Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2009, Page 196
kennarar gætu bætt við sérhæfðum spumingum á einstökum námskeiðum í hinni
miðlægu kennslukönnun.
Vettvangsráð
Vettvangsráð Menntavísindasviðs er nýmæli. Því er ætlað að efla samstarf við þann
vettvang sem Menntavísindasvið þjónar. m.a. að hafa yfirsýn yfir þau verkefni sem
tengjast samstarfi við vettvang, beita sér fyrir kynningu á þeim innan og utan sviðsins
og setja fram hugmyndir um hvemig má sinna þeim betur. Ráðinu er einnig gert að
setja fram hugmyndirað stefnu Menntavísindasviðs í einstökum málaflokkum. m.a.
um vettvangsnám, símenntun. þróunarstarf. ráðgjöf. tengsl sviðsins við atvinnulíf, rann-
sóknir á vettvangi. samráð við hagsmunaaðila og kynningar-, útgáfu- og fræðslustarf.
Vettvangsráð skipa Ingvar Sigurgeirsson prófessor. formaður. Sólrún Björg Kristins-
dóttir forstöðumaður Símenntunar- rannsóknar - ráðgjafar. varaformaður (formaður
á haustmisseri 2009 vegna rannsóknarmisseris formanns), Ama Hólmfríður Jónsdóttir
tektor, Guðmundur B. Kristmundsson dósent, Sigríður Pétursdóttir verkefnisstjóri vett-
vangsnáms grunnskóla. Vilborg Jóhannsdóttir lektor og Inga Lára Bjömsdóttir fulltrúi
nemenda.
Varamenn eru Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir lektor og Kristín ísleifsdóttir aðjunkt og tóku
þær fullan þátt í störfum ráðsins á árinu.
Fyrsta verk ráðsins var að beita sér fyrir könnun sem gerð var vorið 2009 á tengslum
starfsmanna sviðsins við vettvang. Önnur meginverkefni hafa verið stefnumörkun um
símenntun og vettvangsnám. auk þess að afgreiða þau mát sem vísað hefur verið til
ráðsins. þ.á m. matsreglur háskólans, en ráðið lagði mikla áherslu á að vettvangs-
tengd verkefni væru metin að verðleikum. Á heimasíðu ráðsins. www.vefsetur.hi.is/
mvsavettvangi/. er m.a. að finna upplýsingar um vettvangstengd verkefni starfsmanna
sviðsins.
Jafnréttisnefnd Menntavísindasviðs
Nefndin var skipuð í byrjun árs 2009 tit tveggja ára og vinnur hún í samræmi við jafn-
réttisáætlun Háskóla íslands.
Nefndina skipa Ólafur Pált Jónsson lektor. formaður. Sigríður Einarsdóttir verkefnis-
stjóri, Steinunn Helga Lárusdóttir lektorog Inga Lára Bjömsdóttir fulttrúi nemenda.
Varamaður er Ingvar Ágúst Ingvarsson kerfisstjóri.
Á starfsdegi Menntavísindasviðs 20. ágúst 2009 stóð nefndin fyrir umræðu um
jafnréttismál. Markmiðið var að vekja kennara til umhugsunar um ábyrgð þeirra og
hlutverk í því að kenna titvonandi kennurum sem eiga eftir að glíma við og móta
kynjamyndir í skólum landsins.
Á síðari hluta ársins vann jafnréttisnefnd að jafnréttisáætlun fyrir sviðið og aflaði þá
margvístegra tölulegra gagna um stöðu kynjanna á sviðinu.
Auk þess að fjalla um kynjajafnrétti. eins og erindisbréf nefndarinnar kveðurá um.
teggur jafnréttisnefnd Menntavísindasviðs áherslu á að ný jafnréttisáætlun hatdi til
haga þeim áherslum sem Kennaraháskóli íslands hafði í jafnréttismátum. í jafnréttis-
áætlun hans frá árinu 2004 var jafnrétti skitgreint á víðum grundvelti og tók til
uppruna, kyns. kynhneigðar, fötlunar. aldurs og trúarbragða.
Ráðstefnur og málþing
Skóli - nám - samfélag
Á Menntavísindasviði var í ágúst. með tilstyrk rektors Háskóla íslands. efnt til ráðstefnu
til heiðurs Wolfgang Edelstein í tilefni af áttræðisafmæli hans. Hann var ráðgjafi
menntamátaráðherra frá 1966 til 1984 og aftur 1989 tit 1991 um mótun skólastefnu og
stýrði ýmsum umbótaverkefnum. m.a. á vegum skólarannsóknadeildar
menntamálaráðuneytisins.
Á ráðstefnunni var m.a. fjallað um týðræði í skótastarfi. borgaravitund og skapandi
hugsun og ábyrgð nemenda. Wolfgang Edelstein er heiðursdoktor við Háskóla Islands.
Ráðstefna um stærðfræði og sérkennslu
Norræn ráðstefna. NORSMA (The Nordic Research Network on Speciat Needs
Education in Mathematics). um stærðfræðinám og sérkennstu var haldin á Mennta-
vísindasviði 14.-16. október. Að ráðstefnunni stóðu norræn samtök fagmanna.
194