Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Síða 68

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Síða 68
Rfki hafa, í samræmi við Sáttmála Sameinuðu þjóðanna og grundvallarreglur al- þjóðaréttar, rétt til þess að nýta eigin auðlindir í samræmi við eigin stefnu í um- hverfismálum og bera ábyrgð á að framkvæmdir innan lögsögu þeirra valdi ekki tjóni á umhverfi annarra ríkja eða svæða utan eigin lögsögu. Á Stokkhólmsráðstefnunni endurspeglaðist hvemig ólík pólitísk markmið um eitt hundrað og fimmtíu aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna hömluðu því að hægt væri að koma á hnattrænni lögsögu er tæki á alþjóðlegri mengun.31 Á ráð- stefnunni var þó viðurkennd nauðsyn þess að taka á þessum málum á alþjóða- vettvangi. I kjölfar Stokkhólmsráðstefnunnar voru gerðir nokkrir svæðisbundnir samn- ingar milli þjóða er tóku á ýmsum þáttum mengunar sjávar, þ.á m. mengun frá landi. Það var hins vegar ekki fyrr en árið 1982 að sáttmáli, sem var ekki bund- inn við ákveðið svæði og var ætlað að taka til allra þjóða heims, lagði skyldur á herðar samningsaðila um stjórnun mengunar sjávar frá landi, það var Hafrétt- arsamningur Sameinuðu þjóðanna. 4.3.2 Hafréttarsamningur Sameinuðu þjóðanna Hafréttarsamningur Sameinuðu þjóðanna er fyrsti alþjóðlegi sáttmálinn er fjallar um hafrýmið í heild sinni og boðaði hann á sínum tíma veigamikla breyt- ingu á sviði mengunarmála hafsins.32 Þrátt fyrir að samningurinn tæki ekki gildi fyrr en seint á árinu 1994 þá voru mörg ákvæða hans viðurkennd sem réttar- venja fyrir þann tíma. Hafréttarsamningurinn kveður á um þá grundvallarskyldu strandríkja að vernda og viðhalda umhverfi hafsins og auðlinda þess. Skylda þessi felur það í sér að strandrrkjum ber að vemda auðlindir hafsins og bera bótaábyrgð ef þess- ari grundvallarskyldu er ekki sinnt. Samningurinn mælir einnig fyrir um að þjóðir heims skuli setja lög og reglur, á svæðis- eða hnattrænum grundvelli, til þess að koma í veg fyrir, draga úr og hafa eftirlit með mengun í lífrrki sjávar.33 Það ákvæði sem aðallega tekur á mengun frá landi er að finna í 207. grein samningsins. Þar segir í 1. mgr.: Ríki skulu setja lög og reglur til að koma í veg fyrir, draga úr og hafa eftirlit með mengun hafrýmisins frá landstöðvum, m.a. ám, árósum, leiðslum og ræsakerfum, enda sé höfð hliðsjón af reglum, stöðlum og tilmælum um venjur og starfshætti sent samþykkt hafa verið á alþjóðavettvangi. 31 Kindt, John Warren: Marine Pollution and the Law of the Sea Vol. II. Buffalo N.Y. 1986, bls. 1060. Hér eftir vísað til sem „Kindt". 32 Schachte, W.: „The Value of the 1982 U.N. Convention on the Law of the Sea: Preserving Our Freedoms and Protecting the Environment". 23 Ocean Development and Intemational Law, bls. 59 (1992). Hér eftir vísað til sem „Schachte". 33 Schachte. bls. 60. 234
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.