Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Síða 53

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Síða 53
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 47 Tidsskrift for Retsvidenskab byrjaði 1. janúar þ. á. 35. árið. það kemur út í 4 heftum á ári, en stundum eru 2 hefti lögð saman, og svo er um 1. og 2. hefti yfir- standandi árgangs. pau ei*u um 14 arkir eða 216 bls. Ijangmesti hlutinn, um 178 bls., er minningarritgerðir um fyrrum prófessor, síðar ráðherra og sendiherra Prancis Hagerup, sem var aðalritstjóri tímaritsins frá upphafi þess 1888 og til dánardags 8. febr. 1921, og einn meðal mestu lögfræðinga Norðurlanda á sinni tíð, skrifaði meira og minna um nálega allar greinir lögfræðinnar og var einkar laginn á ljósa framsetningu. 38 síðustu blaðsíð- urnar eru upphaf ritgerðar: „Indledning til Studiet af den almindelige Retslære“, sem Hagerup hafði byrjað á, en lést frá. Aðalminningarritgerðin er eftir prófessor Frederik Stang í Kristíaníu, sem nú hefir tekið við aðalritstjórn tímaritsins. Auk próf. Stangs sitja nú í ritstjórninni: Herman Scheel, forseti í hæstarétti Norðmanna, dönsku prófessorarnir Franz Dahl og C a r 1 T o r p og Svíarnir, hæstaréttardómari A 1 b e r t K ö r s n e r og prófessor Östen Unden. Tímaritið hefir, auk vísindalegra ritgerða, árlega ílutt yfirlit yfir norræn lög og helstu lög annara landa, skýrslu um útkomnar norrænar lagabækur og yfirlit yfir merka dóma norrænu hæsturéttanna. það er því nauðsynlegt hverjum lagamanni, sem hafa vill kynni af norrænni lagasetningu og lagameðferð og af norrænni lögfræði. Tímaritið, sem er um 30 arkir á ári og útgefið af „Den Stangske Stiftelse“ í Kristíaníu, er, vegna gengis- ins, hentast að kaupa hjá bókaverslun H. Aschehoug & Co. 30 árgangarnir framan af þvi kosta samtals 150 kr., en hver hinna 12 kr. Eg veit af 2 heilum eintökum hér á landi, öðru í lagadeild Iláskólans og hinu í eign ein- staklings. Svo munu 2 af gömlu amtsbókasöfnunum eiga sitt eintakið hvort, en í eintak Landsbókasafnsins mun vanta 7 síðustu árgangana, Vitanlega er tímarit þetta of dýrt til þess að margir

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.