Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Síða 34

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Síða 34
þeim hærri persónuafslátt en öðrum einhleypingum, þ.e.a.s. persónu- afslátt hjóna. Skv. lögum nr. 40/1978 njóta hins vegar allir menn sama persónuafsláttar, og því var gripið til þess ráðs að hækka barnabætur til einstæðra foreldra til að bæta upp missi hins aukna persónuafsláttar. Með þessari aðferð njóta einstæðir foreldrar í heild töluverðs hág- ræðis af breytingunni, en hins vegar verður umtalsverð endurdreifing á skattbyrði innan hópsins, þannig að barnmargir einstæðir foreldrar njóta verulegs hagræðis. Hins vegar er breytingin heldur óhagstæð einstæðum foreldrum með eitt barn, ekki síst ef tekjur þeirra eru all- verulegar. Skattlagning einstaklinga, er stunda atvinnurekstur. Meðal umdeildustu ákvæða laganna eru ákvæðin í 2. mgr. 1. tl. A-liðs 7. gr., 59. gr. og 3. tl. 62. gr. um skattlagningu þeirra manna, er stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi. f örstuttu máli fela þessi ákvæði í sér, að allir þeir, sem atvinnurekstur stunda, skulu reikna sér laun fyrir vinnu sína við reksturinn, og skulu laun þessi ekki vera lægri en greidd hefðu verið fyrir hliðstætt starf í þágu óskyldra aðila. Þessi laun teljast til gjalda í atvinnurekstrinum, en til tekna hjá at- vinnurekandanum persónulega. Ef aðilar reikna sér ekki slík laun fyrir vinnu við eigin rekstur, eða þau eru óeðlilega lág, skal skattstjóri áætla þessi laun. Skal hann þá taka mið af viðmiðunarreglum ríkis- skattstjóra um laun í hinum ýmsu starfsgreinum og jafnframt taka tillit til aðstæðna skattaðila, svo sem starfstíma hans, aldurs og heilsu. Þessi laun eru hins vegar almennt séð óháð afkomu atvinnurekstrarins. I tengslum við þessi ákvæði er svo sú regla 3. tl. 62 gr., að tap af atvinnurekstri er aldrei frádráttarbært frá öðrum tekjum atvinnurek- andans. Hliðstæð ákvæði um áætlun launa atvinnurekanda hafa um langt árabil verið í lögum um launaskatt og nú síðustu árin einnig í tekjuskattslögunum, þar sem þeim hefur verið beitt til að takmarka greiðslur ríkissjóðs á útsvari skattlausra atvinnurekenda. Þessi ákvæði hafa ekki valdið verulegum framkvæmdaerfiðleikum fram til þessa, en þar með er ekki sagt, að ákvæði laga nr. 40/1978 geri það ekki. Má án efa búast við verulegum deilum vegna þessara ákvæða. Hins vegar er þess að gæta, að viðmiðunartekjur ríkisskattstjóra hafa fram til þessa verið það lágar í flestum starfsgreinum, að hin reiknuðu laun hafa oftast verið undir skattskyldumörkum tekjuskatts eða a.m.k. mjög nálægt þeim. Má því ætla, að áhrifa þessara reglna 'gæti framan af fyrst og fremst í því, að tap af atvinnurekstri verður ekki frádrátt- arbært frá öðrum tekjum þess einstaklings, er reksturinn stundar. 128

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.