Búnaðarrit - 01.01.1910, Page 262
258
BÚNAÐARRIT.
er of þung til þess. Reynd hér nokkrum sinnum (sjá
Búnaðarrit 22. ár, bls. 324). Innkaupsverð 195 kr.
„Rakstrarlcona“. Ljár með grind upp af bakkanum;
á hún að sópa heyinu úr Ijáfárinu. Gerð af Sigurði
Ólafssyni bónda á Hellulandi í Skagafirði. Verð 2,75 kr.
Hestahrífa með tveim bjólum og 26 tindum; frá
H. Th. Buchstrups Maskinforretning í Randers. Breidd
hrífufarsins 4 álnir (sjá Búnaðarrit XXI, bls. 61—62).
Innkaupsverð 55 kr.
Hestahrífa hjólalaus, með stýrisskafti. Er notuð til
að raka með bygg og hafragras og til að ýta saman
heyi. Verð 12 kr.
Hrífuhausar 4, frá P. C. Söndborgs Maskinsnedkeri
í Kaupmannahöfn, óheflaðir. Verðið misjafnt, hundraðið
af sumum kostaði 19,50 kr., en af öðrum 9,50 kr.
Ilverfisteinn með fótstigi og góðum umbúnaði eftir
Guttorm Jónsson frá Hjarðarholti. Verð 30 kr.
Hverfisteinsásar frá sama manni, fjörir að tölu, tveir
með fótsveifum og tveir með handsveifum. Verð 3—5 kr.
Ljáaklappa stigin, frá sama manni. Verð 50 kr.
Ljáaklappa lítil, frá sama manni. Verð 12 kr.
Aktygi á tvo hesta, gerð af Sigurði Sölvasyni; am-
erískt snið, vandað og laglegt. Verð 120 kr.
Reipi 3 pör, fléttuð úr kaðli. Með blýhólkum í
stað haglda.
Klyfberar. Annar þeirra með klökkum á völtum,
svo hleypa megi niður án þess að þurfa að taka bagg-
ana upp.
Súrheysliitamœlir frá Kornelíus Knudsen í Kaup-
mannahöfn. Messingumgerð um mælinn. Innkaupsverð
20 kr.
Heystunguhnífur frá Sigurði Sigurðssyni smið á
Akureyri, til að leysa hey í hlöðum. Verð 4,50 kr.
Súrheys-liitamælar frá sama. Verð 8 kr.
Kúábönd úr járnhlekkjum.
Ærmjáltafata smíðuð af Pétri blikksmið Jónssyni