Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Qupperneq 29

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Qupperneq 29
5. SKILYRÐIN FYRIR NOTKUN 9. GR. SAMNINGSFYRIRMYNDAR OECD OG SAMANBURÐUR VIÐ 1. MGR. 58. GREINAR TSKL. 5.1 Fyrirtæki í samningsríki Til þess að unnt sé að beita 9. grein verður að vera um að ræða tengd fyrir- tæki. Hugtakinu „fyrirtæki í samningsríki“ er lýst í c-lið 3. greinar samnings- fyrirmyndarinnar sem fyrirtæki rekið á vegum aðila heimilisfasts í samnings- ríki. Hvaða aðilar teljast heimilisfastir samkvæmt samningsfyrirmyndinni kemur fram í 4. grein. Samkvæmt þeirri grein teljast heimilisfastir allir aðilar sem samkvæmt lögum samningsrrkis eru skattskyldir þar á grundvelli búsetu, heimilisfesti, framkvæmdastjómar eða sérhverju slíku atriði. Samkvæmt þessu nær ákvæðið til fyrirtækja rekinna á vegum manna og lögaðila og verður að telja þá niðurstöðu eðlilega, þrátt fyrir orðalag í athugasemdum með 9. grein sem greint var frá hér að framan. Hugtakið fyrirtæki er ekki nánar skilgreint í samningsfyrirmyndinni og verður því að líta til íslenskra skattalaga um skil- greiningu á því, sbr. 2. mgr. 3. gr. samningsfyrirmyndarinnar. Hugtakið er ekki sérstaklega skilgreint í íslenskum skattalögum, en hefur í framkvæmd verið talið taka til atvinnurekstrar á vegum bæði manna og lögaðila. Samkvæmt þessu nær hugtakið fyrirtæki í 9. gr. samningsfyrirmyndar OECD til atvinnu- rekstrar á vegum manna og lögaðila. Það er þess vegna ekki unnt að nota greinina um viðskipti milli manna eða lögaðila utan atvinnurekstrar. Um viðskipti milli greiðanda vaxta og eiganda kröfu eiga við ákvæði 6. mgr. 11. gr. samningsfyrirmyndarinnar, eins og áður segir. Ákvæði þessi eiga bæði við aðila í og utan rekstrar. Hin almenna armslengdarregla 9. greinar nær hins vegar t.d. ekki til ákvarðana um vaxtakjör þegar um er að ræða lán frá hluthafa til hlutafélags eða frá hlutafélagi til hluthafa sem ekki tengjast atvinnurekstri eða t.d. ákvarðana um leigukjör þegar hluthafi leigir hlutafélagi íbúð sína.42 Varðandi samanburð á 9. gr. samningsfyrirmyndar OECD og 1. mgr. 58. gr. tskl. er vert að vekja athygli á því að ákvæði 58. greinarinnar eru þrengri en ákvæði 9. greinarinar að því leyti að 58. greinin kveður á um skilmála sem eru „verulega" frábrugðnir því sem almennt gerist. Eins og rakið var í inngangi hér að framan gildir 1. mgr. 58. gr. eingöngu um hagsmunatengda aðila. í 9. gr. samningsfyrirmyndarinnar er það skilyrði einnig fyrir hendi, sbr. strax fyrirsögn greinarinnar „tengd fyrirtæki". I greininni sjálfri er þessu nánar lýst.43 Hvorki í greininni sjálfri né athugasemdum með henni kemur nánar fram hvenær fyrirtæki eða aðilar teljast vera tengdir með þeim hætti að greinin eigi við. Það er því greinilega gert ráð fyrir því að hvert samn- ingsríki fyrir sig setji um það nánari lýsingu og skilyrði í sinni innri löggjöf. Eins og áður segir eru engin frekari ákvæði um þetta í íslenskum tekjuskatts- 42 Jan Pedersen telur að 9. gr. OECD fyrirmyndarinnar nái ekki til innri skipta innan fjölskyldu eða um þau tilvik þegar aðalhluthafi á viðskipti við hlutafélag sitt, sbr. Transfer Pricing. 1998, bls. 170. 97
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.