Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Page 19

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Page 19
Jón Finnbjörnsson er dómarafulltrúi í Héraðsdómi Reykjavíkur Jón Finnbjörnsson: TVEIR DOMAR UM TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR FARMFLYTJANDA1 1. INNGANGUR Meðal sérkenna sjóréttarins er takmörkun ábyrgðar. Á öðrum réttarsviðum er bótaábyrgð almennt ekki takmörkuð við tilteknar, fyrirfram ákveðnar fjárhæðir, svo sem er mjög ríkjandi í sjórétti.2 Takmörkun ábyrgðar birtist í ýmsum gerðum í siglingalögum nr. 34/1985. í þessari grein verður einungis fjallað stuttlega um tvenns konar takmörkun. Annars vegar allsherjartakmörkun með tiltekinni fjárhæð til greiðslu allra bótakrafna sem rísa vegna eins og sama atburðar. Um þennan þátt er fjallað í IX. kafla laganna, einkum 173.-177. gr.3 Hins vegar takmörkun ábyrgðar á farmi við tiltekna fjárhæð miðað við einingafjölda eða þyngd,4 sbr. 2. tl. 70. gr. siglingalaganna.5 Takmörkun ábyrgðar verður líklega að telja undantekningarreglu. Almennt ber þeim sem bótaskyldur er að bæta allt tjón sem hann er ábyrgur fyrir. Það að 1 Framsöguerindi flutt á fundi Hins íslenska sjóréttarfélags 6. apríl 1995, með fáeinum breytingum og viðaukum. 2 Takmörkun bótaábyrgðar hefur einnig fest sig í sessi í öðrum greinum flutningaréttar, sbr. t.d. 118. gr. loftferðalaga nr. 34/1964. 3 Um almenna takmörkun bótaábyrgðar útgerðarmanns má vísa til þessara rita: Arnljótur Björnsson í Tímariti lögfrœðinga 1987, bls. 8; lnnföring i Sj0rett, bls. 120-132; Peter Wetterstein í Marlus nr. 108; Chorley & Giles, bls. 394-416. 4 Sjá um stykkjatakmörkun (kollobegrensning) Arnljót Björnsson í Tímariti lögfrœðinga 1987, bls. 104 (112-115); Innföring i Sj0rett, bls. 208; Chorley & Giles, bls. 210-215. 205

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.