Búnaðarrit - 01.01.1983, Side 69
SKÝRSLUR STARFSMANNA
63
að framan, sá fyrri yfir árið 1981 og sá síðari yfir tímabilið 1.
janúar til 31. október 1982. Þess má geta, að síðustu þrjár
tölurnar í hverri línu eru miðaðar við þau héruð, þar sem
frjótæknar eru búsettir. Vegna viðmiðunar við fyrri ár er
Búnaðarsamband Suðurlands talið sér í töflunni.
Á árinu var hafið tölvuuppgjör á sæðingarskýrslum frá
öllum búnaðarsamböndum öðrum en úr Borgarfirði og
Eyjafirði, þar sem uppgjörið hófst árið áður. Allar tölur
fyrir árið 1982 eru enn bráðabirgðatölur, sem leiðréttar
verða við lokauppgjör. Sú breyting verður nú, að árangur
er gerður upp í tölvunni 60 dögum eftir 1. sæðingu í stað
60—90 áður. Eru kýr því taldar hafa haldið, ef þær koma
ekki til endursæðingar 60 dögum eftir 1. sæðingu.
Búnaðarsamband 1. sæð. 1982 Breyt. frá ’81 % af kúm ’81 1. sæð. 1981 Árangur í % ’81 Árangur f % ’82
Borgarfjarðar . .. 2547 -172 71,4 2719 (209) 74,8 74,3
Snæfellinga .... .. 640 -22 62,7 662 (72) 72,5 72,5
Dalamanna .... .. 378 +86 62,5 292 (47) 83,3 81,5
Vestfjarða .. 584 -12 63,7 596 (31) 77,5 83,1
V.-Húnavatnss. .. 589 +8 68,7 581 (13) 78,5 79,9
A.-Húnavatnss. .. 1011 +43 75,3 968 (55) 75,8 73,3
Skagfirðinga .. .. 2225 +246 83,3 1979 (86) 77,0 75,6
Eyjafjarðar ... .. 5079 -18 79,1 5097 (104) 75,5 72,6
S.-Þingeyinga . .. 1585 -113 70,6 1698 (57) 74,6 75,5
N.-t>ingeyinga 91 -24 65,9 115 (1) 80,7 84,5
Austurlands .. .. 1233 -8 83,1 1241 (61) 75,8 78,3
A.-Skaftfellinga .. 460 -99 78,2 559 (61) 76,5 77,0
Kjalarnesþings .. 398 -13 61,6 411 (1) 78,3 80,7
Alls: 16820 -98 73,7 16918 (798) 75,8 75,2
Suðurlands ... ..10820 -1287 77,8 12107 (286) 72,8 73,5
Samtals: 27640 -1385 75,0 29025 (1084) 74,6 74,5
Á árinu voru fryst 122.968 strá með sæði úr 32 nautum. Um
2,5% þeirra reyndust ekki nothæf vegna þess, að þau
stóðust ekki lágmarkskröfur um gæði við smásjárrannsókn-
ir eftir frystingu. Til geymslu og dreifingar voru tekin