Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Blaðsíða 19

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Blaðsíða 19
Sigurður S. Ólafsson: Frjálsar íbróttir » í K.R Félag vort var orðið stálpaður ung- lingur, næstum tuttugu ára gamalt, er það fyrsl lét frjálsar iþróttir til sín taka. Það var ekki fyr en á aðalfundi félagsins i mars 1919, að Kristján L. Gestsson lireyfði þessu máli og sagði, að „vel mætti nú þegar byrja að æfa hlaup, þar til völlurinn yrði nothæfur lil knattspyrnuæfinga". Benti hann og á það, hve hlaupin væru stórvægilegur þáttur í allri undirbúningsþjálfun, og það ekki síður fyrir knattspyrnumenn en aðra íþróttamenn. I sama streng tóku fleiri félagar, og vildu sumir, að reynt yrði að taka þátt i Viðavangs- hlaupinu. Fundurinn tók vel i þetta mál og var kosin sérstök hlaupanefnd fyrir félagið, sem síðan kom á fót hlaupaæfingum. — Árangur þessarar fyrstu byrjunar varð sá, að KR-ingur- inn Þorgeir Halldórsson tók þátt i Viðavangshlaupinu þetta vor, 1919, og hlaut hann 2. verðlaun, eftir að hafa leitt lilaupið hálfa leið. Var það prýði- leg byrjun, sem örfaði mjög til áfram- lialds. Iíristján Gestsson var þó ekki alls kostar ánægður með áhuga félagsmanna fyrir hlaupunum næsta ár, þvi að um haustið 1920 fékk hann stjórn félagsins til að hoða 30 áhugasömustu menn fé- lagsins á fund með sér, og voru þeir eindregið hvaltir til að æfa hlaup um veturinn, bæði til að skapa sér þol und- ir knattspyrnu næsta sumars, og svo til þess að taka þátt í Víðavangshlaup- inu fyrsta sumardag. 28 þeirra lofuðu að mæta hvernig sem viðraði. Voru æf- ingarnar vel sóttar framan af, cn er á leið veturinn heltust margir úr lest- inni. Þó færðist aftur lif í æfingar, er tók að vora, og kom Kristján því til leiðar, að Iv.R. sendi 8 menn til þátt- töku í Viðavangshlaupinu 1921. — Öll byrjun er erfið, segir máltækið, og það ásannaðist hér. Fyrsti KR-ingur i mark varð 13. í röðinni, og var það Felix Pétursson, en sveit K.lt. hlaut 123 stig og varð síðust. En IvR-ingar létu þetta ekki á sig fá. Þeir voru nú komnir af stað og urðu ekki stöðvaðir undir forystu Krist- jáns Gestssonar, enda var æfingum nú haldið áfram af kappi. — 17. júní þetta sama ár fór fram Leikmót íslands, sem síðar var nefnt Allsherjarmót Í.S.Í., í fyrsta sinni. K.R. sendi sveit i 4x100 metra boðlilaup og setti hún nýtt ísl. met i þessu hlaupi; hljóp á 50.1 sek. Þessir fyrstu methafar Iv.R. voru þeir Björn Steffensen, Einar Waage, Gunnar Schram og Iíristján L. Gestsson. Fékk félagið hikar í verðlaun fyrir metið. Á leikmóti i ágústmánuði setti Kristján nýtt ísl. met í 400 m. hlaupi, er hann hljóp á 50.8 sek. Auk þess sigraði hann í langstökki, en boðhlaupssveitin misti keflið, svo að Ármann vann boðhlaup- ið, en náði þó ekki meti K.R. frá þvi um vorið. Var þá íþróttaárið á enda. En næsta ár var haldið áfram 1922 á söniu braut. — K.R. sendi 0 keppendur í Víðavangshlaupið, og varð KR-sveitin aftur siðust; fékk 120 stig, en nú var fyrsti KR-ingur sá 0. í röðinni. — Á Allsherjarmótið 17. júní sendi K.R. 8 keppendur. Kristján Kristján L. Gestsson. Gesíssoii stóð sig best af þeim og settí tvö ný isl. met. 1 400 metra hlaupi, er hann liljóp á 50.3 sek. og langstökki, stökk 0.20 metra og varð fyrstur Is- lendinga yfir 0 metra. Auk þess hljóp Kristján 200 metra á 24.9 sek. og var það undir meti, en fékk þó bara 3. verðlaun þar. Ármann vann mótið. Árið 1923 hófst með þvi stór- 1923 heillaspori, að líristján Gests- son var kosinn formaður fé- lagsins. Áður hafði hann verið gjald- keri þess i 4 ár. Lét Kristján það verða sitt fyrsta verk, að fá samþykta stór- aukua starfsskrá fyrir félagið, Margar stórmerkar ákvarðauir voru teknar á fyrsta fundi hinnar nýkjörnu stjórnar. Og alt, sem stjórnin setti sér á þess- um fundi, var framkvæmt. Ritari fé- lagsins hefur bókað þetta ár, að hann muni ekki annan jafn mikilsverðan fund í sögu félagsins, og hafði hann þó gegnt þvi starfi í 9 ár. „Stórhugi formanns og gifta þess stórhuga mun lengi i minnum höfð.“ Þetta var byrj- unin á því, sem koma átti. — K.R. sendi 8 keppendm- í Viðavangshlaupið, og lilaut Geir Gígja úr K.R. 3. verð- laun, en K.lt.-sveitin varð 2. í röðinni og skaut nú Ármanni í fyrsta sinn aft- ur fyrir sig. — Ármann stofnaði þetta ár til hlaups fyrir drengi, og var það opið öllum félögum. K.R. sigraði í þessu lilaupi og vann bikarinn, sem keppt var um, í fyrsta sinn. Sigurður Jafetsson úr K.R. hlaut 2. verðlaun. — Á Allsherj- armótinu þetta sumar setti Kristján cnn nýtt met í langstökki; stökk 0.28 m. En auk þess fékk Iíristján flest ein- staklingsstig á þessu móti og mátti þvi með sanni teljast fjölhæfasti íþrótta- maður landsins, og fékk hann silfur- hikar í verðlaun. K.R. fékk 25 stig á mótinu og varð nr. 3, en KR-ingar tóku verðlaun í 13 íþróttagreinum. — Ár- mann stofnaði þetta ár til íþróttamóts fyrir drengi, og sigraði K.R. þar ótrú- lega glæsilega. Fékk K.R. alls 37 stig, en önnur félög til samans aðeins 10. Gísli Halldórsson úr K.R. hlaut flesl einstaklingsstig á mótinu og hlaut fyr- ir það lítinn silfurbikar. Árið 1924 varð milustólpi i 1924 sögu félagsins. — í Viðavangs- hlaupinu munaði aðeins einu stigi að K.R. sigraði Í.K., en K.R. átti 1. og 2. mann í mark. Voru það þeir Geir Gígja og Karl Pétursson. — K.R. vann aftur Drengjahlaupið og átti þar einnig fyrsta og annan mann. Voru það Óskar Þórðarson og Ásmundur Ás- mundsson. — Þetta ár vann K.R. í 17

x

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939
https://timarit.is/publication/660

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.