Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 24

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 24
kennandi dæmi um áverka sem við lesum annars bara um í bókum eða ímyndum okkur út frá einkennum sjúklinga og röntgenmyndum. Grein Torfa Magnússonar lýkur svo: Hálsverkir og önnur einkenni, sem koma eftir hálshnykk, án sjáanlegra áverka- merkja, hafa lengi verið mönnum ráðgáta. Niðurstöður rannsókna í vestrænum lönd- um, benda þó til þess að um afleiðingar líkamsáverka sé að ræða og engin rök hníga að því að hálsáverkar eftir bifreiðaslys og afleiðingar þeirra séu litnir öðrum augum en aðrir áverkar. Vefjarannsóknir undanfarinna ára benda til þess að afmarkað verkja- svæði í hálshrygg sé finnanlegt hjá flestum hálshnykksjúklingum, og lífeðlisfræði- legar rannsóknir sýna að áverki, sem í upphafi veldur staðbundnum verkjum, getur orðið upphafið að útbreiddum líkamlegum einkennum ef ekki tekst að bæla verkina. Vanþekking á eðli þessa dularfulla sjúkdóms gerir markvissa meðferð erfiða í flest- um tilvikum en vonir standa til að á næstu árum muni skilningur okkar á þessum sjúkdómi aukast og þar með meðferðarmöguleikar. Rannsóknir á batahorfum þeirra sjúklinga, sem orðið hafa fyrir hálshnykksáverka í bifreiðaslysum, benda ekki til þess að þeir beri öðrum fremur fram vandkvæði sín í þeim tilgangi að afla sér tryggingabóta með sviksamlegum hætti. Vísindalega fengn- ar niðurstöður réttlæta því á engan hátt það tortryggna viðhorf samfélagsins, sem oft virðist ríkja í garð þessara ólánsömu einstaklinga, sem margir búa við verulega líkamlega og félagslega fötlun. 7.6 Ólík sjónarmið lækna Munurinn á sjónarmiðum þeirra lækna sem S.Í.T. telur hafa „rétt“ sjónarmið við mat á örorku fólks og annarra virðist vera þessi frá sjónarhóli leikmanns. Ágreiningurinn snýst fyrst og fremst um afleiðingar háls og bakáverka. Læknar S.Í.T. líta svo á að við mat á örorku eigi aðeins að taka tillit til þeirra áverka sem hægt er að greina hlutlægt, objektivt. Ef ekki er hægt að sjá áverka á hálsi eða hrygg á röntgenmynd eða í sneiðmyndatæki virðist nánast litið svo á að áverkinn sé ekki til, a.m.k. ekki raunverulegur nema í huga hins slasaða. Dæmi um þetta er að finna í fyrrnefndri grein Gísla Einarssonar á bls. 3 en þar segir: „Líkamlegum ástæðum til færniskerðingar og/eða örorku má skipta í tvo flokka: 1) Huglægar ástæður, þar sem sársauki er annar tveggja mikilvægustu þátt- anna, hinn er eigið mat að um óvinnufærni sé að ræða. 2) Hlutlægar ástæður, þ.e. mælanlegar takmarkanir, svo sem blinda, handar- missir o.s.frv.“ Og síðar á sömu síðu segir: Ef nánar eru skoðaðar hinar huglægu ástæður manneskju til óvinnufæmi kemur í ljós að greinarmun verður að gera á annars vegar á svari líkamans við vefjarsköddun og hins vegar sársaukans sem orsakast af sömu sköddun en sársaukinn er það ástand að verða sér meðvitaður um að vefjarsköddun hefur átt sér stað. Þjáning er síðan hin til- finningalega svörun einstaklingsins við sársaukanum eða gagnvart þeim afleiðingum 192
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.