Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1956, Blaðsíða 4

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1956, Blaðsíða 4
sér stöðu, sem gæfi honum færi á að gefa sig að fræði- störfum. Hann sótti um kennarastöðu þá við Hafnarhá- skóla, er laus var til umsóknar við fráfall Gísla Brynj- ólfssonar, og hafði hann þá eindregin meðmæli Vilhjálms Finsens. En annar maður var tekinn fram yfir hann. Á þeim tímum var ekki völ á neinni fræðimannsstöðu í lög- fræði hér á landi, en stofnun lagaskóla var þá á döfinni. Klemens Jónsson getur þess í ævisögu Páls í Andvara 1907, að hann hafi haft mikla löngun til að komast að lagaskól- anum, þegar hann tæki til starfa, og hafi hann fylgt því máli með áhuga. Þegar lögin um lagaskóla svo að lokum voru sett, árið 1904, ætlaði stjórnin, að því er Klemens segir, Páli forstöðu skólans. En hann andaðist áður en skólinn hóf starf sitt. Vafalaust mundi meira liggja eftir hann af lögfræðiritum, ef hann hefði lifað lengur og kom- izt í þessa stöðu. En í þess stað urðu ritgerðir hans auka- verk, unnin í önnum umfangsmikilla embætta. Fyrsta rit Páls, er birtist á prenti, var fyrirlestur, sem hann hafði haldið hér í Reykjavík, um frelsi og menntun kvenna. Meginefni þess ritlings er frásögn um kvenfrels- isbaráttu þá, sem hafin var þá fyrir nokkru í Bandaríkj- um Norður-Ameríku, en jafnframt er þar gerð nokkur grein fyrir stöðu kvenna að lögum bæði hér á landi og víðar, og má að því leyti til telja rit þetta til lögfræðirita Páls. Sama árið, 1885, birtist ritgerð hans um Grágás í Tímariti hins íslenzka bókmenntafélags. Er þetta ýtarleg ritgerð, glögg og skýr greinargerð um Grágás og í sam- bandi við hana um nokkur atriði í rétti þjóðveldistímans, og hefir þessi ritgerð hans fullt gildi enn í dag. Hinsvegar verður ekki sagt, að hún hafi margar nýjungar að geyma, höfundurinn fylgir oftast skoðunum Vilhjálms Finsens. Árið 1888 kom í Andvara ritgerð eftir Pál, sem hann nefndi Frelsi og réttur. Tók hann þar til meðferðar boð- orðin tvö: Gjör rétt og þol eigi órétt, og fjallar ritgerðin einkum um hið síðarnefnda og hversu mikilvægt það sé, að óréttur nái eigi að hafa framgang sinn. Styðst hann 130
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.