Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Blaðsíða 59

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Blaðsíða 59
59 JÓNA GUÐBJÖRG TORFADÓTTIR, hAFDÍS INGvARSDÓTTIR orða: „Ég nenni ekki að leggja mig fram við fög sem eru kennd af fávitum.“ Það er óhætt að segja að mér hafi brugðið þegar ég las þessi meinfýsnu orð og m.a.s. svo að það skyggði á önnur svör nemendanna. Það vildi svo til að þó að öll svör nemenda væru nafnlaus þá blasti oftast við mér hver höfundurinn væri, því ég þekkti orðið bæði orðfæri þeirra og rithönd. Ég var mjög undrandi á því að þessi ummæli kæmu frá nemanda sem er bæði kurteis og augljóslega vel gefinn en á hinn bóginn olli hann mér nokkrum áhyggjum því hann sinnti illa náminu. Ég ákvað að láta þessi ummæli, sem mér féllu svo þungt, ekki hafa nein áhrif á samskipti mín við nemandann og leit- aðist þeim mun meira við að ná betur til hans. Undir lok annar þekkti ég aftur netta og laglega rithöndina úr svörum nemenda minna við síðustu spurningunni sem ég lagði fyrir þá. Í það skiptið bað ég nemendur um að gefa mér einhver ráð til þess að bæta samskipti mín við þá. Svar þessa títtnefnda nemanda var í það sinnið: „Þú stendur þig vel.“ vissulega er þetta árétting þess að svör nemenda eru öðrum þræði dagsform, þau eru fyrst og fremst til marks um líðan þeirra og skoðanir þann daginn sem spurn- ingarnar eru lagðar fyrir. Það breytir því þó ekki að þetta svar yljar mér enn. Þessi ummæli nemandans, sem að framan greinir, eru eitt dæmi um óvænt atvik sem hafði svo mikil áhrif á mig að ég veitti öðrum svörum nemenda minna ekki til- skilda athygli. Svörin voru ennfremur á frekar almennum nótum svo að ég gat ekki verið fyllilega viss um hvað ég gæti tekið beinlínis til mín. Mér fannst ég líka sýna nemendum mínum fulla virðingu. Ég leitaðist við að skýra alla mína breytni fyrir nemendum og svara öllum spurningum þeirra sem komu inn á borð til mín, jafnvel spurningum sem vörðuðu mína persónulegu hagi. Eftir á að hyggja hefur mér þó ekki tekist sem skyldi að bregðast við eins og ég hefði viljað, þ.e. að beita virkri hlustun í samræðum mínum við nemendur og heyra hvað þeir voru virkilega að reyna að segja mér, og m.a.s. ítrekað. Það kunna nemendur vel að hafa upplifað sem einhvers konar virðingarleysi gagnvart þeim. Einn nemandi tók prýðilegt dæmi sem beindist sann- arlega að mér: virðing merkir það að koma vel fram við hvort annað og virða skoðanir hvors annars og taka tillit til hvors annars. D[æmi]: Kennarinn á að taka tillit til þess að nemendur hafa mikið að gera og vera sveigjanlegur í dagsetningum og skilum á prófum og verkefnum. Þó svo að það þýði að við drögumst aðeins aftur úr í þessari margumtöluðu „kennsluáætlun“. Þessi ummæli nemandans eru verð allrar athygli því hér er komin fram rödd sem varð mun háværari er á leið önnina. Hér ber kennsluáætlun fyrst á góma samkvæmt mínu bókhaldi, en oft síðan, og einkum þegar á leið skólaárið. Síðasta spurningin sem ég lagði fyrir nemendur mína, í lok síðustu kennslustundar fyrir páskafrí, varðaði beinlínis samskipti okkar. Þar spurði ég nemendurna hvaða ráð þeir gætu gefið mér til þess að bæta samskiptin við þá. Þrettán nemendur gáfu mér ráð. Helstu ráðin voru að fylgja ekki kennslu- og námsáætlun (7) og reglum (5) í hví- vetna, sýna meiri ákveðni, aga og sjálfstæði (7), vera ekki jafnströng og ósveigjanleg (6) og hafa meira samráð við nemendur (3). Svör nemenda voru á þessum nótum: Hafa meira samráð við nemendur. Ekki fylgja námsáætlun svona mikið. Þarf ekki alltaf að fylgja öllum reglum. vera kannski svolítið ákveðnari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.