Búnaðarrit - 01.01.1975, Page 135
SKÝRSLUR STARFSMANNA
107
Scott frá Bretlandi, sláturhús S. S. á Selfossi og nokkra
bændur í ölfusi og Grafningi. Lennard Scott, sem er
bóndasonur, lífefnafræðingur og fóðurfræðingur og upp-
alinn við sauðfjárbúskap, virtist liafa ánægju af að kynn-
ast okkar viðliorfum í fjárrækt. Ég bafði gagn og gaman
af, livað okkar f jármennska og fóðrun virðist falla sam-
an við hans reynslu og vísindalegar niðurstöður í fóðrun.
Ferðadagar í starfi urðu 83 á árinu.
Skrifstofan. Þar voru störf svipuð og áður, persónuleg
viðtöl, skýrslugerðir, yfirfarin erindi, framsend af stjórn
Búnaðarfélags Islands og landbúnaðarráðuneyti, unnin
fjölrit og töflur til útdeilingar á meðal bænda og ráðu-
nauta, samtöl og skriflir. Ég skrifaði, auk starfsskýrslu
og fréttatilkynninga til fjölmiðla og blaðagreina, 4 grein-
ar um sauðfjársýningar í Búnaðarrit 1974 og eina grein í
Frey.
önnur störf. Búnaðarþing 1974 fól mér störf í eftir-
töldum nefndum: Böðunarnefnd, útvarpsfræðslunefnd og
verðlagsnefnd á lieimaunnu prjónlesi. I nefnd um sauð-
fjárbaðanir áttu sæti auk undirritaðs Sigurður J. Líndal
á Lækjamóti og Páll A. Pálsson, yfirdýralæknir. Nefnd-
in liefur lokið störfum og sent frumvarp til laga um sauð-
fjárbaðanir til stjórnar Búnaðarfélagsins. 1 útvarps-
fræðslunefnd eiga sæti auk mín Agnar Guðnason, ráðu-
nautur, og Árni Jónasson, erindreki Stéttarsambands
bænda. Ilef ég annazt þáttinn „Spjallað við bændur“,
síðan Búnaðarþingi 1974 lauk, að einuni þriðja hluta. 1
samstarfsnefnd Kvenfélagasambands Islands og Búnðar-
félags Islands um afskipti á verðlagi á beimaunnu prjón-
lesi áttu sæti Sigurveig Sigurðardóttir, varaformaður K. 1.,
Selfossi, Margrét S. Einarsdóttir, meðstjórnandi K. í.,
Reykjavík, Jóhann Ólafsson, fulltrúi, Búreikningastofu
landbúnaðarins, og undirritaður. Ég kallaði nefndina
saman til 1. fundar 11. júní, og var Jóhann kjörinn rit-
ari nefndarinnar. Nefndin hélt 4 fundi, og nefndarmenn
kynntu sér ítarlega viðliorf mála hjá kaupendum, dreif-