19. júní


19. júní - 19.06.1956, Page 21

19. júní - 19.06.1956, Page 21
ANNA SIGURÐARDÓTTIR: Giftast — Hætta að vinna (Úr ræðu 19. júní 1955). . . . En'hvert er takmarkið? spjT margur. Kjörorð kvenréttindabaráttunnar er sörnu. réttindi — sömu skyldur. Þetta virðast hinar harðsoðnu kvenrétt- indakonur þó oft misskilja, svo að í raun og veru verður krafa þeirra: sömu réttindi — meiri skyld- ur. Þær virðast gleyma því, hversu mikill munur er á föður og móður í líkamlegu tilliti. En þessar ókvenlegu, harSsóðnu kvenréttindakonur, eins og formaður kvenréttindafélagsins i Oslo, Lillan Steen, kallar þær, eru arftakar hinna fyrstu kven- réttindakvenna, sem margar voru stórefnakonur, er höfðu vinnukonur á hverjum fingri, ef svo mætti að orði komast. Það þótti þá ekki tiltökumál, þótt ríkar konur létu börn sín sjúga fátækar mæð- ur, eða að þær gerðu barnfóstrunni boð, þegar þeim þóknaðist að sjá börn sin. Lillan Steen segir: „Þær höfðu enga menntun, en nógar vinnukonur — við höfum menntunina, en engar vinnukonur“. Heimilisstörf á heimilum þessara kvenna tilheyrðu ekki skyldum húsmóðurinnar. Þessar konur voru aldar upp til þess að verða „hálfgert leikfang og stofustáss“, eins og prófessor Ág. H. Bjarnason segir í Sögu mannsandans (I. bindi, bls. 89), að konan sé orðin á síðustu tímum. Þessi hugsunarháttur, að konan eigi að vera leik- fang manns síns, -— svo fjarri öllum sanni sem hann hefði átt að vera liér á landi, — á sök á því, að starf húsmóðurinnar hefur að miklu leyti gleymzt i löggjöf okkar á síðustu árum, eða síðan hjónabandslagabálkamir gengu í gildi. Sumir segja, er rætt er um takmark kvenrétt- indahreyfingarinnar, að stefnt sé að því að gera baráttu okkar óþarfa og þar af leiðandi leggja nið- ur öll kvenréttindafélög, þegar takmarkinu er náð. Þessi skýring, þó að rétt sé, segir þeim svo lítið, sem skilja ekki þau vandamál, sem gera kvenrétt- indahreyfinguna fyrst og fremst að almennu mannréttindamáli, en ekki sérhagsmunamáli ein- stakra kvenna. Þegar ég er spurð um, hvert sé takmark kven- réttindabaráttunnar, svara ég: Takmarki kvenrétt- indabaráttunnar er ekki náð fyrr en öll börn, sem verða fyrir því aÖ missa annaÖ foreldri sitt, eru jafnt á vegi stödd fjárhagslega, hvort sem það er fáðirinn éða móðirin, sem fellur frá. Það hefur sljákkað í mörgum, sem hefur gerzt orðmargur um eigingjaman tilgang kvenréttinda- hreyfingarinnar, við þetta svar. Ég þarf ekki að útskýra þetta nánar fyrir ykkur. Ykkur er ljós þýðing sama réttar til starfa, sömu laun fyrir jafnverðmæt störf, að tillit verði tekið til framfærslustarfa móðurinnar í skatta- og trygg- ingalögum, svo nokkur helztu mál okkar séu nefnd. En þegar réttindamál kvenna eru rædd manna á meðal, eru aukaatriði jafnan gerð að aðalatriðum. Aðalatriðin kafna í frásögnum af konum, sem flutti einnig kvæði það, er hér birtist eftir Höllu Loftsdóttur. Samsætið sátu á annað hundrað kon- ur, og voru margar ræður fluttar, er vottuðu vinar- hug og þakklæti íslenzkra kvenna til sendiherr- ans, bæði fyrir starf hennar hér, og einnig, að hún hefði með fordæmi sínu sýnt, hversu langt konur gætu komizt, ef þær sneru sér að opinber- um málum. Sendiherrann gat þess í svarræðu sinni, að hún hefði við móðurkné lært að þekkja og meta íslenzkar fornkonur, og að hún hefði ekki orðið fyrir vonbrigðum, er hún kynntist íslenzkum nútíðarkonum. Nefndi hún í því sambandi ýmsar af þekktustu konmn fslendinga sagna, en þó ekki þeirra fornkvenna, er hún helzt virðist hafa tekið sér til fyrirmyndar í starfi sinu hér, en það voru þær konur, er reistu skála sína yfir þjóðbraut þvera. En í því sambandi ber einnig að minnast eiginmanns hennar, Bolt Jörgensens ráðherra. — Þeim hjónum fylgja héðan hlýjar kveðjur og ám- aðaróskir um bjarta framtíð og gæfuríkt starf. 19. JÚNl 9

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.