Melkorka - 01.05.1944, Blaðsíða 26

Melkorka - 01.05.1944, Blaðsíða 26
 Kvenfélögin og menningarbarátta þjóðarinnar Ejtir Herdísi Jakobsdóttur, jorm. Sambands sunnlenzkra kvenna Á tímamótum sem þessum er ástæða til að líta til baka. Það er alveg undantekningarlaust, að í hvert skipti sem íslenzka þjóðin í heild hefur náð nýjum áfanga á leiðinni til frelsis og sjálfstæðis, þá hefur skapazt menn- ingaralda, sem flætt hefur yfir þjóðlífið, og borið með sér fræ, sem að vísu hafa fallið í misjafnlega frjóan jarðveg. — Ég ætla þá fyrst að nefna þjóðhátíðina 1874, þegar Kristján konungur IX. færði okkur „frelsisskrá í föður hendi“ eins og skáldið orðaði það. Við lítum í anda úrval íslenzkra bænda — fulltrúa þjóðarinnar frá öllum sýslum landsins — saman komna við hátíðahöldin á Þingvöllum. Margur góður íslenzkur alþýðumaður, ungur bóndi, sneri þaðan heim aftur full- ur af eldmóði til umbóta og menningar. Kvenna er lítt getið í sambandi við þjóðhátíðina. Um þessar mundir er þó farið að hugsa um að hefja konurnar dálítið upp úr öskustónni. — Kvennaskóli Reykjavíkur er stofnað- ur að mestu fyrir forgöngu ágætra kvenna, frú Thoru Melsteð o. fl. Hann tekur til starfa haustið fyrir þjóð- hátíðina, 1873. Ég tel engum vafa bundið, að þarna vaknaði kvennaskólahugmynd norðlenzku bændanna, því næsta ár á eftir koma þeir upp skólum, fyrst þannig, að skólahald fór fram á tveimur heimilum í Húnavatnssýslu, sinn vetur á hverju, fyrir forgöngu hjónanna á hverjum stað — en svo komu þeir upp kvennaskólanum á Ytri- Ey, sem síðar var fluttur að Blönduósi. En Þingeyingar og Eyfirðingar stofnuðu kvennaskólann á Laugalandi 1876. Næst vil ég nefna almenna vakningu, sem varð í ís- lenzku þjóðlífi um aldamótin síðustu. Þá höfðu marg- ar ágætar konur náð viðurkenningu, ekki síður af körlum en konum. En vel að merkja: þær komu frá skólunum. Frá Laugalandsskóla voru þær frú Bríet Bjamhéðinsdóttir og frú Sigurlaug Knudsen, báðar við- urkenndar gáfukonur og góðum hæfileikum gæddar. — Skáldin sungu líf og kraft í þjóðina um þessar mundir, samanber aldamótaljóð þeirra Hannesar Iíafsteins og Einars Benediktssonar. Á seinasta fjórðungi 19. aldarinnar fer allverulega að bera á margvíslegri starfsemi kvenna; þær stofna félög víðsvegar um landið, þá byrja þær að gefa út kvenna- blöð, frú Bríet í Reykjavík og frú Sigríður Þorsteins- dóttir á Seyðisfirði blaðið „Framsókn“ — hvorttveggja ágætis blöð. Þá kom fyrst út ritverk eftir konu, það er frú Torfhildi Ilolm. Þá eru þær fósturmæðgurnar frk. Þorbjörg Sveinsdóttir (föðursystir Einars Ben. skálds) og Ólafía Jóhannsdóttir, bráðgáfaðar konur, þjóðfrægar og meira til. — Áhugamál þeirra var að koma upp inn- lendum háskóla. Fyrir því beittu þær sér með eldmóði, og árið 1894 er stofnað fyrir þeirra forgöngu „Hið ís- lenzka kvenfélag", með deildum út um land, og hlut- verk félagsins er þá fyrst og fremst háskólamálið, að berjast fyrir framgangi þess, því með því að innlendur háskóli kæmi upp í landinu, væri komið í veg fyrir, að ungir, íslenzkir námsmenn töpuðust í Hafnarsollinn, eins og mikil brögð voru þá að. Upp úr þessum síðustu aldamótum fjölgaði kvenfé- lögum og konur fóru yfirleitt að verða djarfari til ým- issa starfa. — Krafan um jafnrétti karls og konu fór að verða ákveðnari, eftir því sem betur kom í ljós, að þær gátu lært, ef þeim gafst kostur á því. — Með ung- mennafélags-hreyfingunni 1906 kom samvinna kvenna og karla í félagsskap fyrst fyrir alvöru, að vísu fyrr með Góðtemplarareglunni 1884. Ég hef aðeins stiklað á sögu þessa máls með því að fara fljótt yfir. Þjóðin hefur, sem betur fer, átt marga ágæta menn, sem voru svo glöggskyggnir að sjá, að kon- an verðskuldaði að verða fullkomlega frjáls vera, sem átti fullan rétt til jafns við manninn til menntunar og menningar; sumir þeirra eru þjóðkunnir, eins og Hann- es Hafstein og Skúli Thoroddsen, en þeir voru fleiri hér og þar um landið, sem fylgdu jafnréttismálum kvenna, það fann frú Bríet fljótt á fyrirlestraferðum sínum út um landið, að karlmennina þurfti hún fyrst að fá til fylgis við jafnréttismálið; það var hvoru- tveggja, að framkvæmdavaldið var hjá þeim, og hitt, að sakir alda gamallar venju, voru konur yfirleitt sein- ar að átta sig á nýbreytninni. — Það var mikill við- burður í Reykjavík, sem vakti undrun og eftirtekt, þegar frú Bríet (þá óþekkt sveitastúlka) flutti sinn fyrsta fyrirlestur, „Um jrelsi og menntun kvenna“, veturinn 1887. En frá þeim tíma bar hún höfuð yfir allar íslenzk- ar konur í framkvæmdum þessa máls, að vinna að því 22 MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.