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1949, Page 40

Eimreiðin - 01.07.1949, Page 40
192 KONAN Á STAKKSTÆÐINU EIMREIÐIN — Getur verið, sagði ég rólega. -— Ég veit það er kærastan þín, sem þú hefur hjá þér núna. Hann horfði ógnandi á mig. — Vertu ekki að gera þér upp reiði, sagði ég. — Ég sá mynd ykkar á stóru rúðunni í stofunni þinni. Ég sá allt, sem gerðist. Ólafur var orðinn náfölur í andliti. Þú ert vitlaus, livæsti liann- Á heimleiðinni var ég létt og frjáls og hafin yfir allar tilfinn- ingar. Um kvöldið lék ég nokkur lög á píanóiö fyrir pabba. Ég naut þess að lieyra tónana. Mér fundust þeir mildir og hrífandi. Þegar ég liafði lokið við eitt lagið, strauk pabbi um liöfuð mitt, eins og þegar ég var barn. — Hefur þú séð eitthvað fallegt í dag, litla dóttir mín? sagði hann. Ég mætti mildu augnaráði hans. — Já, pabhi minn, ég er alltaf „að sjá“. — Pála mín, mér líður eitthvað svo vel í dag, þín vegna. Ég kyssti liann léttan koss á vangann. Þetta liafði oftar koinið fyrir, að pabbi mætti mér á miðri leið. Ég spilaði uppáhaldslagið okkar pabba, og við vorum glöð og hamingjusöm. En um kvöld- ið, þegar ég var liáttuð, gat ég ekki sofnað fyrr en ég var búin að gráta. Tárin streymdu niður kinnar mínar, eins og þau vildu þvo alla snertingu annarra af andliti mínu. Pála þagnaði, en ég, sem var lítt mótuð af lífinu, sat með tárin í augunum. — Þetta er ekki til að liryggjast út af, sagði Pála blíðlega. —' Ég hef alltaf síðan þetta kom fyrir, verið liamingjusöm. Það er annað en liægt er að segja um aumingja Ólaf. En það er ekki mín sök, ég bað honum engra óbæna, fremur en öðrum mönnum- En þetta atvik skýrði það fyrir mér, svo að ekki varð um villzt, að í minni eigin sál átti ég það veganesti, sem var minn drýgsti hamingjuauki. Ég þurfti aðeins að vera sjálfri mér samkvæm og sönn gagnvart mér og öðrum. Orð Pálu ómuðu í eyrum mínum. Aldrei myndi ég gleyma þessari yndislegu konu, þó leiðir okkar lægju sitt í hvora áttina- Þegar ég gekk í hægðum mínum heim til mín, var ég lirygg og glöð í senn. Sennilega myndi ég aldrei sjá Pálu framar. 1 marga morgna liafði ég lofað góðviðrið og dýrð þess, en nú fannst mér sólin ekki nægilega hlý, þegar ég kom út morguninn

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.