Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Side 65

Eimreiðin - 01.10.1954, Side 65
eimreiðin ÓLYGINN SAGÐI MÉR 297 að ekki slær séra Ófeigur hendinni á móti dropanum, þegar hann býðst. Það vita þorpsbúar. Frú Berta er fædd og uppalin í þorpinu. Faðir hennar, einn hinna örsnauðu sjómanna í þorpinu, drukknaði, þegar hún var smátelpa, og lét eftir sig ekkju og sjö börn. Það var oft þröngt í búi hjá ekkjunni í Innri-Vík. Hreppsnefndin var ekki rausnarlegri við hana en aðra sveitarómaga, enda ekki af miklu að taka. Börnin veltust i forinni, vetur sumar, vor og haust, í stagbættum og gauðrifnum ræflum — grá og guggin af skorti. En árin liðu, og einhvern veginn komust þau á legg og hurfu að heiman eitt af öðru — strákarnir til sjós, en stelpurnar sitt í hverja áttina. Sumar voru þegar giftar. Þegar séra Ófeigur tók við brauðinu fyrir nokkrum árum síðan, þá ókvæntur, varð hann brátt aðalumræðuefni allra saumaklúbba og eldhúsþinga þorpsins. Meira að segja karl- arnir, sem sögðu yfirleitt færra en kerlingarnar þeirra — eins og lög gera ráð fyrir — gátu nú ekki stillt sig um að leggja orð í belg. Það var nefnilega brátt altalað, að Berta í Innri-Vík væri búin að ná tangarhaldi á prestinum og væri ekki aldeilis á því að láta laust! Séra Ófeigur var mikill gleðimaður og sótti danzleiki í „gúttó“, auðvitað til mikillar hneykslunar í eld- húsunum í þorpinu. Strax á fyrsta ballinu hafði hann danz- að meira við Bertu en aðrar stúlkur, átta danza, að því er hún Jónina á Grund fullyrti, en ekki nema fjóra við neina aðra. Hann hefði bara átt að vita um lifnaðinn á henni Bertu í síldinni í fyrrasumar! Jónína stundi mæðulega, eins og ábyrgðin á þessari léttúð hvildi á hennar eigin herðum. Eftir þetta sat Berta um séra Ófeig, eins og köttur um músarholu, eða svo höfðu menn fyrir satt — og kerlingarnar sátu um Bertu! Þorpið var í umsátursástandi! Styrjaldar- fréttir, síldarfréttir, slys á sjó og landi — allt færðist í skugg- ann af þessu eina. Þau fóru í göngutúra og útreiðartúra, á danzleiki, og hún fór með honum heim, og kerlingarnar voru alveg að springa! Loksins komu hringar og gifting, og æsingurinn smárén-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.