Fréttablaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 47
FÖSTUDAGUR 15. október 2010 5 Svifvængjasetur Norðurlands er í miðbæ Akureyrar, með aðsetur hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar. Að setrinu stendur ungt fólk með ódrepandi áhuga á svifvængjaflugi og ævintýraþrá í blóðinu. Það hefur meðal annars boðið upp á námskeið í svifvængjaflugi. „Í sumar buðum við upp á nýj- ung, dagsnámskeið í svifvængja- flugi þar sem farið var í undir- stöðuatriði flugsins, hvernig stjórna eigi vængnum frá jörðu og tókum jafnvel nokkur „hólahopp“, svif af hól niður á jafnsléttu á aðeins sex klukkutímum.“ segir Gísli Steinar Jóhannesson, leiðbeinandi hjá Svif- vængjasetrinu, sem segir flug á svifvængjum vera mikið ævintýri og að hann hafi heillast algjörlega strax í fyrsta flugi árið 2008. Hann vill ekki láta titla sig eiganda Svif- vængjasetursins enda sé ekkert að eiga heldur sé þetta félagsskapur fólks sem hafi áhuga á svifvængja- flugi. En hvað kom til að Svifvængja- setrið var sett á stofn? „Þetta er búið að vera vinsælt í Reykjavík í nokkur ár, reyndar gengið nokkuð í bylgjum en nú virðist vera kominn stöðugur hópur sem stundar þetta og þá þótti okkur tímabært að starta námskeið- um hér fyrir norðan. Þetta er líka svo ódýrt sport, bara stofnkostnaður í búnaðinum en hann er nánast við- haldsfrír og sjálft flugið kostar ekki neitt. Tilvalið í kreppunni.“ Nám- skeiðahaldið mun þó liggja niðri í vetur, en Gísli Steinar segir að farið verði af stað af fullum krafti snemma næsta vor. „Það er ekkert gaman að fljúga á svifvængjum á veturna, þótt veðrið sé gott dimmir svo fljótt og maður sér ekki neitt.“ Spurður hvort svifvængjaflug sé ekki hættulegt, segir hann að það geti verið mjög hættulegt ef menn viti ekki hvað þeir eru að gera. „Þess vegna er algjörlega nauðsyn- legt að fara á námskeið og læra réttu aðferðina,“ segir hann. Í svifvængja- félaginu á Akureyri eru fimm virk- ir félagar, en Gísli segist ekki efast um að þeim eigi eftir að fjölga næsta sumar. Starfsemi félagsins sé ekki bundin við Akureyri, nem- endur hafi komið bæði frá Dalvík og Norðfirði og áhuginn sé alltaf að aukast. Kannski Akureyringar stytti sér skammdegið með draumum um svifvængjaflug að vori. fridrikab@frettabladid.is Svifið vængjum þöndum Ungt áhugafólk um svifvængjaflug hefur komið upp Svifvængjasetri á Akureyri og staðið fyrir námskeið- um. „Tilvalið sport í kreppunni,“ segir Gísli Steinar Jóhannesson, leiðbeinandi hjá Svifvængjasetrinu. „Það er algjörlega nauðsynlegt að fara á námskeið og læra réttu aðferðina,“ segir Gísli Steinar. Gísli Steinar Jóhannesson, leiðbeinandi hjá Svifvængja- setrinu á Akureyri, kennir tólf ára syni sínum réttu taktana. Miðasala á www.menningarhus.is og í síma 450-1000 AÐVENTUVEISLA Í HOFI Laugardaginn 4. desember kl: 18:00 Aukatónleikar 5. desember kl: 16:00 Einsöngvarar Diddú og Páll Óskar Stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson Miðaverð í forsölu: 3.200 kr. uppselt www.sinfonianord.is PÉTUR OG ÚLFURINN Í HOFI Miðvikudaginn 27. Október kl: 17:00 Sviðsett með leikbrúðum í samstarfi við Brúðuheima í Borgarnesi og Leikfélag Akureyrar. Miðaverð 1.500 kr. Hótel Íbúðir | Geislagata 8 | 600 Akureyri | sími 8929838 | Netfang: hotelibudir@hotelibudir.is | www.hotelibudir.is Hótelíbúðir í hjarta Akureyrar SALA AÐGÖNGUMIÐA Á WWW.LEIKFELAG.IS WWW.LEIKFELAG.IS NÆSTA SÝNING 16. OKT. Í RÝMINU MIÐASALA Á NETINU: LEIKFELAG.IS NETFANG: MIDASALA@LEIKFELAG.IS Hjaltalín ásamt Kammersveit Sinfóníuhljómsveitar norðurlands flytja efni af metsöluplötunum Sleepdrunk Season og Terminal ennfremur sem þau frumflytja nýtt efni föstudaginn 5. nóvember kl 20.00 Miðasala í Hofi og á midi.is Miðaverð kr.4400 Námsmannatilboð kr.3500 Bitra ehf / Græni Hatturinn kynna með stolti Au glý sin ga sím i Gamli bærinn í Lauf- ási lifnar við á morg- un milli 13.30 og 16, þegar hægt verður að sjá hvernig kindahaus- ar eru sviðnir, smakka reyktan bringukoll og bragða á fjalla- grasaslátri og -súpu. Þá verður slegið upp haustmarkaði og boðið upp á lummu- kaffi í Gamla prests- húsinu. Heimild: www. akureyri.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.