Íslendingur - 11.04.1936, Síða 3
ÍSLENDINGUR
3
þcim bæ á iátæklingum. Viö rann-
sókn kom í ljós að þessi sarni
maður hafði fengið tœpar 7000
kr. í styrk og það er á sama tírna,
sem flestir bœndur verða að Láta
sér lynda 1-2 þús kr,Jekjur. — I
Reykjavik er nú 10 hver maður á
opinberu iramfæri aö nokkru eða
öllu og sumstaðar í öðrum bæjum
4 hver maður. Á sarna tírna sern
áarðbœr aivinnuoótavinna Jer frarn
* kaupstöðurn og fullfrískir rnenn
tanda atvinnuLausir — þá vantar
ilfinnanlega fólk í sveitirnar. Slíkt
yrirkomulag er sprottið að þeim
íhugsunarhætti socialistanna að þjóö- ■
skipulaginu þurii að granda, og því
er þeim hentugt að draga sem
ílesta undir þau eymdaryíirráð, sem
þeirra ríki hlýtur alltai að eiga
upphaf sitt í.
]Pað ber að viðurkenna að margt
í lagasetningu síðari ára er rétt og
eðlilegt — en í öllum megindráttum
stefnir hún í öfuga átt og skatta-
og tollastefnan, meðferðin á ein-
staklingsframtakinu og fjármálunum
í lieild hefir leitt aí sér að íjármála-
frelsiö er nú svo takmarkað orðið,
að ef til vill er eina ráðið því til
bjargar, ef allir legðust á eitt með
heildarhug en ekki ílokkshug, að
bæta úr því ástandi. Flokksræðið
sem nú stendur sem hæst, sbr. t. d.
meðferðin á mjólkurlögunum, hneyksli
Fiskimálanefndar og stjórn raítækja-
einkasölunnar, miðar allt við að
draga öll völd til sín. Allir flokkar
voru sammála um opinbera verð
skráningu mjólkur og verðjöfnunar-
gjald til að bæta þeim upp, sem
verri aðstöðu hafa, l?að sýnist svo
sem samvinnustefnan heíði ekki átt
að vera óhæf þarna, en soeialistar
og stjórnin vildu hafa öll yfirráð.
Sjálfstœðismenri viLdu lögin tiL
styrktar en ekki taka af þeim ráðin,
sem mestra hagsmuna hafa að gœta.
tessi meðferð öll er dæmi þess
hvernig ekki á að framkvæma við-
kvæm mál. í þessu sambandi má
minna á meðferð launamálsins. —
Skipuð var nefnd í það, sem skilaði
áliti, en á þinginU í i'yrra náði það
ekki afgreiðslu íyrir mótstöðu stjórn-
arfiokkanna. Fulltrúi socialista kom
aldrei á nefndarfundi og eins er
það fyrir þessu þingi að það er
til málamynda lagt fram aí íorm.
nefndarinnar jörundi Brynjóffssyni,
en fulltrúar stjórnarinnar hafa
naumast fengist til að mœta á
Jnnduni. Nú er ákveðið í kyrþey
að láta rnálið sofna einu sinni enn.
Her veldur það, að ríkiö er sá að-
ili, sein aö lang-mestu rœður kaup-
gjaldi en launalækkun og Jœkknn
starfsrnanna mundi korna lang-
harðast niður á stjóruarinnar rnönn-
um, Gengi okkar hefir verið fjötrað
viö pundið án tillits til allra ástæðna
— deilan um hvort króruna eigi að
fella eða eltki liggur raunverulega
ekki lengur fyrir, heldur hve mikið
eigi að fella hana. Ósamræmi arðs og
tilkostnaðar við atvinnuvegina þving-
ar til lækkunar, til þess að forða
hruni atvinnulffsins og þess ber að
gæta, aö því lengur sem beöið er
þvl óviðráöanlegri veröur skriðan
þegar tfminn er fullkomnaður.
Aö síðustu vil ég segja það, end-
aði Jón Pálmason, að það er brýn
þörf að allir athugi niður í kjölinn
hvort þeir telji stjórn síðustu ára
' heillavænlega — þeir sem því trúa
styðja auðvitað núv. stjórnarstefnu
framvegis,'en öllum þeim, sem ekki
hneigjast til fylgis við núv. vald-
hafa ber skylda til þess aö berjast
gegn þeim af alefii.
lireppstjóri í Fjósatungu og fyrver-
andi alþm. S. ÍPingeyinga, andaðist
á Landsspítalanum aðfaranótt mið-
vikudags.
Ingólfur var fæddur 6. nóv. 1874
að Haga í Gnúpverjahreppi í Árnes-
sýslu. Foreldrar hans voru Björn
Guðmundsson frá Fagranesi í Aðal-
dal og lngibjörg Jónsdóttir, bónda á
Fornastöðum í Fjnóskadal. — Gekk
hann í Möðruvallaskóla og útskrifaðist
þaðan 1892, Síðan var hann við
verjdunarstörf, kennslu og ýms önn-
ur störf, þar til hann varð sýslu-
skrifari á skrifstotu Eyjafjarðarsýslu
og Akureyrarlcaupstaðar, á árunum
1901 — 1906. Á þeim tírna var hann
oft settur sýslumaður og mun Ing-
ólfur hafa notið hins bezta trausts
hjá yfjrboðurum sínum, enda var
hin prýðilegasta regla og frágangur
á öllu, setn hann lét frá sér fara.
