Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Side 61

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Side 61
ólíkum tegundum alþjóðlegra skuldbindinga til þess að ná tökum á þessu vanda- máli. í greininni mun sérstaklega verða fjallað um stöðu mála á íslandi og hvemig íslensk stjómvöld vinna að því að hrinda í framkvæmd hér á landi Fram- kvæmdaáætlun um varnir gegn mengun sjávar frá landstöðvum. 2. HNIGNUN LÍFRÍKIS SJÁVAR OG ÞRÓUN HAFRÉTTAR Það er fyrst nú á allra síðustu áratugum sem þjóðir heims hafa gert sér grein fyrir mikilvægi heilbrigðs lífríkis sjávar fyrir allt líf á jörðu. Höfin gegna lykil- hlutverki í kolefnishringrás lífsins, hafa áhrif á veður og tempra hitastig. Höfin eru auk þess ein stærsta uppspretta fæðu og eggjahvítuefna á jörðinni.2 Til skamms tíma var litið á hafið sem sameiginlega eign mannkyns án nokkurra takmarkana. Hið ríkjandi sjónarmið í hafrétti var grundvallarreglan um frelsi á hafi úti og þar með frelsi til að nýta auðlindir þess. Grundvallarreglan um frelsi á hafi úti varð að meginreglu snemma á 19. öld3 og þjónaði þá hagsmunum hinna valdamiklu siglingaríkja þeirra tíma. Á þeim tíma voru fiskveiðiskip og -tæki ekki afkastamikil á nútímamælikvarða og áhrif þeirra á lífríki hafsins voru minni háttar. I seinni heimstyrjöldinni, og næstu ár- um þar á eftir, áttu sér hins vegar stað róttækar tækniframfarir sem gerðu þjóð- um heims kleift að uppgötva og nýta auðlindir hafsins með öðrum og mun af- kastameiri hætti en áður hafði verið mögulegt. Því miður gerðu þessar tækni- framfarir mönnum einnig kleift að menga hafið og ofnýta auðlindir þess. Sú alvarlega hnignun lífríkis sjávar sem kornið hefur ljós á allra síðustu ára- tugum, hefur leitt til umræðu og aðgerða á alþjóðavettvangi sem endurspegla ný sjónarmið í hafrétti. Mengun sjávar hefur gegnt mikilvægu hlutverki í þeirri þróun enda talin ein aðalorsök hnignunar lífríkisins. Aukin sönnun um skaðleg og hugsanlega óafturkræf áhrif mengunar á lífríki sjávar, hefur sýnt fram á að meginreglan um frelsi á hafi úti er ekki lengur þess megnug að vernda lífríki sjávar og þar með hagsmuni þjóða heims. Hið hefðbundna hagkvæmnissjónar- mið, sem endurspeglast hefur í venjurétti um frelsi á hafi úti, hefur því smám saman vikið fyrir sjónarmiðum er taka meira mið af verndun og sjálfbærri nýt- ingu hafsins og auðlinda þess.4 3. MENGUN SJÁVAR FRÁ LANDI Ef litið er til uppruna mengunar sjávar eru helstu tegundir hennar eftirfar- andi: mengun frá landi, mengun frá skipum, losun í sjóinn, mengun frá and- rúmsloftinu og frá nýtingu sjávarbotnsins. Mengun frá landi er talin uppspretta 2 Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins: „Verndun hafsins fyrir meng- un“, ræða flutt hinn 30. október 1999 á ráðstefnu Landverndar um „Umhverfis- og náttúruvernd í 30 ár“. Hér eftir vísað til sem: Magnús Jóhannesson: „Verndun hafsins fyrir mengun". 3 Reglan á sér hins vegar sögu aftur til tíma Rómverja. 4 Juda, Lawrence: International Law and Ocean Use Management. New York 1996, bls. 103. Hér eftir vísað til sem „Juda“. 22 7

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.