Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 70
66
BÚNAÐARRIT
Jörðin undir vikurlaginu var í rót með eðlilegum
lit. Þar sem tilfok hefur orðið, einkum á þeim stöð-
um, þar sem vikurinn er grófastur, hefur rótin vitan-
lega svarfast nokkuð og má búast við að áframhald-
andi fok eyðileggi það veikgerðasta af túnjurtunum,
svo sem sumar þær grastegundir, sem ekki eru rót-
sterkar. Hins vegar má gera ráð fyrir, þótt rótin gisni
í bili, að þá lifi rætur og rótarsprotar svo gróðurinn
nái sér, fái landið áburð, en vænta má á öllum túnum,
jafnvel þó hreinsuð yrðu, að á þeim verði stórfelld
eftirtekjurýrnun á næsta sumri. Eins og síðar verður
vikið að, verður að gera ráð fyrir, að sumt af tún-
unum verði að endurrækta. Engjar og úthagi bíða
einnig mikinn hnekki af völdum öskufallsins. Þar,
sem raklent er, tekur landið að vísu á móti allmiklu
af fíngerðri ösku, án þess tjón hljótist af, og gæti
síðar orðið landinu til bóta, en það er ljóst, að megin-
hluti engja á öskufallssvæðinu verður eklci nytjaður
til slægna í sumar, nema mjög takmarkaðir blettir,
þó má vænta, að mýrlendi nái sér fljótar en vall-
lendis engjar.
Af því, sem hér segir, lítur nefndin svo á, sam-
kvæmt þeim bráðabirgðaathugunum, sem liún hefur
gert:
1. Að enn hafi ekki orðið vart við að gróður hafi
eyðilagst fyrir bein áhrif öskufallsins, hvorki af
hita né eituráhrifum.
2. Að vikurfokið hafi nú þegar valdið skemmdum
vegna þess, að það svarfar rótina, og þess megi
vænta, að þegar gróður fari að lifna, þá bíði ný-
græðingurinn verulegan hneklci af þessum ástæð-
unr einum.
3. Að á 6 jörðum sé vikurmagnið það mikið, að vart
megi telja framkvæmanlega hreinsun svo nokkru
verulegu nemi, og virðist því að lielzt komi til
greina tilfærsla á vikrinum til lægða í landinu