Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 18

Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 18
14 SAMTÍÐIN LEYIMIÞJÓNUSTA ÍSRAELS OG ISER HAREL, SEM SKIPULAGÐI HAIMA OPINBER fréttaþjónusta í heiminum í dag er gífurleg starfsemi. Við kynnumst árangri hennar daglega í blöðum, útvarpi og sjón- varpi og dáumst oft að viðbragðsflýti frétta- mannanna og hinni hraðvirku tækni við miðl- un texta og mynda. Á sviði stjórnmálanna finnst mörgum hin opinbera fréttaþjónusta samt fremur ófull- komin. En til þess virðist ætlazt, að svo sé. Fréttamönnum er því ekki um þetta að kenna. Póltík er í eðli sínu fremur ljósfælin starf- semi, sem rekin er mikinn part að tjalda- baki. Því eru opinberar pólitískar fréttir alla jafna yfirborðskenndar og í rauninni fremur lítils virði. Úr þessu er reynt að bæta með yfirlits- og skýringagreinum í blöðunum, en oft túlka hinir ágætu greinahöfundar málin þar að vild þjóðar sinnar, flokks síns eða sjálfs sín. Veigamiklar pólitískar upplýsing- ar fara aðrar leiðir en um blöð, útvarp og sjónvarp. Þær fara eftir leyniþráðum njósna- stofnana stórþjóðanna, sem þandir eru eins og geysimiklir kóngulóarvefir um heim allan. Hjá mestu herveldum heimsins er þar um gífurlega starfsemi að ræða. í eftirfarandi línum verður vikið að leyni- þjónustu ísraelsmanna, mjög mikilhæfrar þjóðar, sem býr við fádæma örðug skilyrði í litlu, örðugu landi með óvini að heita má allt um kring. Þessi leyniþjónusta er oftast kölluð Shin Beth, en það eru nöfnin á fremstu bókstöfunum í hebresku orðunum Shirutei Bitachon, sem merkja: öryggisþjónustan. Mörgum stendur ógn af þessari skammstöfun. Sagt er til að mynda, að Adolf Eichmann hafi Heldur en ekki brugðið í brún, þegar njósn- arar ísraelsmanna handtóku hann í Buenos Aires árið 1960. Áður en þeir höfðu sagt orð, stundi hann upp: „Shin Beth“. En víða vekja stafirnir Shin Beth virðingu og aðdáun, því að öryggisþjónusta ísraels- manna er talin ein snjallasta njósnastarfsemi heimsins. Yfir henni hvílir mikil leynd, og al- menningur veit sáralítið um starfsemi henn- ar og starfskrafta. Tveir menn hafa lengst af stjórnað þessari leyniþjónustu: Iser Harel, sem skipulagði hana, og Meir Amit, eftirmaður hans. Þeir hafa nú báðir látið af störfum hjá Shin Beth. Amit hætti þar í september 1968. Hann sagði þá: „Ég læt ósagt, hvort Shin Beth er ein bezta upplýsingaþjónusta heimsins. Um það eru aðrir færari að dæma. Á hinu leikur eng- inn vafi, að öryggi ísraels krefst fyrsta flokks upplýsingaþjónustu. Við verðum alltaf að vera þar feti framar en aðrir og verðum á- vallt að leitast við að finna nýjar og frumleg- ar starfsaðferðir. Það, sem á skortir hjá okk- ur, hvað hernaðarvísindi, landrými og tíma snertir, verðum við að vinna upp með ör- yggisþjónustunni. Hernaðaröryggi okkar byggist á afrekum hennar. Því verðum við að hafa trausta fótfestu í löndum óvina okk- ar.“ Iser Harel sagði: „Upplýsingaþjónusta kommúnistatríkjanna lætur sig minnstu atriði miklu máli skipta. Hún starfar eins og ísrael sé versti óvinur þeirra. Starfsreglur

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.