Fréttablaðið - 03.12.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 03.12.2010, Blaðsíða 8
8 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 Humar2000 kr.kg Skötuselur Sjáumst eldhress á eftir. Skatan er klár í slaginn Skelflettur Humar5900 kr.kg 2890 kr.kg Reginn ehf. dótturfélag Landsbankans hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í fasteignafélaginu Reginn A3 ehf. Félagið á 7 fasteignir sem eru að meginhluta leigðar undir smásölurekstur á höfuðborgarsvæðinu. Félagið er með 24 leigusamninga við 19 leigutaka. Heildarfjöldi útleigðra fermetra er um 7.800. Söluferlið hefst formlega með þessari auglýsingu og er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem standast hæfismat og sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 350 milljónir króna. Unnt er að nálgast allar frekari upplýsingar um söluferlið, félagið og önnur gögn, þar með talið trúnaðaryfirlýsingu og eyðublað fyrir fjárfesta, á vefsíðu Landsbankans, landsbankinn.is, frá klukkan 15.00 þann 23. nóvember 2010. Frestur til að skila inn bindandi tilboðum rennur út klukkan 16.00 mánudaginn 20. desember 2010. Reginn ehf. er sértækt dótturfyrirtæki Landsbankans sem fer með eignarhald bankans á fasteignum eða hlutafé fasteignafélaga sem líklegt er að bankinn eigi um einhvern tíma. Stofnun Regins og starfsemi félagsins er einn þáttur í þeim víðtæku ráðstöfunum sem Landsbankinn beitir við fjárhagslega endurskipulagningu atvinnufyrirtækja. ENN E M M / S ÍA / N M 4 4 4 5 8 N B I h f. (L an d sb an ki n n ), k t. 4 71 0 0 8 -0 2 8 0 . Fasteignafélagið Reginn A3 ehf. til sölu STJÓRNSÝSLA „Það þarf ekki sér- fræðing til að sjá að það er óeðlilegt að ein manneskja taki ákvörðun um útgáfu allra ættleið- ingarleyfa á Íslandi“, segir Vig- dís Ó. Sveinsdóttir, lögfræðing- ur Íslenskrar ættleiðingar (ÍÆ), sem fór fram á það fyrr á þessu ári að dómsmála- og mannrétt- indaráðuneytið kannaði stjórn- sýslu Áslaugar Þórarinsdóttur, sýslumanns í Búðardal. Tilefnið var breytt vinnulag hennar við meðferð umsókna um ættleiðing- ar eftir hrunið og hert eftirlit með fjárhag umsækjenda. Sýslumaður sendi umsækjendum, sem eru í endurnýjunarferli með forsamþykki til ættleiðingar, bréf fyrr á þessu ári. Þar kemur fram að hún hafi farið þess á leit við barna- verndarnefndir sveitarfélaganna að farið verði vandlega yfir núver- andi eigna- og skuldastöðu umsækj- enda. Sama eigi við um hugsanleg- ar breytingar á öðrum högum fólks, eins og hvort viðkomandi hafi enn vinnu. Ástæðan er hrunið og áhrif þess á fjárhag einstaklinga og fjöl- skyldna. Vigdís sendi athugasemdir til dómsmálaráðuneytisins fyrir hönd ÍÆ fyrr á þessu ári. Telur ÍÆ að vinnulag sýslumanns fari í bága við helstu meginreglur stjórnsýslu- réttar og beri vott um „afar bága stjórnsýsluhætti af hálfu sýslu- manns.