Morgunn


Morgunn - 01.04.1920, Side 49

Morgunn - 01.04.1920, Side 49
MOKGUNN 43 Fyrireögmn fyrir þeim kaffa er hjá prestinum: »Stórfurðu- leg opinberun<t (»A staggering revelationc). Eitt kvöld í júlímánuði 1918 fór hann inn í járnbraut- arlest á stöð einni í London og ætlaði heim til sín til Chesham. Móti honum sátu tvær dömur í klefanum. Sjálfur var hann að lesa dagblað. A leiðinni hejrrir hann aðra dömuna segja við hina: »Fyrirgefið þér. Eg er spíritisti og miðill. Eg vona, að þér verðið ekki hrædd, en móðir yðar situr hjá yður. Hún segist hafa farið nýlega af þessum heimi, og hana langar til að segja yður nokkuð*. Presturinu segist aldrei muni gleyma svipnum á kon- unni, sem varð fyrir þessu ávarpi. Hún fölnaði. Á sama augabragði þyrluðust upp allir hennar trúarlegu hleypi- dómar, og eftir þeim átti drottinn að haga fyrirkomulagi alheimsins. »Það er þetta hugarfar, sem er áreiðanlega óvísindalegt og hrein fjarstæða«, segir presturinn. »En eg trúi ekki á spíritismann«, sagði hún. »Hann er gagnstæður mínum grundvallarskoðunum. Og svo er hitt, að eg þekki yður ekki, og þér þekkið ekki mig. Hvernig vitið þér, að móðir mín sé dáin?« »Eg veit, að móðir yðar er komin yflr í annan heim«, sagði hin konan, »af þvi að hún segir mér það, þar sem hún situr hjá yður. Iiún segir mér að þér heitið Grace, og« — þá komu skilaboð frá henni, sem í oinu vetfangi gerðu efasemdir konunnar að engu. Frá þeim skilaboð- um má presturinn elcki skýra, en hann segir, að þau hafi verið einn lilutinn af þessari furðulegu opinberun. Þá sneri miðillinn sér að pre3tinum og sagði: »Eg lield, að eg viti, hver þér eruð. Þér eruð Mr. Wynn frá Chesham — er eklti svo? Rupert sonur yðar gerði vart við sig í »hringnum« okkar hérna um kvöldið og bað mig að mælast til þess að þér hélduð tilrauna- fund með mér og raanninum mínum í skrifstofunni yðar, og að þér leyfðuð líka manninum mínum að taka ljósmynd af honum*.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.