Ægir - 01.03.1928, Page 30
76
ÆGIR
Reykingarefnið er flutt i blikkdósnm,
er innihalda 50 kg. netto.
A öðrum stað hér i blaðinu er farið
nokkrum orðum um þetta reykingarefni,
sem virðist hafa mikla framtíð fyrir sór
og er mjög umtalað í ýmsra þjóða
blöðum.
„The Smoked Salt Company“ hefur fal-
ið ritstjóra Nordislc Havfiskeri-Tidsskrift
aðalumboð fyrir Danmörku, og gefur
hann allar ítarlegri upplýsingar viðvíkj-
andi verði og öðru, er menn óska.
Frakkneskur mótortogari.
Smíðaður hjá Burmeister og Wain.
Togarinn „Victoria" eign „Société Nou-
velle des Pécheries a Vapeur" í Nantes á
Frakklandi, fór reynsluferð sína 12. jan-
úar s. 1. Togari þessi er 545. skipið, sem
stöðin smíðar. Hann er smíðaður eftir
reglum „Bureu Varitas", er 1. fl. 1. 1. A.
& C. P. Aðalmál eru þessi í fetum:
Lengd 208' — 8".
Breidd 32' — 91/,".
Dýpt 18' — 71/4".
Ristir fullfermdur 17' — 2y4".
Burðarmagn 1075 smál.
Af fiski taka farmrúmin 32,500 ten-
ingsfet.
8 skiljur skifta skipinu í 9 rúm.
300 smál. af eldsneytisolíu getur skipið
flutt og nægja þær birgðir til að fara
vegalengd, er nemur 25.000 sjómilur. Er
sá forði í þar til gjörðum geymum og í
botni skipsins, sem er tvöfaldur.
Aðalmótorinn er 6 cyl. 450 X 850 mm.
Burmeister og Wains fjórtaks „Trunlc-
motor“, sem framleiðir 1000 hestöfl.
Snúningsliraði 155—160 á min-
útu.
Menn þykjast vera komnir
að raun um, að Dieselmótorar
eru miklu heppilegri i togara,
sem fara lengar veiðiferðir, en
gufuvélin. Ávinningur er eink-
um í því innifalinn, hve lengi
mótorskipin geta haldið sjó, án
þess að leita hafna til að end-
urnýja eldsneyti.
Á „Victoria“ er öllu svo hag-
lega fyrirkomið og niðurraðað,
að ekkert fari til spillis af því
er aflast og svo gengið frá olíu-
birgðum, að hvergi saki farm.
Skipið er alt raflýst. íbúðir skipverja eru
framúrskarandi góðar. Hraði þess er 11
sjómílur á klst., en í reynsluferðinni 12.
jan. knúði vélin það 12 sjómílur.
Þetta er lauslega tekið úr „Nordisk
Havfislceri-Tidende“ 4. tbl. 1928 — og
má þar lesa nákvæma lýsingu á skipinu,
sem þeir gætu haft gagn af, sem fræðast
vilja um frágang allan á mótortogur-
um, sem virðast vera í þann veginn að
ryðja sér til rúms.
(21. mars 1928.)