Búnaðarrit - 01.01.1977, Síða 49
SKÝRSLUK STARFSMANNA
43
aðkallandi fyrir bændur, sem garðrækt stunda að liyggja að
aðgerðum, til að draga sem mest úr álirifum neikvæðra nátt-
úruafla. Tel ég t. d. að einhverjir Þykkbæingar þyrftu nauð-
synlega að ríða á vaðið og kanna möguleika á ræktun skjól-
gróðurs, s. s. fljótsprottnar víðitegundir. Eins skal bent á skjól-
net úr plasti, sem fáanleg eru í mismunandi þéttleikalilutföllum.
Slík plastskjólnet eru víða notuð á næðingssömum grænmetis-
ökrum erlendis, og gætu liugsanlega komið hér að verulegu
gagni á opnu landi.
Umrædd skjólnet eru að vísu nokkuð dýr, en reynsla er-
lendis sýnir, að ekkert vafainál er um notkun þeirra, þar sem
ræktun matjurta er stunduð og |iar, sem því verður ekki komið
við að rækta skjólgróður.
Áætlað hefur verið að heildarkartöfluframleiðslan haíi
numið um 70.000—75.000 tunnum, en þar af er talið að heimilis-
garðrækt liaíi skilað nálægt 20.000 tunnum.
Þannig er virk þátttaka almennings í þessari ræktun rnikils
virði fyrir þjóðarbúið, og er full ástæða til að livetja til
eflingar á þessu sviði sem og annarrar matjurtarræktar, ekki
sízt vegna þess, að jafnvel þótt illa óri, bregðast sízt heimilis-
garðarnir, svo framarlega sem þeim er sinnt. Þetta sannaðist
nú víða á Suðurlandi, en þar koin afliurða afrakstur upp Vir
sumum smágörðum, sem af kostgæfni hafði verið hirt um.
Spretta annarra matjurtategunda, sem að mestu er stunduð
af garðyrkjubændum, reyndist viðunandi á Suðurlandi, og
þrátt fyrir óþurrka varð uppskera töluvert meiri en árið 1975.
Þannig nam upjiskera gulróta, scm Sölufélag garðyrkjumanna
tók á móti til sölu, 47,1 smál. eða 9,3 smál. umfram árið á
undan. Blómkólsuppskeran nam 26,4 sinál., aukning 9 smál.
Hvítkálsuppskeran nam 141,4 smál. eða 58,4 smál. meira en
1975.
Um uppskerumagn gulrófna er engin árciðanleg vitneskja
fyrir bendi, þar sem inargir ræktendur selja milliliðalaust í
verzlanir cða beint til neytenda. Gulrófur virtust vaxa liægt
framan af sumri. Bórust t. d. pottaræktaðar rófur ekki í
verzlanir fyrr en mjög seint í júlí eða tveim vikum síðar en
vanalega. Hins vegar var haustveðrátta mild, og gulrófur
gátu því sprottið langt fram cftir októbcr. Yafalítið hefur
gulrófnauppskeran orðið mjög góð, þar sein á annað borð