Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Qupperneq 38

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Qupperneq 38
Lagasöfnin. Einasta sjálfgilda (autentiska) lagasafn vor íslend- inga er A-d eild Stjórnartíðindanna, sem kem- ur út árlega frá og með 1874. En auk þeirra eigum vér stórmerkilegt lagasafn, „Lovsamling for Islan d“, sem þeir Jón Sigurðsson forseti og Oddgeir Stephensen deildarstjóri gáfu lengst af út í sameiningu. En vitanlega er hvorugt þessara safna við almenn- ings hæfi. Til þess er hvort um sig alt of stórt. Síðara safnið er 21 bindi og tekur til undir 800 ára. En Stjórn- artíðindin verða bráðum fimtug, og eldast vitanlega með ári hverju. Auk þess eru bæði söfnin alt of dýr. En þau eru hvorug lengur við hæfi lagamanna. I.ögin eru annars vegar orðin mýmörg og mörgum breytt ár eftir ár, án þess að stofn og breytingar sé feld sam- an, og hins vegar er engin viðunanleg heildarefnisskrá til, hvorki við Stjórnartíðindin né Lagasafnið. Enda munu sárafáir lagamenn rannsóknarlaust vita deili jafnvel á öilum heldri lögum, og enginn á öllum. Af því leiðir, að lagaúrgreiðslur munu vera æði mis- jafnar í landi hér, og allmjög á reiki. Er þetta hvortveggja í senn: angursefni samviskusömum embættismönnum og liáskasamlegt réttarmeðvitund almennings og hagsmun- um hans. Til þessa haí'a og margir góðir menn, jafnt leikir og lærðir, lengi fundið. Og upp úr slíkri meðvitund mun bæði Lagasafn handa alþýðu og Lagasafn próf. E e i n a r s Arnórssonar hafa sprottið. En því miður féllu bæði í valinn fyrir örlög fram. Alþýðulagasafnið lést í árslokin 1909. Og Lagasafn próf. Einars nær ekki lengra en fram á árið 1873. Og sé eg sérstaklega eftir

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.