Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 73

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 73
starfsemi en leiddi af hlutverki félagsins samkvæmt lögum nr. 61/1942 um málflytjendur. 4.3.4 Þvingun til þátttöku í starfsemi sem var utan lögmælts hlutverks var í andstöðu við 2. mgr. 74. gr. stjskr. Með dómi Hæstaréttar er gripið inn í það sjálfræði sem lögmannafélagið hefur notið um skipulag sitt og starfsemi. Niðurstaða Hæstaréttar er ekki á því byggð að lög nr. 61/1942 um málflytjendur bindi starfsemi félagsins við lög- mælt verkefni heldur er það skylduaðildin að félaginu sem takmarkar sjálfræði þess. Niðurstaðan getur þess vegna ekki byggt á öðrum lagareglum en reglum um neikvætt félagafrelsi og því verður að ætla að dómurinn sé reistur á nýju ákvæði 2. mgr. 74. gr. stjskr. um neikvætt félagafrelsi þótt ekki sé vísað til þess í forsendum dómsins. Sú ályktun verður dregin af dómi Hæstaréttar að samkvæmt 2. mgr. 74. gr. stjskr. verði félagsmenn skylduaðildarfélaga ekki þvingaðir til þátttöku í starf- semi sem er utan marka lögmælts hlutverks félagsins og enn fremur að ekki verði gerð sú krafa til félagsmanna þeirra að þeir elti ólar við einstakar ákvarð- anir stjórnar eða félagsfundar sem falla utan lögbundins ramma. Ef skylduað- ildarfélagi tekst ekki að sýna fram á að þær skyldur sem lagðar eru á félags- menn séu einungis í þágu lögboðins hlutverks ber það hallann af því og félags- menn verða ekki þvingaðir að lögum til að uppfylla slíkar skyldur. Undantekn- ingarákvæði 2. málsl. 2. mgr. 74. gr. stjskr. um að skylda megi menn til aðildar að félagi ef það er nauðsynlegt til að félag geti sinnt „lögmæltu hlutverki“ tak- markar sjálfræði skylduaðildarfélaga, a.m.k. gagnvart einstökum félagsmönn- um, við þetta lögmælta hlutverk, forsendu skylduaðildarinnar Við túlkun á dómi Hæstaréttar í lögmannafélagsmálinu verður að hafa í huga hvemig málið var lagt fyrir dómstóla. I málinu var ekki deilt um lögmæti skylduaðildar lögmanna að lögmannafélaginu og í forsendum dómsins er lögð sérstök áhersla á það að skylduaðild að félaginu sé óumdeild.291 dómi Hæsta- réttar er þess vegna ekki lagt mat á lögmæti skylduaðildar lögmanna að lög- mannafélaginu samkvæmt lögum nr. 61/1942. Þess vegna er varhugavert að 29 Eftirfarandi athugasemdir er að finna í dómi Hæstaréttan „í máli þessu er ekki deilt um það, að starfandi lögmönnum sé skylt að hafa með sér félag“. ... „Áfrýjandi viðurkennir skylduaðild sína að félaginu að svo miklu leyti sem félagið einskorðar starfsemi sína við það stjómsýslu- og úr- skurðarhlutverk á sviði opinbers réttar, sem því er ætlað samkvæmt lögum nr. 61/1942“. ... „Ve- fengir hann ekki, að skylduaðild að því sé í samræmi við 2. málslið 2. mgr. 74. gr. stjómarskrár lýð- veldisins íslands nr. 33/1944, sbr. 12. gr. stjómarskipunarlaga nr. 97/1995“.... „Eins og fyrr greinir viðurkennir áfrýjandi skylduaðild sfna að stefnda að því er varðar hina lögbundnu starfsemi fé- lagsins og er reiðubúinn að greiða árgjald til þess að standa undir þeirri starfsemi". ... „Tekið er undir með héraðsdómi, að skylduaðild að stefnda, sem hér er viðurkennd, heimili ekki stjóm fé- lagsins að krefja félagsmenn um önnur gjöld en þau, sem þarf til að sinna hinu lögboðna hlutverki þess“. 241
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.