Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 19

Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 19
Ver þú heill af meini þínu! Ávarp Péturs Sigurgeirssonar biskups íslands „Fagrir draumar rætast enn!“ - yrkir Davíð Stefánsson frá Fagra- skógi. Sannleiksgildi þeirra orða sjáum við birtast í því mikla átaki sem hér á sér stað og stund í baráttu gegn krabbameini. Skáldið yrkir um sigra á menntabrautinni í skóla- söngnum sem margir kunna. Svo má einnig taka til orða á fleiri framfara- brautum. í líknarmálum hefir þjóðin fagnað mörgum sigrum. Bætt að- staða til lækninga olli straumhvörf- um í glímu við erfiða sjúkdóma. Þessi 31. dagur ágústmánaðar er slíkur sigurdagur. Flin nýja lækningamiðstöð er fag- ur vottur um samstillt átak þjóðar- innar. Hér fögnum við brennandi áhuga sem brautryðjendur vöktu, bjartsýni, vísindum og tækni, — fórnfýsi og hæfni lækna, hjúkrunar- fólks og áhugamanna, — og svo mætti áfram telja. Margir hafa lagt hönd á plóginn. Hér á hver sitt verk, sína náðargáfu. Um gáfurnar og hæfileikana segir í Pálsbréfum: Mis- munur er á náðargáfum en andinn hinn sami. Andinn opinberast í sér- hverjum til þess sem gagnlegt er. (1. Kor. 12). Sá andi og það afl sem að veröld- inni stendur og í henni ríkir starfar Hús Krabbameins- félagsins 1. hæð: Fræðsla Sjúldmgasamtök Skrifstofur. 2. hæð: Leitarstöð 3. hæð: Frumuraimsóknastofa Krabbameinsskrá okkur til góðs. „Guð er hinn sami sem öllu kemur til leiðar í öllum“, — eins og postulinn orðar það. Þessi kenning kristallast í orðum Jesú, Meistarans mikla, er hann sagði: „Ég er kominn til þess að þeir hafi líf“. (Jóh. 10:10). Eitt sinn var ég í prestsstarfi mínu kvaddur til þess að skíra nýfætt barn er virtist að dauða komið. Eftir skírnina, sem fór fram á barnadeild spítalans, hitti ég barnalækninn að máli og við ræddum saman um líðan barnsins. Ég spurði lækninn hvort hann hefði von um að barnið myndi lifa. Svarinu gleymi ég ekki. Læknir- inn varð hugsi en sagði síðan: „Ef við ættum ekki von, þá værum við ekki hér“. Sams konar svar heyri ég með innri eyrunt í þessu höfuðvígi í sókn og vörn gegn hinum skaðvæna sjúk- dómi. Við værum ekki hér stödd ef ekki væri lifandi og starfandi vonin um lækningu og líf. Þessi bjarta og óbifanlega von lýsir skært í dag. „Magna est animi diu sperare“, mælti Tacitus forðum, — sem þýðir: „Einkenni göfuglyndis er að vona lengi“. Ég lýsi blessun Drottins yfir húsið og búnað þess, yfir starfsemina og starfsfólkið — já, ykkur öll. Hér lýtur allt einum vilja Guðs og manna, að draumur sjúklingsins megi rætast: Ver þú heill af meini þínu! HEILBRIGÐISMAL 3/1984 19

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.