Tuttugasti maí - 20.05.1933, Blaðsíða 2

Tuttugasti maí - 20.05.1933, Blaðsíða 2
2 20. MAÍ tímar fegri. En varla munþaðráða öllu um. Yngra fólk en eg sér það, og margir á öllum aldri sjá það líka, að hér er ekki nllt sem skyldi, — margt at' þessu gamla og góða sem einkenndi þessa sveit, er að tapast og hverfa, og þar á meðal sú e:n- ing og það samlyndi, sem áður átti sér hér stað. Oss er t. d. í fersku minni sá samhugur og sú eindrægni, sem kom svo berlega fram við há- tíðarhaldið hjer þennan dagfyrir 15 árum síðan;eðn hvernig við stóðurn allir sem einn maður í sjálfstæðisbnr- áttu okkar gegn ofurvaldi Eyfirð- inganna, og þannig var með margt fleira. Enginn mælti á móti, þegar ákveðið var að koma hér í fram- kvæmd einhverju nytsemdar fyrii- tæki. t. d. að leggja vatnsleiðslu, leggja rafleiðslu, leggja veg kringum fjörðinn, reisa nýtt skólahús o. s. frv. En hvar er hún nú, þessi sam- úð og eindrægni, sem ríkti hér áð- ur? Hún er farin, hún er flúin fyr- ir nýjum straumum utan og austnri úr heimi, straumum, sem ekkert er- indi áttu hingað. Og allir þeir, sem ekki eru ánægðir með ástandið eins og það er að verða, og allir þeir, sem líta fren'ur döprum augum á framtið þessa bæjarfélags í þessum efnum, þeir munu spyrja eins og tilheyrendur Féturs forðum. „Hvað eigum vér að gjöra, góðir menn og bræður?" Og svarið mun verða hið sama nú sem þá: Takið sinnaskipti. Snúið af röngum vegi á réttan. Yf- irgefið veg óvildar og sundrungar, en takið upp stefnu samúðar og kærleika í hugsunum, orðum og verkum. Peir sem vilja kristnir heita vor á meðal, verða að gefa höfuð- boðorði Krists, kærleiksboðorðinu, meiri gaum, en nú er almennt gjört. En þar sem því boðorði erfyigtað nokkrum mun, þar kemst hatur og illvilji ekki að. Menn geta verið af mismunandi skoðunum í stjórnmál- um, og hver fylgt frarn sinni skoð- un með festu og rökum, án þcss að hatur og illindi þurfi að blandast í umræðurnar. Pví þegar allt kemur til alls, þá er ágreiningurinn vana- lega lítils virði í samanburði við að- alatriðin. Ágreiningsatriðin í sljórn- málum eru blásin út af stífni og þráa og í eiginhagsmunaskyni, og þó vilja allir föðurlandi sínu allt hið bezta. Allir vilja bæjarfélagi sínu bæði heill og heiður í öllum grein- um, en þó gera menri smávægileg ágreiningsatriði að stórum, svo að lítið skortir á fullan fjandskap. Allir sjá að þetta er rangt og að þetta Nokkur orð um Skátafélagshreyfinguna. Skáiahreyfingin hefir farið sigur- för um heiminn, Ekki eru liðin nema rúm 20 ár siðan sir Robert Baden Powell stofn- aði Skátaregluna, og þó starfar hún nú í 43 ríkjum og telur um 2 mil- jónir skáta. Reglan á vöxt sinn og viðgang því að þakka, að hún á erindi til allra tápmikilia unglinga, unglinga, sem finna kraftinn i sjálfum sér, finna æfintýraþrónn og starfshvötina ólga í brami. Og boðskapur sá, er regan fiytur, er hollur og góður. Skátar eiga að leggja rækt við ferðalög, útilegur og allskonar íþrótt- ir. Peíta á að gera þá sjállstæða og kjarkmikla en þó jafnframt dreng- lynda og hjálpfúsa, Ferðalögin eiga að gera skátana að góðum félögum, glæða fegurðarsmekk þeirra og ást til föðurlandsins. Skátafélagsskapur- inn vill kenna félögum sinum að virða og elska fána sinn jaint og foreldra. Hann vill í stuttu máli gera unglingana að góðum þjóðfé- lagsþegnum. Til þess að vera sannur skáti, verður að rækja vel þau siðalög, er skátareglan brýnir fyrir félögum sinum. Pau er mjög falleg og skulu þau nefnd hér: 1. Skáti segir ávalt satt og gengur aldrei á bak orða sinna. 2. Skáti er tryggur. 3. Skáti er hæverskur í hugsunum orðum og verkum. 4. Skáti er hlýðinn. 5. Skáti er glaðvær. 6. Skáti er þarfur og hjálpsamur. 7. Skáti er drengilegur í allri háttsemi. 8. Skáti er sparsamur. 9. Skáii er dýravinur. 10. Allir skáfar eru góðir lagsmenn. Ljóst er, af ofanrituðu, að skáta- reglan stefnir að göfugu marki og er hin hollasta öllum unglingum. Hafa skátar víða vakið á sér at- hygli fyrir hjálpfýsi og prúðmennsku. Vel sé skátum, og öllum þeim, er vilja hjálpa til að gera unglingana að „vöskum drengjum og batn- andi“! Heill skátareglunni! Friðrik Hjartar. kann ekki góðri Iukku að stýra, að mer.n vinni saman t. d. í nefndum, látist vinna að heill og hagsæld bæjarins, en vinni þó saman eins og óvinir, svo að annar rífur niður þegar hinn byggir upp. Stígum nú á stokk og strengjum þess heit, allir góðir íbúar þessa bæjarfélags, yngri og eldri, konur og karlar að láta verða breytingu hér á til bóta, tökum oss fyrir hend- ur að efla frið og eindrægni sátt og samlyndi, en vinnum samtaka móti sundrungu og ófriði hvar sem sú eyðileggingarstefna reynir að skjóta upp höfðinu. Látum smá deilumál víkja fyrir sameiginlegum velferðar- málum bæjarins, og verum vissir um, að hið gamla latneska spak- rnæli reynist sannleikur enn sem í fornöld, að sameinaðir stöndum vér en sundraðir íöllum vér. — Vil eg svo óska bæjarfélagi voru og öllum meðlimum þess alls góðs á árinu sem byrjar í dag. 20. maí 1933 B. Porsteinsson. Mæðradagur. Fvrir nokkrum árum var í flest- um löndum Európu valinn sérstakur dagur sem skyldi bera nafnið „ Mæðra- dagur“. Nafnið ber það með sér hvers slags dagur þetta átti að vera. Pað átti að vera nokkurskonar frí- dagur mæðra. Vitanlega er hugs- unin ekki sú, að þetta eigi að vera eini frídagurinn þeirra í árinu. Nei, þeir eiga að vera eins og hægt er. — En ef við athugum hve óum- ræðileg gleði það er fyrir okkur þegar við fáum frídag, þurfum ekki að vinna, getum skemmt okkur eins og við viljum. Hvernig var það ekki þegar við vorum í skólanum, hve mikla gleði vakti það ekki þeg- ar okkur var sagt að við ættum að fá frídag? Snúum blaðinu við? Mundi ekki mæðrum okkar líka þykja ánægja að því ef við ákvæðum einn sér- stakan dag, sem skyldi vera frídag- ur þeirra. Hve glöð mundi hún ekki verða yfir að sjá, að okkur

x

Tuttugasti maí

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tuttugasti maí
https://timarit.is/publication/666

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.