Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1905, Page 5

Ægir - 01.07.1905, Page 5
ÆGIR MÁNAÐARRIT UM FISKIVEIÐAR OG FARMENSKU. I. árg. Reykjavík, Júlí 1905. Blað. V ETURINN 1899 sendum við ritstjóri Skapti Jósepsson á Seyðisfirði boðsbréf út um landið að fiskiveiðariti, sem við höfðum í hyggju að gefa út, en af því undirtektirnar urðu daufar var hætt við fyrirtækið. í fyrravetur vakti jeg máls á því í skipstjórafélaginu »Aldan« hve mikil nauðsyn bæri til að sjómenn og fiskimenn hefðu slíkt rit og var því vel tekið; komst málið svo langt að kosin var þriggja manna nefnd, til að undirbúa þetta, fá upplýsingar um hvað útgáfan mundi kosta m. m. og semja við hr. adjunkt B. Sæmundsson um að hann tæki við ritstjórninni, eða vildi að meira eða minna leyti styðja að útgáfunni. Hr. B. S. kvaðst hafa svo mikið annríki og ýmsar aðrar orsakir yllu því, að hann ekki gæti tekið slíkt að sjer, en lofaði að styrkja það að öðru leyti eftir föngum og eftir þvi sem hann hefði tíma til. Ur útgáfu ritsins varð svo ekki í það skifti, og var þá á- kveðið að fresta þvi til haustsins 1904. Sama haust fór jeg til Noregs og þegar jeg kom heim aftur, var málið við sama og hafði ekkert verið gjört í því frekara. Af áhuga fyrir málefninu og fyrir á- skoranir einstakra manna kringum landið vil jeg nú byrja á fyrirtæki þessu, þar sem jeg sje að þörfin fer sívaxandi, en engar líkur til að aðrir munu verða til þess, jafnframt þó mjer sje ljóst hve vandasamt og ábyrgðarmikið það starf er, sem jeg tekst á hendur. Avarp til landstnanna. Jafnvel þótt rit þetta eigi aðallega að ræða þau málefni er varða sjómanna og fiskimannastjett landsins, þá viljum vjer samt með linum þessum ávarpa alla landsmenn undantekningarlaust, þar sem það er vor skoðun, að velferð landsins er undir því komin að sjáfarútvegur og siglingar jaftnt sem búnaðarræktun taki sem mestum framförum. Það mun eng'- um dyljast að með auknum íiskiveiðum eykst verzlun og samgöngur, og þetta er eitt af aðalskilyrðunum fyrir velgengni allra landsmanna jafnt bænda sem sjó- manna. Landbúnaðurinn er aðalatvinnuvegur landsins, en til þess að hann geti þróast sem mest þurfa fiskiveiðar landsmanna að eflast. Því með vaxandi sjómanna- stjett eykst markaður fyrir afurðir land- bóndans, jafnframt sem auður færist inn í landið og við það vex gjaldþol þjóðar- innar, svo hún verður færari um að bera þær byrðar, sem vaxandi menning leggur henni á herðar. Margir hafa endurtekið þau orð hæði fyrr og síðar, sem enskur ferðamaður hefir sagt: »að væru fiskiveiðarnar al- mennilega stundaðar þá gætu þær orðið ótæmandi auðsuppspretta fyrir landið«.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.