19. júní


19. júní - 19.06.1976, Side 35

19. júní - 19.06.1976, Side 35
Alltaf, þegar ég sé Melaskólann, dettur mér i hug rúgbrauð með kæfu . . . yfir umhverfinu. Hvers konar tónverk flytjið þið? Mér finnst að helst megi likja henni við einhvers kon- ar nútíma „kammermúsík“. Við semjum að mestu leyti með litla sali í huga og tiltölulega fáa áheyrendur, notum hvorki raf- magnshljóðfæri né hátalara. Við náum líka mun nánara og mannlegra sambandi við fólk samanborið við „Show músikina“, sem byggir á ljósköst- urum, glitrandi búningum og feikna hávaða, — þar er tónlistin orðin aukaatriði. Hvar hafið þið komið fram og hvernig hafaykkur þótt undirtektirnar? Við höfum haldið konserta í gagnfræðaskólum, mennta- skólum og á ýmsum menningar- vikum og yfirleitt líkað mjög vel móttökurnar. Fólk gerir orðið geysimiklar kröfur, — vill alltaf eitthvað nýtt, en gerir sér oft ekki grein fyrir hvað svona flutningur krefst gífurlegs undirbúnings við að semja og æfa ljóð, leikrit og tónlist. Annars höfum við mjög mikinn áhuga fyrir, að til væri heppilegur staður fyrir svona flutning, þar sem fleiri gætu lagt sitt af mörkum, spilað, sungið og leikið. Urn hvað syngið þið? Við tökum gjarnan efni, sem er ofarlega í hugum fólks, t.d. höf- um við samið leikþátt um land- helgismálið, — eða eitthvað sem okkur dettur í hug. Við höfum sungið um sólarferðir, hjálp- ræðisherinn, áfengið. Við erum lítið gefin fyrir þrúgandi predikun um t.d. hvernig búið er að spilla umhverfinu með mengun, heldur setjum við boð- skapinn í léttan búning, bendum á hlutina, — við erum fjarskalega rómantísk, segir Sigrún og hlær. Hvernig hagið þið œfingum? Ég ætlaði að fá mér vinnu jafnframt því að æfa með Spilverkinu, en það hefur ekki gengið vel að samræma þetta. Við höfum yfirleitt byrjað kl. 1 og höldum áfram til kl. 6—8 alla daga vikunnar, oft á sunnu- dögum líka. Auðvitað fer það dálítið eftir veðri og vindum hvernig æfingar takast. Hvernig verður lag til? Kannski kemur einhver með lagstúf. Honum er smávegis breytt — við höldum öllum breytingarmöguleikum opnum. Ef einhver er ekki sáttur, er við- eigandi breyting gerð. T.d. er svo öðrum bút úr öðru lagi bætt við, haldið áfram að breyta, þangað til allir eru ánægðir með lagið, sem í endanlegri mynd er e.t.v. samsett úr mörgum lagabútum. Síðan er reynt að pússa söng og spileri og kaflar raddaðir. Oft eru gerðar 10—20 tilraunir, áður en endanleg röddun finnst. Svo er fínpússað með auka og ásláttar- hljóðfærum. í gegnum svona síu ganga lög, sem ákveðið er að taka — mörgum er hafnað. 33

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.