Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2010 Hjólbarðar eru ekki það fyrsta sem kemur í huga manns þegar hugsað er um listsköpun. Þó eru þeir ófáir listamennirnir sem hafa nýtt sér þetta sérstæða efni til að skapa listaverk og fígúrur. Með ólíkindum er hvernig hægt er að móta hið hvunndagslega dekkjagúmmí í hin stórbrotnustu form, allt frá drekum til hermannaklæða eins og sést á með- fylgjandi myndum. Hekla hefur um árabil boðið upp á vandaða hjólbarða frá heimsþekktum framleiðend- um. Fyrirtækið ætlar að auka úrvalið á ódýrari dekkjum á næstunni og bæta þjónustu frekar við eigendur mótor- hjóla. „Hér bjóðum við upp á breiða línu af dekkjum sem henta við ólíkar aðstæður og ætlum á næstunni að fjölga þeim sem eru í ódýrari kant- inum ásamt því að sinna þeim sem vilja kaupa,“ segir Þorgeir Ragnar Pálsson, vörustjóri hjólbarðadeild- ar Heklu sem hefur síðustu 77 ár séð landsmönnum fyrir vönduðum hjólbörðum. Hekla flytur til landsins dekk frá ýmsum framleiðendum og þeirra þekktastur er vafalaust Goodyear sem Hekla hefur verið með umboð fyrir lengst allra fyr- irtækja í Evrópu eða síðan árið 1952. Spurður hver sé lykillinn að hinu góða og langvinna samstarfi segir Þorgeir að samstarfinu hafi verið sinnt vel og góð tengsl mynd- ast milli fyrirtækjanna. „Við höfum keypt megnið af dekkjunum hjá þeim og þá ekki bara vörur beinlínis undir merkj- um Goodyear heldur af minni og í sumum tilvikum ódýrari fram- leiðendum sem heyra undir fyrir- tækið,“ segir hann og nefnir til sögunnar vörumerki á borð við Sava og Debica, en frá þeim hefur Hekla aðallega flutt til landsins dekk í fólksbílastærðum. Þess utan getur Þorgeir bandaríska framleiðandans Mickey Thomp- son, en jeppadekk frá fyrirtækinu og einnig Goodyear hafa um langt skeið verið vinsæl hérlendis undir breytta og óbreytta jeppa. Mótorhjóladekk standa við- skiptavinum Heklu einnig til boða og ætlar fyrirtækið að leggja meiri áherslu á þau í sumar. „Mikið hefur verið flutt inn af hjólum til lands- ins síðustu árin. Þótt dregið hafi úr innflutningi upp á síðkastið, þá þarf að þjónusta þessa aðila og því ætlum við að sinna vel,“ útskýrir Þorgeir og segir Dunlop vera einn stærsta framleiðanda mótorhjóla- dekkja í heiminum og bjóða upp á breiða línu í kross- og götuhjóla- dekkjum. Að hans sögn eru hjólbarðaverk- stæði um allt land helstu viðskipta- vinir Heklu, en fyrirtækið þjón- ustar einnig einkaaðila og rekur hjólbarðaverkstæði að Klettagörð- um 8. „Þar aðstoðum við eigendur fólksbíla, jeppa og stærri bifreiða, eins og vörubíla, við umfelganir og fleira,“ segir hann og bætir við að fyrir tækið selji líka umfelgunar- og jafnvægisstillingarvélar frá ít- alska framleiðandanum Butler. Goodyear tryggir gæðin og öryggið Að sögn Þorgeirs eru hjólbarðaverkstæði um allt land helstu viðskiptavinir Heklu, en fyrirtækið sinnir einnig einkaaðilum og rekur hjólbarðaverkstæði að Klettagörðum 8. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Listaverk úr hjólbörðum Evrópsk dekk á frábæru verði. Framleidd af Goodyear. Stærðir 13” 14” 15” 16” Verð frá 7.674.- Efficient Grip Frábært dekk þegar kemur að stjórn á blautu jafnt sem þurru undirlagi. Er með umhverfisvottun Svansins sem umhverfis- vænsta dekkið. Eigum til flestar gerðir af götu- og cross dekkjum frá Dunlop. Dunlop er stærsti framleiðandi heims á mótor- hjóladekkjum og leiðandi á þeim markaði. Evrópsk hágæða dekk sem hafa sannað sig á íslenskum markaði. Framleidd af Goodyear. Stærðir 12” - 20” Verð frá 8.565.-

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.