Fréttablaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 70
42 30. janúar 2010 LAUGARDAGUR utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson Snillingurinn John Galliano fékk gesti á tískuvikunni í París til að grípa andann á lofti yfir stórfenglegri „haute couture“-sýningu sinni í vikunni. Fyrirsætur voru klæddar í föt sem myndu passa í kvikmynd um fyrsta áratug tuttugustu aldarinnar á hefðar- setri í Englandi. Línan var samansett af glæsilegum gam- aldags síðkjólum úr silki og satíni, aðsniðnum jökkum með reiðsniði við síð pils og stígvél og fallegum silkiblússum. Hvert smáatriði var úthugsað, allt frá gamaldags hárgreiðsl- um upp í ótrúlega fallega förðun eftir Pat McGrath en fyrirsæturnar voru með postulínshvíta húð og mattar rauðar varir. Hattarnir komu úr smiðju Stephen Jones og sviðsmyndin eftir Michael Howells en þar gaf að líta þrjú þúsund risavaxnar og pastellitaðar rósir. STÁSSLEGAR HEFÐARMEYJAR REIÐTÍSKA Pípuhattur og rauður reiðjakki í anda breskrar hefðar. DÁSAMLEGA DRAMATÍSKT Kóngablár og grár kjóll. AÐSNIÐIÐ Flottur svartur reiðjakki við sítt pils og stígvél. BLÚNDUR Hvítur og gamaldags kjóll með blúndum eftir Gallia- no hjá Dior. ÓTRÚLEG SMÁATRIÐI Stórfenglegur síðkjóll úr smiðju Galli- anos. Æðislegt nýtt lip „glass“ varagloss frá Mac í ekta Brigitte Bardot-lit. Nýja Hydrationist rakagelið frá Estée Lauder sem ætti að bjarga allri vetrar- þurrkaðri húð. Þennan flotta stutta kjól með göddum frá nýju línu E-label. OKKUR LANGAR Í … Stundum er gífurlega hressandi að lesa um Ísland séð frá annarra augum. Það er jafn nauðsynlegt að hlusta á hvað útlendingum finnst um Ísland og það er að skreppa til útlanda og anda að sér öðruvísi lykt- andi lofti. Ég vann eitt sinn heillengi á tímaritinu Iceland Review hér í borg og fannst einmitt mjög skemmtilegt að lesa pistla eftir útlend- inga sem þar unnu. Oftast man ég þó að Íslendingum þóttu þeir svaka- lega neikvæðir og gagnrýnir og glataðir, sennilega vegna þess við Íslendingar kunnum ekkert sérlega vel að meta hæðni og höfum ekki mikinn húmor fyrir okkur sjálfum. Ég flissaði mikið yfir pistli á Iceland Review-vefnum um dag- inn þar sem erlendur blaðamaður fór mikinn um allt „hipp og kúl“ liðið í 101 Reykjavíkur. „Tragi- cally hip“ kallaði hann þetta fólk sem er einmitt vinsælt viðfangsefni allra þeirra blaðamanna sem koma hingað út af Airwaves eða næturlífinu. (Útlendir blaðamenn halda senni- lega að Reykvíkingar einskorðist við litríka liðið sem þeir sjá hanga á kaffihúsum og tónleikum niðri í miðbæ og vita ekki af öllum settlegu húsfrúnum í Fossvoginum sem hafa unun af kokkteilum og þar sem tón- listaráhuginn takmarkast við Katy Melhua). En þessi tiltekni blaðamað- ur skaut hipsterana niður með einum hæðnislegum pistli. Hann talar um fólkið sem þarf alltaf að klæða sig „öðruvísi“ þar til allir líta út fyrir að vera eins, mikilvægi þess að vera alltaf að „gera eitt- hvað skapandi“ (þó að það sé í rauninni ekki að gera neitt), fólkið sem segist alltaf elska þig þegar það hittir þig (en baktalar þig um leið og þú ert farinn), fólkið sem hegðar sér yfirlætislega á bar og lætur eins og það eigi alla borgina og fólkið sem mun aldrei þora að hafa skoðun sem er á skjön við skoðanir hinna hipsteranna. Það er allavega hressandi á meðan allir (og ég er alls ekki saklaus af því) eru að dissa skinkurnar og hnakkana og fólkið sem þykist vera svalara en allir hinir fái endrum og eins á sig jökulkalda gusu. Face! Hipstería Norræna húsið Mánudagur 1. febrúar 2010 Höfundahádegi kl. 12:00 Rithöfundarnir Óskar Guðmundsson og Einar Kárason spjalla um nýútkomna ævisögu Snorra Sturlusonar sem Óskar hefur ritað. Höfundahádegi verða alla mánudaga í febrúar auk 1. mars. Alla daga frá 12-17 Sýning í anddyri: 52 húfur á 52 vikum Sýningin 52 Húfur er afrakstur þess markmiðs sem Edda Lilja Guðmundsdóttir setti sér fyrir árið 2009, að gera 52 húfur á 52 vikum.Skilyrðið var að engar tvær húfur væru eins og að þær væru allar gerðar úr garni sem hún átti til. Edda Lilja mun vera með fyrirlestra og leiðsagnir um sýninguna. Sýningin stendur til 27. febrúar. Alla daga frá 12-17, nema mánudaga Sýning í sýningarsal Norræna hússins: Mótmælandi Íslands Helgi Hóseasson oft kallaður mótmælandi Íslands hefði orðið níræður 21. nóvember síðastliðinn. Helgi sem var smiður og handverksmaður góður, lagði mikla vinnu í skiltin fjölmörgu sem hann mótmælti með en segja má að hvert þeirra sé listaverk út af fyrir sig. Sýningin stendur til 14. febrúar. > HEITT Á KÖNNUNNI Í KRON KRON Aðdáendur hönnuðarins Bernhards Wilhelm munu taka gleði sína í Kron Kron nú um helgina en þar verður slegið upp sérstökum Bernhard Wilhelm-dögum þar sem flíkur eftir hann verða seldar á hálfvirði en meðal annars er hægt að festa kaup á hinum frægu köflóttu og víðu kjólum og skyrtum sem hafa verið afar vinsælar í vetur. Tilboðið stendur yfir fram á næsta miðvikudag og heitt kaffi verður á könnunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.