Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Side 57

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Side 57
— hlutur stefnanda kr. 4,194,41 — hlutur stefnda K. kr. 4,194,40 — greiðslur vegna lokunar kr. 100,00, greitt af stefnda K. kr. 2,112,87, dómkrafan kr. 2,181,53. Því var haldið fram í málinu, að stefnandi hafi ekki fengið neina greiðslu upp i áðurgreinda hitareikninga frá fyrri eiganda og beri stefnda K. að standa sér skil á allri fjárhæðinni. Kröfur stefnanda vegna barnagæzlunnar voru rökstudd- ar með því, að um væri að ræða ólögmæt afnot íbúðarhús- næðis. Var um það vitnað til laga nr. 19/1959 og sérstak- lega bent á 18. og 19. gr. þeirra. Með tilvisun til framburð- ar stefnanda fyrir dómi var þvi haldið fram, að óþrifnað- ur væri vegna barnagæzlunnar, svo og margs konar ónæði og óþægindi. Sýknukarfa stefnda, K., var að því er varðar kröfugerð um hitakostnað rökstudd með því, að honum bæri einung- is að greiða 1/6 hluta hitareiknings fyrir tímann frá 4. desember 1962 til 4. marz 1963 og helming hinna um- deildu síðari reikninga. Þetta hafi hann þegar gert. Sýknukrafa stefndu vegna kröfu um barnagæzlu var rökstudd með því, að hér væri einungis um að ræða venju- lega notkun húsnæðis, sem enginn óþrifnaður væri af, ónæði eða önnur óþægindi fyrir stefnanda. Sé barnagæzl- an á engan hátt ólögmæt. 1 niðurstöðu dómsins sagði m. a. svo orðrétt: „Ástæður þykja vera til að vikja að nokkrum atriðum, er snerta formhlið máls þessa, þó að þeim hafi ekki verið hreyft af hálfu aðila. Stefndu fengu sem fyrr segir leyfi til skilnaðar að borði og sæng 13. september 1965 og hefur skiptaréttur nú hjúskapareignir þeirra til skipta. Engu að síður var heimilt að halda málinu áfram gegn stefndu án tillits til skiptanna, sbr. 68. gr. laga nr. 3/1878 og 2. mgr. 47. gr. laga nr. 20/1923. Telja verður, að rétt sé skv. 47. gr. laga nr. 85/1936 að stefna báðum hinum stefndu í einu máli vegna kröfu stefnanda um bann við barnagæzlu, þar sem stefndi K. er skráður eigandi íbúðarinnar, sem starfsemin fer fram í og Tímarit lögfræðinga 141

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.