Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1979, Blaðsíða 18
16
Árbók Háskóla íslands
Úr ræðu rektors við afhendingu prófskskírteina 30. júní 1979
I
Þrisvar á ári lýkur allstór hópur ungs
fólks lokaprófi frá Háskóla íslands. Á þessu
vori er hópurinn stærri en nokkru sinni fyrr,
258 kandídatar. Síðastliðið haust voru
brautskráðir 67 og á miðjum síðasta vetri
38. Alls hafa því 363 iokið brottfararprófi
frá Háskóla íslands á því háskólaári, sem nú
er að ljúka.
Skipting þeirra 258, sem nú ljúka prófi,
er sem hér segir:
Úr guðfræðideild 7, þar af 1 með B.A.-
próf í kristnum fræðum.
Úr læknadeild og námsbrautum á
heilbrigðissviði 63, þar af 45 í læknisfræði, 5
í lyfjafræði lyfsaia og 13 í hjúkrunarfræði.
Úr lagadeild 26.
Úr viðskiptadeild 27.
Úr heimspekideild 47, þar af 5 með
kandídatspróf í íslenskum bókmenntum,
sagnfræði eða ensku, 38 með B.A.-próf og
4 með próf í íslensku fyrir erlenda stúdenta.
Úr verkfræði- og raunvísindadeild 75,
þar af 36 nteð lokapróf í verkfræðigreinum,
1 með fyrrihlutapróf í efnaverkfræði og 38
með B.S.-próf í raungreinum.
Úr tannlæknadeild 4.
Úr félagsvísindadeild 9.
Petta verður í saut jánda og síðasta skipti,
sem ég flyt ávarp við afhendingu próf-
skírteina þau tæplega sex ár, sem ég hef
gegnt rektorsstörfum við Háskóla íslands.
Alls verður hópur kandídatanna 1819 á
þessu tímabili. Ég flyt öllum hópnum, bæði
nærstöddum og fjarstöddum, þakkir mínar
fyrir samveruna í Háskóla íslands, svo og
öðrum nemendum háskólans á þessu tíma-
bili. Samstarfsfólki öllu á sviði kennslu,
rannsókna, stjórnsýslu og þjónustu þakka
ég einnig samstarfið.
Eftirmanni mínum í rektorsembætti,
prófessor Guðmundi Magnússyni, árna ég
allra heilla í starfi.
Við minnumst einnig í dag með þakklæti
og virðingu starfsmanna og nemenda
háskólans, sem látist hafa á liðnu háskóla-
ári, jafnt þeirra, sem á langri starfsævi
mótuðu djúp spor í sögu samtímans, sem og
hinna, er hurfu á brott í blóma lífsins.
Pá flyt ég kveðjur háskólans og þakkir til
þeirra, sem látið hafa af störfum á skóla-
árinu, og býð nýja starfskrafta velkomna.
Ennfremur vil ég nota þetta tækifæri til
að flytja öllum þeim, sem fært hafa háskól-
anum gjafir, alúðarþakkir Háskóla íslands.
II
Skýrsla um starfsemi háskólans þrjú
síðustu árin verður birt í Árbók Háskóla
íslands á svipaðan hátt og í árbókinni, sem
spannar yfir fyrra rektorstímabil mitt, árin
1973—1976, og út kom í ársbyrjun 1978.
Slík skýrsla, þótt aðeins næði til eins árs,
yrði of löng til flutnings á björtum sumar-
degi, er við samfögnum hópi ungs fóks, sem
hefur lokið við að klífa erfiðan hjalla á
námsbrautinni.
Pess skal þó getið, að á liðnum vetri voru
2896 nemendur við Háskóla íslands, þegar
flest var, og skiptust þeir þannig:
í guðfræðideild 54.
í læknadeild, þar með talin lyfjafræði
lyfsala og námsbrautir í hjúkrunarfræði og
sjúkraþjálfun, 510.
í lagadeild 220.
í viðskiptadeild 399.
í heimspekideild 746.
í verkfræði- og raunvísindadeild 594.
í tannlæknadeild 51.
í félagsvísindadeild 322.