Búnaðarrit - 01.01.1987, Page 35
SKÝRSLURSTARFSMANNA
17
hagfræöiráðunaut, Ævarri Hjartarsyni, ráðunaut, og
Sveinbirni Eyjólfssyni, deildarstjóra í landbúnaðarráðu-
neytinu, að hafa umsjón með ráðstöfun þeirra fjármuna,
sem verja skyldi úr Framleiðnisjóði til stuðnings við þá
bændur, sem verst voru settir, og ganga frá öðrum þeim
málum, er snertu fjárhagslega endurskipulagningu í bú-
rekstri þeirra. Sú vinna þeirra þriggja hefur reynst mikil og
tímafrek og var fyrst að verða lokið undir lok ársins.
Formannafundur búnaðarsambandanna 1986.
í framhaldi af störfum milliþinganefndar um endurskoðun
landbúnaðarlöggjafar og félagskerfis landbúnaðarins, sem
getið er hér að framan, var ákveðið í samráði við undirbún-
ingsnefnd formannafundar að meginefni fundarins yrði að
þessu sinni að ræða um „félagsmál Iandbúnaðarins“. Fund-
arboðunin var í ákveðnu samræmi við þetta og fer hér á
eftir upphaf fundargerðar þar, sem nánar greinir frá boðun
og dagskrá fundarins:
„Formannafundur" 23. febr. 1986.
Að þessu sinni var efni fundarins félagsmál landbúnaðarins
og til fundarins voru boðaðir auk formanna búnaðarsam-
bandanna, búnaðarþingsfulltrúar, framkvæmdastjórar bún-
aðarsambandanna, formenn og/eða framkvæmdastjórn
búgreinafélaganna og skyldra félaga. Pá var eftirtöldum
aðilum boðið að eiga fulltrúa á fundinum: Stéttarsambandi
bænda. Framleiðsluráði landbúnaðarins, landbúnaðarráðu-
neytinu, bændaskólunum og Garðyrkjuskólanum, Rann-
sóknarstofnun landbúnaðarins, Skógrækt ríkisins, Land-
græðslu ríkisins, Veiðimálastofnun og Stofnlánadeild land-
búnaðarins.
Búnaðarmálastjóri gerði í upphafi fundarins grein fyrir
nefnd „til að kanna hvort rétt muni að mynda eina
sameiginlega stjórn allra þeirra þátta, er varða framleiðslu.
3