19. júní


19. júní - 19.06.1960, Blaðsíða 34

19. júní - 19.06.1960, Blaðsíða 34
V E R N D Á •undanförnum árum hafa risið upp samtök meðal íslenzku þjóðarinnar, sem hafa haft það að verkefni að leysa ýmsan vanda samborgaranna, og það einmitt þeirra, sem lífið og lífsbaráttan hafa leikið harðast. Hér á ég við félög eins og Blindravinafélagið, S.f.B.S., Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og önnur slík. öll þessi félög hafa hlot- ið almenna viðurkenningu. Öllum er ljóst, að ein- mitt í slíkum anda ber að starfa í kristnu menn- ingarlandi. Hinn 19. nóvember sl. var stofnað til nýrra samtaka áhugafólks hér í Reykjavík, sem eiga að annast verkefni, sem til þessa hefur aðeins verið rækt að litlu leyti í landi okkar: hjálp og liðveizlu við fólk, sem gerzt hefur brotlegt við refsilöggjöf landsins og misst fótfestu í lifinu. Aðstoð og hjálp við unga afbrotamenn hefur í vaxandi mæli verið viðfangsefni vestrænna þjóða, og hafa áhrif þeirr- ar hreyfingar á síðustu árum borizt hingað til lands. Hér hefur verið starfandi fangahjálp, sem fyrst og fremst hefur miðað starf sitt við hina efnislegu hlið málsins. Samkvæmt lögum nr. 2 frá 1955 var dóms- málaráðuneytinu veitt heimild til að fresta ákæru á hendur ungum mönnum, ef um fyrsta eða smá- vægilegt afbrot væri að ræða. „Þetta nýmæli í ís- lenzkum hegningarmálum er án efa merkilegasti viðburður í hegningarmálum vorum allt frá 1869“, segir orðrétt í skýrslu Fangahjálparinnar. Þessum mönnum hefur verið gert skylt að vera undir eft- irliti Fangahjálparinnar. Oscar Clausen rithöfund- ur hefur unnið stórmerkt brautryðjandastarf á þessu sviði, sem honum verður seint fullþakkað. Meðal annars mun það verða verkefni hinna nýju samtaka að taka að sér þetta eftirlit í samráði við hann. Samtök þau, sem formlega voru stofnuð 19. nóv. sl., hlutu nafnið „Vernd“. Tilgangi og markmiði er þannig lýst í lögum þess: „2. gr. Samtökin munu leitast við, í samráði við opinber stjórnarvöld, stofnanir og einstaklinga, að 32 hjálpa fólki, sem gerzt hefur brotlegt við refsilög- gjöf landsins. Tilgangur samtakanna er samkv. heimild í 56. gr. alm. hegningarlaga, 2. mgr., sbr. 1. nr. 22/1955, að taka að sér eftirlit með fólki, sem hlotið hefur dóm, skilorðsbundinn dóm og með þeim, sem frest- að hefur verið ákæru á. Tilgangi þessum vilja samtökin ná með því að: a) fylgjast með rannsóknum í málum þeirra manna, sem sætt hafa ákæru og ætla mætti, að samtökunum yrði falið eftirlit með. b) að fylgjast með afbrotafólki, meðan það tek- ur út refsingu, og veita því aðstoð í persónulegum vandamálum þess, meðan á frelsissviptingu stendur. c) aðstoða hvern þann, sem tekið hefur út refs- ingu eftir dómi. Honum skal hjálpað yfir byrj- unarörðugleika, þannig að hann vinni aftur traust samfélagsins. Reynt skal að útvega honum vinnu og þá þjóðfélagsaðstöðu, sem honum er nauðsyn- leg. Þegar þess gerist sérstaklega þörf, munu sam- tökin eftir megni veita fjárhagslega aðstoð. d) beita sér fyrir því, að ráðinn verði sálfræði- lega sérmenntaður maður (criminal-psycholog) til þess að veita sálfræðilega þjónustu þeim mönnum, sem um ræðir í 2. gr., málslið a og b. e) vinna að því, að komið verði á fót heimilum eða öðrum stofnunum, sem þjóna markmiði sam- takanna. f) hafa áhrif á almenningsálitið og efla skiln- ing og samúð með þeim, sem á einn eða annan hátt hafa lent á öndverðum meiði við þjóðfélagið og hjálpa þeim til að gerast nýtir þjóðfélagsþegnar. 3. gr. Þátttakendur í samtökum þessum geta all- ir orðið, einstaklingar, félög og fyrirtæki, sem greiða árlegt gjald til samtakanna. Aðalfundur ákveður árgjald hverju sinni.“ Eitt af meginverkefnum hinna nýstofnuðu sam- taka er að hjálpa ungum afbrotamönnum á rétta braut með aðstoð sérfróðra manna, án þess að grípa þurfi til fangelsisvistar. í nágrannalöndum okkar hafa löggjafinn og dómstólarnir fyrir löngu gert 19. JÚNl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.