Fréttablaðið - 27.12.2010, Side 50
38 27. desember 2010 MÁNUDAGUR
Þýska úrvalsdeildin:
Flensburg-Wetzlar 42-22
Kári Kristján Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir
Wetzlar.
Friesenheim-Kiel 29-39
Aron Pálmarsson skoraði 5 mörk fyrir Kiel. Alfreð
Gíslason þjálfar lið Kiel.
Rheinland-TuS N Lubbecke 25-24
Sigurbergur Sveinsson skoraði 4 mörk fyrir
Rheinland og Þórir Ólafsson skoraði 4 mörk fyrir
Lubbecke.
Fuchse Berlin-Hannover 36-28
Alexander Petersson skoraði 6 mörk fyrir Berlin.
Vignir Svavarsson skoraði 4 mörk fyrir Hannover,
Hannes Jón Jónsson eitt en Ásgeir Örn Hall-
grímsson komst ekki á blað. Dagur Sigurðsson
þjálfar lið Berlin en Aron Kristjánsson er þjálfari
Hannover.
Grosswallstadt-Ahlen Hamm 26-24
Einar Hólmgeirsson lék ekki með Ahlen-Hamm
en Sverre Andreas Jakobsson spilaði fyrir Gross-
wallstadt en komst ekki á blað..
Rhein-Neckar Löwen-Balingen 36-30
Ólafur Stefánsson og Róbert Gunnarsson
skoruðu báðir 2 mörk fyrir Löwen en Guðjón
Valur Sigurðsson komst ekki á blað. Guðmundur
Guðmundsson er þjálfari Löwen.
Melsungen-Magdeburg 29-29
Gummersbach-Lemgo 23-28
STAÐAN:
Hamburg 18 17 0 1 585-471 34
Fuchse Berlin 18 15 1 2 513-457 31
THW Kiel 18 14 1 3 588-452 29
RN Löwen 18 13 2 3 573-514 28
Göppingen 18 12 2 4 502-466 26
Flensburg 18 12 0 6 557-491 24
Gummersbach 18 9 2 7 530-516 20
Magdeburg 18 9 2 7 518-487 20
Lemgo 18 7 4 7 502-485 18
Grosswallstadt 18 9 7 2 480-492 18
Lubbecke 18 5 2 11 506-519 12
Wetzlar 18 5 1 12 440-513 11
Balingen 18 4 3 11 491-561 11
Melsungen 18 4 2 12 466-530 10
Hannover 18 4 1 13 468-534 9
Friesenheim 18 3 3 12 486-554 9
Ahlen-Hamm 18 3 2 13 488-552 8
Rheinland 18 3 0 15 435-523 6
ÚRSLIT
DEILDARBIKARINN 2010
M
ed
ia
G
ro
u
p
eh
f
|
A
u
g
lý
si
n
g
ar
|
H
S
Í
2
0
1
0
Kl. 16.00 Stjarnan-Valur | KVK
Kl. 17.45 Fram-Fylkir | KVK
Kl. 19.30 Fram-FH | KK
Kl. 21.15 Akureyri-Haukar | KK
Kl. 18.15 ÚRSLIT KARLA
Kl. 20.00 ÚRSLIT KVENNA
Flugfélags Íslands
HANDBOLTI Aron Pálmarsson og
félagar í Kiel voru í eldlínunni í
þýska handboltanum í gær. Jóla-
fríið var því stutt hjá Aroni en
leikmenn Kiel fengu frí á Þor-
láksmessu og aðfangadag. Þeir
fóru síðan á æfingu á jóladag og
spiluðu svo leik í gær sem vannst
örugglega.
„Ég var svo lánsamur að fá
mömmu, pabba, systur mína og
frænda minn í heimsókn yfir jólin
og þau verða hjá mér þar til ég fer
heim til Íslands 30. desember. Ég
gat aðeins notið jólanna með þeim
því Alfreð gaf frí á Þorláksmessu
og aðfangadag sem var ótrúlegt,“
sagði Aron léttur og hló við. „Það
var ekkert sérstaklega gaman að
rífa sig upp í æfingu á jóladag og
leik á annan í jólum en það var
gott að koma aftur heim þar sem
mamma og þau bíða.“
Kiel átti heimaleiki um síð-
ustu jól þannig að Aron gat notið
jólanna betur þá en núna en hann
er ekkert að láta það á sig fá.
„Það gefur manni heilmikið að
hafa fólkið sitt hjá sér og gaman
að hafa frænda minn líka á staðn-
um en krakkar hressa svo upp á
jólin. Mega ekkert vera að því að
borða því þau vilja komast í pakk-
ana. Ég var því mjög ánægður með
jólin. Hamborgarhryggurinn hjá
mömmu klikkaði líka ekkert frek-
ar en venjulega,“ sagði Aron en
mamma hans kom með fulla tösku
af mat. Mátti þar einnig finna
hreindýr og lambakjöt þannig að
Aron verður í veislu næstu daga.
„Það er gaman að koma heim og
sjá alla ísskápana troðfulla. Það er
ekki venjulega þannig hjá mér.“
Kiel á heimaleik gegn Dorm agen
29. desember og eftir það er Aron
farinn í stutt frí. Hann byrjar svo
að undirbúa sig með landsliðinu
fyrir HM þann 3. janúar næst-
komandi.
Síðustu vikur hafa verið erfið-
ar fyrir Kiel en liðið er án margra
sterkra leikmanna og hefur verið
að tapa dýrmætum stigum. Vilja
margir meina að liðið sé búið að
missa af titlinum en Aron er ekki
sammála því.
„Síðasti mánuður hefur verið
skelfilegur og lélegur. Höfum
spilað illa, tapað illa og unnið leiki
naumt. Þetta hefur alls ekki verið
nógu gott. Við eigum að vinna leik-
inn 29. desember og svo komum
við með heimsliðið okkar í febrú-
ar og látum til okkar taka,“ sagði
Aron en Kiel klúðraði leiknum
gegn Hamburg á grátlegan hátt
og þar fóru mikilvæg stig.
„Það var hrikalegt að klúðra
því eftir að hafa verið yfir nán-
ast allan leikinn. Það er hellingur
eftir af þessu móti og við munum
ekki gefast upp,“ sagði Aron. Þjálf-
arinn hans, Alfreð Gíslason, er
sagður vera harður í horn að taka
og óhræddur við að nota hárblás-
arameðferðina á leikmenn. Strák-
arnir í landsliðinu voru um tíma
farnir að kalla hann „Krauma“
þar sem það kraumaði í honum
eftir tapleiki. Hvernig hefur hann
plumað sig í þessu mótlæti?
„Ég hef ekki enn fengið að kynn-
ast þessum fræga Krauma. Ég hef
heyrt frægar sögur af honum en
ekki fengið að upplifa þær. Ég hef
séð hann mjög reiðan en ekkert í
líkingu við þennan heimsfræga
Krauma sem strákarnar hafa oft
talað um,“ sagði Aron kátur á leið
heim til mömmu og pabba eftir
sigurleik.
- hbg
Aron Pálmarsson fékk lítið jólafrí vegna anna í handboltanum og þurfti að spila útileik í gær:
Ekki kynnst hinum fræga Krauma
HEITUR Í GÆR Aron skoraði fimm mörk fyrir Kiel í gær og jólahamborgarhryggurinn sat ekki í honum. NORDIC PHOTOS/BONGARTS