Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.08.1998, Qupperneq 47

Ægir - 01.08.1998, Qupperneq 47
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Fyrirkomulag vistarvera Aftan við vélarúm, undir aðalþilfari, eru klefar fyrir 11 manns í fjórum tveggja manna klefum og einum þriggja manna klefa. Klefi fyrir líkams- rækt ásamt gufubaði er aftan við íbúðaklefana. Á aðalþilfari er setu- stofa, matsalur og eldhús, ásamt mat- vælageymslum sem eru úti í stjórn- borðssíðu. Þilfarsbygging Þilfarshúsið er byggt miðskips með þil- farsgöngum meðfram báðum síðum. Aftast í því bakborðsmegin er gengið frá þilfari inn í stakkageymslu, og það- an inn á gang. Inn af stakkageymslu er salerni og snyrting. Fremst í húsinu stjórnborðsmegin er sjúkraklefi og er útgangur úr honum út á þilfar. Klefi 1. vélstjóra og matsveins eru bakborðs- megin í húsinu og þvottaherbergi ásamt sturtu- og snyrtiklefum eru á hæðinni. Á efri hæð eru fjórar íbúðir. Fremst stjórnborðsmegin er íbúð skipstjóra og bakborðsmegin er íbúð yfirvélstjóra, báðar með sér snyrtiaðstöðu. Þar fyrir aftan eru íbúðir 2. vélstjóra og 2. stýri- manns. Á hæðinni eru salerni og snyrting og aftast er klefi fyrir loftræstibúnað. Stigahús er í miðju húsinu. Brúin Brúin er T-laga í stjórnpallsstíl með út- sýni til ailra átta. Stjórnborðsmegin eru ýmis stjórntæki, siglingatæki og fiskileitartæki í þar til gerðu L-laga stjórnborði. Aftast er stjórnborð fyrir nótatromlu. Frá brú er utangengt stjórnborðsmegin aftur á U-laga brúar- pall og þaðan bakborðsmegin niður á efra þilfar. Á þaki brúar er radar-, fjarskipta- og ljósamastur ásamt Norselight ískastara og vinnuljósum. Jón Kjartansson SU 111 Við óskum útgerð og áhöfn til hamingju með breytingarnar. Skipið er allt málað með HEMPELS skipamálningu frá Slippféíaginu Málningarverksmiðju. ..Slippfélagiö Málningarverksmiðja Dugguvogi 4 ■ 104 Reykjavík • Sími: 588 8000 • Fax: 568 9255 ÆCm 47

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.