19. júní


19. júní - 19.06.1976, Síða 46

19. júní - 19.06.1976, Síða 46
Samþykkt á Alþingi 1976 Lög um jafnrétti karla og kvenrva I marz s.l. var lagt fram á Al- þingi frumvarp til laga um jafn- stöðu kvenna og karla. Frumvarp þetta var afgreitt sem lög þann 18. maí, og er heiti þeirra — lög um jafnrétti kvenna og karla. 1 1. grein þeirra er að finna þá stefnuyfirlýsingu löggjafans, að þeim sé ætlað að stuðla að jafn- rétti og jafnri stöðu kvenna og karla. Aðdragandi lagasetningar þessarar er sá, að í ágústmánuði 1975 fól Gunnar Thoroddsen fé- lagsmálaráðherra Guðrúnu Erlendsdóttur, hrl., formanni kvennaársnefndar og Jafnlauna- ráðs og Hallgrími Dalberg, ráðu- neytisstjóra félagsmálaráðu- neytisins að semja frumvarp til laga um jafnrétti og jafnstöðu kvenna og karla. Áður en frumvarpið var lagt fram á Alþingi, var það sent samtökum kvenna til kynningar, og meðan frumvarpið var í meðförum Alþingis, var leitað formlegra umsagna ýmissa annarra sam- taka. Eins og áður segir er hlutverk og tilgangur laganna að stuðla að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna og karla. í athugasemdum með lagafrumvarpinu segir m.a.: „Þótt konur og karlar búi við sama lagalegan rétt til menntun- ar, atvinnu og launa, þá skortir í raun nokkuð á, að jafnrétti kynj- anna ríki á þessum sviðum. Það er staðreynd, að atvinnulíf landsins greinist í ákveðin kvennastörf og karlastörf. Konur sinna heimilisstörfum, barna- gæslu og ýmis konar þjónustu- störfum, en karlar eru hins vegar 44 ríkjandi við stjórnun, tæknistörf og aðalatvinnuvegi þjóðarinnar. Þrátt fyrir lagalegan rétt skipa konur á mörgum sviðum ekki sama sess og karlar og veldur þar miklu um hin rótgróna og hefð- bundna hlutverkaskipan kynj- anna í þjóðfélagi okkar, sem við- gengst án þess að aðilar eigi í raun og veru nokkurt val. Lýðræðislegt þjóðfélag byggir á jafnrétti og frelsi til að velja sér lífsstarf. Flestir eru sammála um, að nauðsynlegt sé að gera konum auðveldara um val á lífsstarfi, en til þess að slíkt sé mögulegt, þurfa karlmenn að verða virkari þátt- takendur við heimilisstörf. I skýrslu námsbrautar í þjóð- félagsfræðum við Háskóla fslands til félagsmálaráðuneytisins, sem út kom vorið 1975 og fjallar um raunverulegt jafnrétti karla og kvenna, að því er varðar menntun, störf, launakjör, og hvers kyns þátttöku í félagslegum verkefnum, kemur fram, að konur hafa almennt minni og einhæfari menntun en karlar. Einnig kemur fram í skýrslu þessari, að þjóðfélagsleg forysta á Alþingi, í sveitarstjórnum, í embættismannakerfi, stjórn- málaflokkum og hagsmunasam- tökum er nær algerlega í höndum karla. f niðurstöðum skýrslunnar kemur fram, að án nýrra aðgerða og breyttra viðhorfa verði ekki um að ræða umtalsverðar breyt- ingar í jafnréttismálum kynjanna í náinni framtíð. Hvað snertir sömu laun fyrir sömu störf til handa konum og körlum, þá voru opinberir starfs- menn fyrsta starfsstéttin, sem hlaut lögverndað launajafnrétti kynjanna. Það var á árinu 1954. f lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 38 frá 1954, 3. gr., segir svo: „Konur og karlar hafa jafnan rétt til opin- berra starfa og til sömu launa fyrir sömu störf.“ Á árinu 1961 voru sett lög um almennan launajöfnuð kvenna og karla og skyldi honum náð 1967. Þessi lög voru sett í samræmi við full- gildingu samþykktar Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar nr. 100, sem fullgilt var af íslands hálfu hinn 17. febrúar 1958. Með henni skuldbatt ísland sig til að tryggja jöfn laun til kvenna og karla fyrir jafnverðmæt störf. Á árinu 1964 fullgilti ísland fyrir sitt leyti samþykkt Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar nr. 111 um útrýmingu á hvers konar misrétti í atvinnu eða starfi. Á árinu 1973 voru sett lög um Jafnlaunaráð, er kveða á um, að konum og körlum beri að fá sömu laun fyrir jafnverðmæt störf og atvinnurekendum sé óheimilt að mismuna starfsfólki eftir kyn- ferði. Jafnlaunaráði er ætlað að tryggja framkvæmd laga um jafnrétti kynjanna í atvinnu- lífinu, og hefur starfsemi Jafn- launaráðs gefið góða raun. En þrátt fyrir lagalegt jafnrétti til menntunar, atvinnu, launa og stjórnmálalegrar þátttöku, þá ríkir hér enn nokkurt misrétti milli kvenna og karla á mörgum sviðum. Til þess að flýta fyrir jafn- réttisþróun ákváðu Sameinuðu þjóðirnar að árið 1975 yrði útnefnt alþjóðlegt kvennaár.

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.