Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Side 70

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Side 70
álfunnar,' landi sem er hvorttveggja í senn ótrúlega auðugt og ólýsanlega snautt. Landi þar sem fáeinir metrar kunna að skilja að verksmiðjur sem framleiða eld- flaugar, lúxusbifreiðar og hátæknibúnað af hvaða toga sem vera skal, og ólýsan- leg fátækrahverfi þar sem bókstaflega allt virðist skorta sem almennt er talið skilja umhverfi manna frá bústöðum dýra. Talið er að Brasilía sé svo auðug frá náttúrunnar hendi að landið gæti, ef verkast vildi, verið því sem næst sjálfbært um allar mannlegar nauðsynjar sem gjörvöll þjóðin fengi að njóta - og væri þó nóg eftir til útflutnings. Fáir gera sér þó háar hugmyndir urn að sú verði raunin í fyrirsjáanlegri framtíð, og þar er lélegu stjómarfari og almannaviðhorfi því tengdu fyrst og fremst um að kenna. Þar í landi, sem og í flestum öðmm ríkjum álfunnar, gætir almennrar og rótgróinnar uppgjafar í þeim skilningi að fáir reikna með því, í raun og veru, að hæfir og góðir landsstjómendur muni nokkm sinni koma til sögunnar. Til þess er spillingin og getuleysið of rótgróið og verðandi stjómarherrar hljóta alltaf - eftir einhvers konar náttúmlögmáli - að sækja í sama farið og þeir er nú sóla sig og þeir sem áður rrktu, segja menn. Tugmilljónir manna, sem búa í örbirgð og allsleysi, trúa því að enginn mannlegur máttur geti bjargað hinum umkomulausu, heildstætt séð, en að kannski svo sem ein eða tvær fjölskyldur af milljón hljóti það happ að eignast unga menn sem skara fram úr á knattspymuvellinum og raka saman fé fyrir fræknleik sinn, eða þá að ein og ein fjölskylda eða einstaklingur öðlist stóra vinninginn í ríkishappdrættinu og geti flust niður úr fjöllunum eða út úr skógarþykkninu í ímyndaða alsæld stórborganna við ströndina eða þá úr fjögurra fermetra hreysi í borginni inn í hverfi auðmanna sem hafa lífvörð á hverjum fingri. Sú mikla innri spenna, sem einkennir þessi ríki, felst ekki einvörðungu í hinu hróplega misrétti á efnalega vísu er alls staðar blasir við, heldur einnig í þeirri staðreynd að menningarleg gjá er milli ýmissa þjóðfélagshópa, einkum milli þeirra manna annars vegar, sem eru afkomendur frambyggjanna sem voru við lýði áður en Evrópumenn tóku að leggja löndin undir sig á mörkum miðalda og nýaldar, og hins vegar afkomenda evrópskra landnema og stjómarherra en þar má nánast tala um „tvo heima“ í sumum landanna. Þá er staða manna, sem eru blendingar þessara hópa, víða óljós og ótrygg en blöndunar kynþátta gætir þar mismikið eftir löndum.3 4 3 Flatarmál Brasilíu er meira en allra Bandaríkja Norður Ameríku samanlagt ef Alaska er frá talið. Landið er hið fimmta stærsta í heimi og jafnframt hið fimmta fjölmennasta með um 170 milljónir íbúa. 4 Þessi blöndun ólíkra kynþátta virðist reyndar hafa tekist einna best í Brasilíu þar sem ekki ríkir nein teljandi spenna milli manna af kynþáttum indíána, blökkumanna og hvítra manna, a.m.k. ekki á þéttbyggðum svæðum, og mjög mikil blöndun hefur orðið milli þessara kynþátta. Blökkumenn eru að vísu ekki frumbyggjar í Brasilíu eins og indíánamir því að þeir voru fluttir þangað sem þrælar eða blekktir til að leita þangað og síðan í reynd hnepptir í þrældóm. Þrældómur var formlega afnuminn í Brasilíu síðla á 19. öld, talsvert seinna en í öðrum löndum Suður-Ameríku. í sumum landanna hefur samskiptasaga manna af evrópskum stofni við frumbyggjana verið mörkuð miklum óhugnaði, eins og alkunna er, og hinum síðar nefndu verið útrýmt af stórum landsvæðum. Heyrir sú hörmungarsaga ekki að öllu leyti sögunni til. 64
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.