Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 41

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 41
orðsdóma. Tilkynni skilorðseftirlit ákæruvaldi um skilorðsrofin og leggi ákæru- valdið málið á ný fyrir dómstól. Oftar en ekki leiði það til þess, að skilorðs- dómur sé tekinn upp og dæmd óskilorðsbundin refsivist. Þó séu önnur úrræði einnig notuð, t.d. lenging skilorðstíma, eftirlit o.fl. Þegar skilorðsrof er fólgið í nýju afbroti sé dómurinn um samfélagsþjónustu dæmdur upp, ásamt nýja brot- inu. Þegar vinnuskylda er ekki að fullu innt af hendi, sé metið, hversu miklu þyngri hinn nýi dómur eigi að vera, en ef einungis væri dæmt fyrir hið nýja brot í athugasemdum, sem fylgdu frumvarpi því, er varð að lögum nr. 55/1994, segir svo: Ekkert er því til fyrirstöðu að þessum málum verði skipað á annan veg í lok tilrauna- tímabilsins, ef ákveðið verður að samfélagsþjónusta verði varanlegur hluti af viður- lagakerfinu. Víðast mun dómstólaleið farin erlendis, en yfirlit um stöðu samfélags- þjónustu í viðurlagakerfinu og í nálægum löndum, sem var hluti af grg. með eldra frv., er birt sem fylgiskjal I með frv. í umsögn Dómarafélags íslands til allsherjarnefndar Alþingis á sínum tíma var varað við því, að ofangreint fyrirkomulag, það er að fela nefnd á vegum framkvæmdavaldsins vald til að breyta viðurlagaákvörðun dómstóla, kynni að brjóta í bága við 2. gr. stjómarskrárinnar. 2. LÖGFESTING SAMFÉLAGSÞJÓNUSTU SEM FULLNUSTUÚRRÆÐIS MEÐ LÖGUM NR. 123/1997 í ljósi þess, sem hér hefur verið rakið, vekur það undrun, að inn í lög um fangelsi og fangavist hefur með nýsettum lögum, nr. 123 22. desember 1997, sem gildi tóku 1. janúar 1998, verið smeygt sérstökum kafla um samfélags- þjónustu. Er þar um að ræða fimm lagagreinar í IV. kafla laganna, nánar tiltekið 22.-26. gr. Segir í athugasemdum með fmmvarpi til laganna, að helstu rökin fyrir því að fella ákvæðin um samfélagsþjónustu undir lögin um fangelsi og fangavist séu þau að undirstrika, að hér sé um að ræða fyrirkomulag fuiln- ustu á óskilorðsbundinni refsivist. Verði að telja eðlilegt, að öll meginákvæð- in um fullnustu óskilorðsbundinna refsivistardóma séu í sömu löggjöf. Helstu nýmæli laganna era þau í fyrsta lagi, að tímamörk heimildar til að beita samfélagsþjónustu sem fullnustuúrræðis er tvöfölduð, eða úr þriggja mánaða óskilorðsbundinni refsivist í sex mánaða óskilorðsbundna refsivist. I annan stað tekur Fangelsismálastofnun ríkisins nú ákvörðun um, hvort samfélagsþjónustu verður beitt í stað samfélagsþjónustunefndar. I þriðja lagi er kveðið á um það í lögunum, að farið verði með skilorðsrof á svipaðan hátt og agaviðurlög í fang- elsum og í fjórða lagi era ákvarðanir fangelsismálastofnunar um samfélagsþjón- ustu kæranlegar til dómsmálaráðherra, sem samkvæmt lögunum tekur endanlega ákvörðun um afgreiðslu máls, að fenginni tillögu náðunamefndar. Framvarp til laganna var „að meginstefnu til“, eins og segir í athugasemdum við það, samið í fangelsismálastofnun að tilhlutan dómsmálaráðherra, og voru 209
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.