Búnaðarrit - 01.01.1987, Page 197
BÚNAÐARÞING
179
getur boðið hverjum sem er þjónustu og húsakynni, sent er
á heimsmælikvarða. Ég bæði þakka og óska öllum, sem
hlut eiga að máli, til hamingju með Bændahöllina.
— Gifta fylgi húsi þessu. —
Búnaðarþing þetta er fyrsta þing á nýju kjörtímabili. Það
eru miklar mannabreytinar á þinginu frá því í fyrra. Ég
minnist þeirra, sem hættir eru, með virðingu og þakka þeim
vel unnin störf.
Ég býð ykkur, sem nú eruð kjörnir þingfulltrúar, vel-
komna til Búnaðarþings, sérstaklega þá, sem hér mæta í
fyrsta sinn, en þeir eru 9 talsins og þar á meðal 2 konur, þær
Annabella Harðardóttir og Ágústa Þorkelsdóttir, sent
báðar eru þær fyrstu konur, sem kjörnar eru sem aðalfull-
trúar á Búnaðarþing, en áður hefur kona mætt sem vara-
fulltrúi.
Góðir þingfulltrúar.
Um þessar mundir er margt ritað og rætt um landbúnað-
inn. Hann er í brennidepli. Það verða mörg og þýðingar-
mikil mál lögð fyrir þetta Búnaðarþing, svo að nóg verður
að gera, en af fyrri reynslu veit ég, að þið kryfjið málin til
mergjar og bendið á margt, sem betur má fara og til heilla
horfir. Af ásettu ráði hef ég ekki rætt mikið um vandamál
landbúnaðarins nú, en ég veit að þau berast á borð ykkar
og koma til afgreiðslu. Ég óska ykkur góðs gengis í störfum.
Góðir gestir.
Mér hefur að þessu sinni orðið tíðrætt um stofnun og
störf Búnaðarfélags íslands, sem nú er 150 ára. Það tók
langan tíma fyrir félagið að komast á legg og verða virki-
legur aflgjafi í búnaðarmálum. Búnaðarfélagið er það
víðfeðmt, að þar geta allir, sem vilja, starfað að ntálefnum
landbúnaðarins á félagslegum grunni. Staða landbúnaðar-
ins er þannig í dag, að bændum veitir ekki af að standa
saman um málefni sín og styrkja á þann hátt landbúnaðinn,
sem á í vök að verjast. Að þessu sinni finnst mér rétt að