19. júní


19. júní - 01.10.1994, Blaðsíða 8

19. júní - 01.10.1994, Blaðsíða 8
„Fékk ekki starf hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins" — þrátt fyrir sérþekkingu varðandi meðferð mála við kyn- ferðisbrotum gegn börnum Sigrún Sigurðardóttir lagði inn umsóknir um starfhjá Rannsóknarlögreglu ríkisins og lögreglunni á Ak- ureyri í febrúar s.l. þar sem hún var að hætta lögreglustörfum á ísafirði. Hún fékk starfvið sumarafleys- ingar hjá rannsóknarlögreglunni á Akureyri en frétti þá afþví að afleysingastaða væri að losna hjá RLR þar sem einn lögreglumanna þar væri að fara í ársleyfi og ítrekaði því umsókn sína. Henni var lofað svari síðast í ágúist, sagt að hún hefði ágæta möguleika en í lok október var henni tilkynnt að það væri búið að ráða annan í starfið. „Það hefur oft verið talað um að það séu fáar konur í RLR og það afsakað með því að það sæki svo fáar konur um. Samkvæmt þingsályktunartillögu frá sl. vetri skal stefnt að því að fjölga kon- um í RLR og því er ég ekki sátt við þetta, sérstaklega með tilliti til þess að ég hefkynnt mér meðferð varð- andi kynferðisbrot á börnum erlendis og get hvergi nýtt mér þá reynslu betur en innan RLR." öðrum húsum. Mikil áhersla er lögð á að ná trúnaði barnsins og að viðmælandi kynnist því. Þá voru sýnd myndbönd þar sem rætt er við börn og m.a. sýnt hvað þau geta verið lokuð hvað varðar þá misbeit- ingu sem þau hafa orðið fyrir, börn sem eru jafnvel ekki nema 3-4 ára gömul og opin á öllum öðrum sviðum. Mikil sam- vinna er meðal hinna ólíku stétta sem fást við þessi mál í Bandaríkjunum, svo sem geðlækna, félagsráðgjafa, hjúkrunarfræð- inga og lögreglunnar. Þegar ég kom hingað heim sá ég hvað við stöndum aftarlega á þessum sviðum hér á landi. f Lögregluskól- anum er t.d. ekki minnst á kynferðisbrot gegn börnum eða hvernig rannsaka eigi þau mál. Mig langaði til að fá að nota þekkingu mína innan RLR en þangað berast kærur varðandi kynferðisafbrot. Fyrstu ferð mína til Bandaríkjanna fór ég í janúar og síðar átti að vera vikunámskeið í apríllok og í september. Ég fór aftur í apríl og bað þá það fólk sem ég hafði kynnst þarna að at- huga hvort ég gæti nýtt ferðina til að afla frekari upplýsinga um þessi mál. Þau bjuggu dl dagskrá fyrir mig og að lokinni vikudvöl í Alabama fór ég til Boston og var þar á vikunámskeiði um sömu málefni. Þaðan fór ég til Dallas og var í starfskynn- ingu í viku á sérdeild lögreglunnar þar sem fjallað er um ofbeldi gagnvart börnum. Deildin er tvískipt, annars vegar er fjallað Sigrún byrjaði í sumarafleysing- um í lögreglunni á ísafirði, fór síðan í Lögregluskólann og vann á ísafirði þar til nú á þessu ári er hún fór að vinna sem rannsóknarlögreglukona á Akureyri frá júní fram í október. Hún vinnur nú við afleysingar í tvo til þrjá mánuði við almenn lögreglustörf á Höfn í Hornafirði. Hún hefur mikinn áhuga á að bæta meðferð mála varðandi kynferðisbrot gegn börnum. Fyrsta námskeiðið sem hún fór á var haldið á vegum Kvennaathvarfsins í Reykjavík haustið 1992. „Ég kostaði mig sjálf á námskeiðið, var þá á ísafirði og þurfti að kaupa mér flugfar suður og greiða kostnað við námskeiðið. Þar fékk ég inn- sýn í ferli heimilisofbeldis og viðtalstækni við börn sem búa við ofbeldi innan veggja heimilisins. Ég fékk áhuga á að kynna mér þetta frekar og haustið ’93 var haldin nokkra daga námsstefna hér á landi þar sem Charles B. Chutson dómari hélt fyrir- lestur um ofbeldi gegn börnum. Ég frétd af þessari námstefnu í gegnum frænku mína, sem er barnahjúkrunarfræðingur, og borgaði kostnað við ferðina suður sjálf. Þar var fjallað um nýjungar í sambandi við við- talstækni við börn og hvernig lagakerfið hefur reynt að aðlagast börnum til að þau eigi auðveldara með að tjá sig. Það er t.d. mikið lagt upp úr því að börnunum líði vel við yfirheyrslur. Ég ræddi við Chutson að loknum fyrirlestri og sagði honum að ég hefði áhuga á að kynna mér þessi mál frek- ar en það væri erfitt fyrir mig sem lög- reglumann að finna eitthvað áhugavert hér á landi. Stuttu seinna fékk ég bréf frá honum þar sem hann kynnti fyrir mér námskeið sem haldið yrði í Huntsvill í Alabama. Ég skrifaði þangað og fékk mjög jákvætt svar um að koma og kynna mér það sem fram færi. Þetta var vikunámskeið fyrir sálfræð- inga, hjúkrunarfólk, lækna, dómara, lög- reglumenn og félagsráðgjafa hvaðanæva að úr Bandaríkjunum. Texti: Valgerður Katrín Jónsdóttir Ég fékk styrk úr starfsmenntunarsjóði lög- reglumanna og frá Dómsmálaráðuneydnu en það dugði aðeins fyrir námskeiðsgjald- inu. Þarna opnaðist algjörlega nýr heimur fyrir mér. Námskeiðið sótd háttsett fólk úr öllum stéttum, geðlæknar, félagsráðgjafar og lögreglumenn. Dúkkur notaðar í viðlöluni Þarna var kynnt viðtalstækni sem notuð er þegar rætt er við börn, m.a. notaðar dúkk- ur, börnin látin teikna og notað dúkkuhús dl að láta börnin segja frá og sviðsetja at- burði sem gerðust heima hjá þeim eða í 8

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.