Búnaðarrit - 01.01.1987, Page 180
162
BÚNAÐARRIT
stjóra og varafiskimálastjóra, sem Fiskiþing kýs. Fiskiþing
situr allt að 6 dögum. 7 fiskifélagsdeildir eða sambönd
kjósa 2 eða 4 fulltrúa hvert, alls 24. Þar við bætast 7
fulltrúar sölusamtaka, sem eru vitaskuld misjafnlega veiga-
mikil, 2 fulltrúar samtaka útvegsmanna og 2 fulltrúar
samtaka sjómanna. Fiskiþing hefur undanfarin ár fjallað
um fiskveiðistjórn. Um hana hafa verið skiptar skoðanir,
en stjórnvöld hafa farið eftir samþykktum fiskiþings, enda
einnig mjög skiptar skoðanir um fiskveiðistjórn innan
flokka alþingis. — Fiskifélag fær ríkisframlag til starfsemi
sinnar.
Kirkjuþing situr samkvæmt landslögum. Það er skipað 22
mönnum, biskupi og kirkjumálaráðherra eða fulltrúa hans
og 20 kjörnum fulltrúum. 18 fulltrúar eru kosnir í 8
kjördæmum, sem mynduð eru úr 1—3 prófastsdæmum, 2 í
hverju, nema 4 í Reykjavík. Er annar prestur kosinn af
prestum og próföstum, en hinn leikmaður kosinn af safnað-
arstjórnum. Guðfræðideild á einn fulltrúa á kirkjuþingi og
guðfræðingar í sérstökum verkefnum þjóðkirkjunnar
annan.
Þrátt fyrir það að kirkjuþing starfar samkvæmt lands-
lögum, hefur alþingi ekki farið að vilja kirkjuþings í ýmsum
efnum, m.a. því máli, sem kirkjuþing hefur lengi lagt kapp
á, breytingu á veitingu prestsembætta.
Kirkjuþing fjallar um mál félagsskapar, þjóðkirkjunnar,
sem mönnum er frjálst að standa utan við. Þjóðkirkjan
starfar að mestu fyrir ríkisfé, eins og Búnaðarfélag íslands,
og henni er falin með lögum framkvæmd mála, eins og
Búnaðarfélaginu.
4. Hlutverk stjórnvalda og bændasamtaka
Viðfangsefni Stéttarsambands bænda og Búnaðarfélags
Islands hafa í aðalatriðum veriö ólík, þótt hvor iveggja
samtökin séu byggð á sama grunni, búnaðarfélögum sveit-
anna. Skilin hafa samt ekki alltaf verið skýr. Búnaðarþing