“ Í athugasemdunum kemur fram að sýslumaður óskaði eftir því við umsækjendur að þeir skil- uðu skattframtali fyrir árið 2009 áður en framtalsfrestur var liðinn, og afgreiðslu umsókna var frestað á meðan. Heimildir Fréttablaðsins herma að þetta sé aðeins eitt dæmi þess að Áslaug gangi hart fram og geri kröfur sem enga stoð eigi í lögum og reglum. Hefur hún til dæmis sett það fyrir sig að umsækj- endur búi í leiguhúsnæði, sem hefur tafið afgreiðslu umsóknar. Sýslumaður sendi ráðuneytinu álit sitt á málflutningi ÍÆ þegar eftir því var leitað. Í stuttu máli hafnar hún öllu sem kemur fram í erindi ÍÆ og segir það lýsa „með alvarlegum hætti bæði vankunnáttu og skorti á skilningi á þeim lögum, reglum og alþjóðlegu samningum um ættleiðingar sem sýslumanni ber að fara eftir.“ Í svarbréfi ráðuneytisins til ÍÆ segir að ekkert sé við stjórnsýsluna að athuga, hún sé bæði lögmæt og vönduð. Vigdís telur meðferð ráðuneyt- isins með ólíkindum og málinu sé hvergi nærri lokið af hálfu ÍÆ. svavar@frettabladid.is Skattaskýrsla lengdi bið eftir barni Sýslumaðurinn í Búðardal hefur eftir bankahrunið hert eftirlit með fjárhag þeirra sem vilja ættleiða barn. Íslensk ættleiðing gagnrýnir störf sýslumanns sem er einráður þegar kemur að ættleiðingum. FRÁ KÍNA Flest börn sem eru ættleidd af íslenskum foreldrum koma frá Kína. Um hundrað eru á biðlista hérlendis. MYND/GETTY LÖGREGLUMÁL Sumir þeirra tíu ein- staklinga sem lögregla yfirheyrði vegna stórfellds ólöglegs niður- hals efnis í fyrrakvöld og gærdag eru grunaðir um að hafa fengið greitt fyrir dreifingu þess. Ekki liggur fyrir í hvaða formi greiðslurnar voru, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins, en það er einn þáttur málsins sem lögregla rannsakar nú. Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu gerði níu húsleitir í fyrradag vegna málsins, sjö á Akureyri og í nágrenni og tvær á höfuðborg- arsvæðinu. Tíu piltar á aldrinum 15 til 20 ára eru grunaðir um aðild að mál- inu. Þeir voru yfirheyrðir í fyrra- kvöld og einhverjir þeirra aftur í gær. Hald var lagt á margar tölv- ur og tölvubúnað auk þess sem marijúana, um 80 grömm, fannst í einu húsanna. Rannsókn málsins hefur stað- ið yfir um nokkurt skeið. Upp- haf þess má rekja til kæru sem Samtök myndrétthafa lögðu fram og sneri að ólöglegu niðurhali og dreifingu höfundarréttarvarins efnis af netinu. Efnið sem um er að ræða er fyrst og fremst kvikmyndir og sjónvarpsþættir. Rannsókn málsins miðar vel en mikið verk er fram undan við að fara yfir tölvubúnaðinn sem tek- inn var. - jss Lögregla yfirheyrði tíu pilta vegna stórfellds ólöglegs niðurhals efnis af netinu: Grunaðir um að þiggja greiðslur HÖFUNDARRÉTTARBROT Lögregla á eftir að rannsaka innihald tölvubúnaðar sem tekinn var hjá piltunum. Það þarf ekki sér- fræðing til að sjá að það er óeðlilegt að ein manneskja taki ákvörðun um útgáfu allra ættleiðingarleyfa. VIGDÍS Ó. SVEINSDÓTTIR LÖGFRÆÐINGUR ÍÆ 1 Hvað heitir fyrirtækið sem vill flytja inn eitt þúsund rafmagns- jeppa? 2 Hversu mikið verður greitt í aðgangseyri að Frostrósum og Jólagestum Björgvins samkvæmt áætlun Fréttablaðsins? 3 Hvaðan kemur Jóladagatal barnanna í ríkissjónvarpinu í þetta sinn? SVÖR 1. Northern Lights Energy. 2. 300 millj- ónir króna. 3. Frá Noregi. Tryggjum öllum börnum gleðileg jól Taktu þátt í Pakkajólum Bylgjunnar við jólatréð í Smáralind Við óskum öllum gleðilegra jóla Au gl ýs in ga sím i VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.