19. júní


19. júní - 19.06.1976, Síða 39

19. júní - 19.06.1976, Síða 39
Flestir vita hvað venjulega liggur í orðinu kvenfrelsi: lög- heimilað jafnrétti karla og kvenna. En í orðinu frelsi liggur önnur og dýpri merking en lög- heimiluð réttindi. f því felst að vera frjáls andlega og líkamlega, og lítið þýðir að hafa frelsi í orði en ekki á borði. Til lítils er að hrópa hátt á frelsið, en binda sjálfan sig jafnframt á klafa tild- urs og tísku. Er það að vera frjáls, að geta ekki lyft svo hendi eða fæti, að ekki fljúgi í hugann: „Ætli það sé kvenlegt?“ Er það að vera frjáls, að geta ekki hnýtt á sig slifsi eða klætt sig í fat, án þess að spyrja sjálfa sig, hvort það sé í samræmi við tískuna? Eg neita því fastlega. Enginn er frjáls, sem lætur gaml- ar venjur og hleypidóma stjórna hverju sínu fótmáli. En furða er það ekki, þó að við íslensku stúlkurnar breytum svona. Um aðra tala ég ekki. Þekki aðeins fsland og íslend- inga. Frá því að við vorum svo ungar, fyrst, þegar við munum eftir okkur, hefir verið sagt við okkur: ,,Þú mátt ekki fljúgast á við strákana. Það er svo ókVen- legt!“ „Ósköp var á þér að koma ríðandi berbakað heim í hlaðið. Þú áttir að fara af baki ofan við garðinn, svo gestirnir sæju það ekki; það er svo ókvenlegt o. s. frv.“ En hvað er þá kvenlegt? Er kvenlegt að vera sá aumingi, að komast ekki á bak á hest, eða bæjarleið, án karlmannshjálpar? Er kvenlegt að hrópa: „Guð al- máttugur!“ ef barn rekur upp org eða fluga eða mús — þessi hræðilegu dýr(!) — sjást ein- hversstaðar nærri? Það er blátt áfram uppgerð og tepruskapur, Grein þessi birtist í KVENNABLAÐINU 1907. Ritstjóri var Bríet Bjamhéðinsdóttir, fyrsti formaður K.R.F.I. Þessi mynd er tekin af sæmdarfólki á Isafirði, einhvern tima um svipað leyti °g grein þessi er skrifuð. Ekki hefur okkur tekist að komast á snoðir um hvaða fólk þetta er, en gaman væri ef einhverjir lesendur 19. júní gætu upplýst það. hverjum heiðarlegum manni, karli og konu til stórskammar og svivirðu. Enn vitum við ekki, hvernig alþingi og stjórn verða við kröf- um okkar um kosningarétt. Eng- inn óskar innilegar en ég, að svörin þau verði góð og engin kona mundi fúsari hagnýta sér þann rétt en ég. En ég vil hafa meira frelsi, andlegt frelsi, svo við verðum færar um að hrinda af okkur þeim böndum, sem binda okkur við gamlar kreddur; kreddur, sem aldrei hefðu átt að vera til. Byrjum með því að kenna stúlkubörnunum, að þær séu menn fyrst og fremst; hugs- andi, frjálsar verur, á jafnháu stigi og karlmenn: „neisti af guðs lifandi sál“. Kennum þeim, að þær geti gengið óstuddar, þurfi ekki að standa undir verndar- væng karlmannanna. Þá rís upp hið sanna kvenfrelsi á íslandi. Og þá getur enginn sagt, að við höf- um ekkert við kosningarétt að gera. Þar vildi ég vera, sem kven- þjóðin hefði fundið sálu sína, — allar konur. Væri búin að grafa hana upp úr dýki prjálp og upp- gerðar. Því við erum engir hug- leysingjar. Við þorum að reyna að „vogun vinnur og vogun tap- ar“, ef við gætum einungis allar trúað, að það sé kvenlegt. Hefð- um ætíð hugfast, að teprudósin, sem ekki getur riðið yfir áar- sprænu eða hoppað yfir læk óstudd, er þúsundfalt minna virði en hin, sem leggur alla krafta sína fram til þess, að stríða og sigra, án þess að hugsa um, hvort það sé ókvenlegt eða ekki, þó hin fyrr- nefnda se ef til vill álitlegri sýnum eða betur búin. Renni sú öld yfir Island, að tískubrúðan og teprudósin verði athlægi allra! þá er kvenfrelsi í landi. Fyrr ekki. Þingeysk

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.