Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.01.2010, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 05.01.2010, Qupperneq 22
 5. JANÚAR 2010 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● heilsa Hallgerður Kata Óðinsdóttir fer í lengri og styttri göngu- ferðir með litríkum hópi hunda og manna. Hallgerður Kata, sem ávallt er kölluð Kata, á hundinn Móra af tegundinni australian shepard, og hefur um nokkurt skeið stundað hundafimi með hann. „Gönguhóp- urinn var síðan stofnaður í kring- um hundafimina til að við sem hana stundum gætum gert meira saman,“ segir Kata enda segir hún fólkið í hópnum skemmtilegt auk þess sem áhugamálið tengi þau saman. „Nýlega opnuðum við þó hópinn þannig að fleiri gætu komið með okkur þótt þeir æfðu ekki,“ segir hún. Það er því nokkuð stór hópur hundaeigenda og hunda sem töltir vikulega um fjöll og grundir. Kata segir fjölda þeirra sem fari í göng- urnar hverju sinni æði misjafnan. „Við erum allt frá þremur og upp í tuttugu manns. Ég sendi út upp- lýsingar á póstlista um hvert skuli haldið hverju sinni, hvað gangan er löng og erfið og fólk mætir ef það hefur áhuga á,“ segir hún en göngurnar eru misjafnlega erfið- ar. „Við höfum bæði farið auðveld- ar göngur í kringum Hvaleyrar- vatn og Rauðavatn en einnig lengri göngur eins og um Sölvhólsgötuna, upp á Vífilsfell, Keili, Helgafell og Esjuna.“ Í hundahópnum eru fjölmarg- ar hundategundir, allt frá stór- um husky- og rottweiler-hundum til lítilla cavalier- og chihuahua- hunda. Hundarnir eru bæði gelt- ir og ógeltir en Kata segir samt aldrei neitt hafa komið upp á og hafi allir hundarnir mjög gaman af þessari útiveru með öðrum fjór- fætlingum. Hundarnir hlaupa frjálsir með hópnum en Kata tekur fram að tekið sé tillit til annars útivist- arfólks. „Við víkjum úr vegi með hundana og leyfum fólki að labba fram hjá.“ Annars segir hún fólk almennt hafa gaman af þessu, sér- staklega veki þeir hundar athygli sem beri sjálfir farangur í bakpok- um á bakinu. Hún bætir við að slíkar göngur geri hundunum mjög gott og tekur dæmi. „Í hundafiminni var fólk sem átti tík sem var bæði feimin og hrædd við aðra hunda. Þau höfðu ekki þorað að koma með hana í göngu en slógu svo til. Tíkin var mjög hrædd til að byrja með, vék ekki frá eigendum sínum en um miðbik göngunnar var hún farin að hlaupa með hinum hundunum og eigendurnir voru rosalega ánægð- ir. Því má segja að slíkar göngur séu nokkurs konar meðferð fyrir hundana sem læra að umgangast aðra hunda.“ En hvað með hreyfingu eigend- anna? „Jú, auðvitað er þetta mikil hreyfing fyrir okkur líka, en svo er líka bara skemmtilegt að hitta fólk með sama áhugamál,“ segir Kata og er rokin út að viðra Móra. - sg Hundahópur á fjöllum Fríður hundahópur á toppi Úlfarsfells. MYND/GKJ Gangan styrkir lund og þol bæði hunda og fólks. MYND/GKJ Hallgerður Kata Óðinsdóttir með hundinn sinn Móra við Vigdísarvelli í Hafnarfirði. MYND/GUÐRÚN KATRÍN JÓHANNSDÓTTIR Fjölbreyttar hundategundir eru hluti af gönguhópnum, allt frá chihuahua til rott- weiler og husky. Hveitikím Fæst í flestum matvöruverslunum Inniheldur 28% prótein Ríkt af andoxunarefnum og Omega-3 fitusýrum Einstaklega trefjaríkt Eykur uppbyggingu vöðva Bætir meltinguna Frábær og auðveld viðbót í heilsuboostið Próteinrík og heilnæm fæða Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.