lngólfur gerðtst bóndi í Fjósa-
tungu í Fnjóskadal árið 1905 og bjó
þar til dauðadags. liann var kvænt-
ur Guðbjörgu Guðmundsdóttur,
Davíðssonar bónda í Fjósatungu, og
lifir hún mann sinn. Var heimili
þeirra hið myndarlegasta; var þar
vel hýst og gott heim að koma,
enda töldu kunnugir ekki eftir sér
að leggja krók á leiðina til að heim-
sækja Ingólf, svo nokkur gestnauð
var hjá þeim hjónum, þótt heimilið
væn alllangt frá þjöðbraut. Sveitar-.
menn áttu líka möig erindi þangað
heim, því Ingólfur var í mörgum
málum mjög í fyrirsvari fyrir þá og
hreppstjóri þeirra allt síðan árið
1907, — Alþingismaður sýslunnar
varð Ingólfur eftir lát Péturs á
Gautlöndum árið 1922 og sat á þingi
til 1934. Segja kunnugir aö Ing-
ólfur hafi unnið vel á þingi, þótt
ekki væri hann í þeirra hópi, sem
mest gengu fram fyrir fylkingar. —
Haíði hann einnig mikið traust sam
flokksmanna sinna, Fratnsóknar-
tnanna, og var nú síðast, skömmu
áður en hann dó, kosinn form.
Landsbankanefndar. SÍS kaus Ing-
ólf fyrir formann sinn árið 1925 og
var hann það æ síðan, en hann var
síðan 1906 kaupíélagsstjóri Kaup-
íélags Svalbarðseyrar og alla tið
hinn einlægasti lylgismaður samvinnu-
stefnuntiar.
Við fráfall lngólís er eftirlifandi
konu hans og börnum mikill harm
ur kveðinn, og Fnjóskdælir' munu
einnig telja sig hafa mikils rnist,
þar sem hann var.
Ályktun af fundi S.l.F.
Aukafundur SÍF kom saman 3.
þ.m. Voru þar mættir tnargir fisk-
eigendur og fulltrúar fyrir þá. —
Haraldi Guðmundssyni [var boöið á
fundinn. Bar hann upp ályktun um
að SÍF og Fiskimálanefnd Héðins —
>þessar tvær nauðsynlegu stofnanir*
eins og hann oröaði það — skyldu
koma á nánari" samvinnu með sér
og væri þtð böl, hve sú samvinna
hefði verið treg. E’essi tillaga var
kolfeld. Síðan bar Sigurður Krist-
jánsson fram ályktun þess efnis, að
fundurinn teldi eðlilegt að SIF sœi
um 'sölu á öllum fiski félagsmanna
í hvaða ástandi sem hann væri,
með því að í stjórn þessa féLags
væru þeir menn, sem hefðu almennt
traust útflytjenda og beztu reynslu
í þessumZmálum. — • Þessi ályktun
S. Kr. var samþykkt jneð yfirgnæf-
andi meirihluta allra 'atkvæða.
Sigurkr Jónasson
seldi ekki einn ugga
a! Steady-farminuin
l-lrottaskapur Fiskimálanefndar
Héðins Valdimarssonar, ^hefir nú
orðið til þess, að farminn úr Steady
hefir orðið að selja við miklu 'lægra
verði en Sölusamlagið gat selt hann
hefði það fengið að ráða,
Umboðsínaður SIF hefir nú
selt farminn fyrir 4V2 centpund-
ið en ef SIF hefði fengið að
selja hann í öndyerðu, þíhefði
verðið orðið 772 cent "pundið.
Sigurður Jónasson hefir ekkert
getað aðhaíst — en tapið vegna
afskipta þeirra Héðins, nemur tugum
þú-mndum króna, auk þess hnekkis
sem viðskiptaálit |,'okkar í Ameríku
hefir beðið af allri framkomu stjórn-
arvaldunna hér í þessu máli.
Það niá Mast við veikiimi
hlngað.
Milliskyrtur
drg. frá kr. 1,30.
Milliskyrtur
karlm. frá kr. 2,75
Málaraföt, hvít
Rúmteppi hv. og misl.
Borðhandklæði
Borðlök
Sundbolir
Sundbuxur
Sundheítur.
BraunS'Verslun.
Páll Sigurgeirsson.
Á fi.-nmtuJag kom í útvarpi yfir-
lýsing frá landlækni um að sótt-
varnir gegn mislingum syðra yrðu
ekki viðhafðar fremur en það, sem
einstðk heimili af sjálfsdáðum
kynnu að vilja verja sig.
ísl. átti tal við Árna Guðmundsson
settan héraöslæknl og sagði hann
að ekki niundi lagt út í að hefta
samgöngur við bæinn hér vegna
] veikiimar. Uann sagði að ástæður
hér væru góðar þar sem niislinga-
faraldur hefði gengið yfir fyrir
ekki alllöngu. Tilfelli eru ekki mjög
mörg í Reykjavík samt er senni-
legra eða tná a. m. k. búast við,
að veikin berist hingað, sagði
héraðslæknirinn ennfremur.
NYJA-BIO «11111
Annan í páskum kl. 5 og 9:
Pabbi okkar er
piparsveinn.
Sænsk tal- og hljómmynd í 10
þáttum. Aðalhlutverkin leika:
Olaf Winnerstrand, Birgit
Fengroth, Aase Clausen
(fegurðardrotningin danska)
og Bullen Berglund (bezti
gamanleikari Svía).
Petta er talin ein skemmíileg-
asta gamanmynd, sem Svíar
hafa tekið síðan »Við sem
vinnum eldhússtörfin*, Hún
gerist á sænsku herrasetri, en
þar býr Kristian Örnklo greifi,
tyrv. hermálaráðunautur við
ýmsar sendisveitir Svía. Hann
er ógiftur en þó kemur í Ijós
að hann er enginn viðvaning-
ur í ástatnálum, heldur á hann
eigi færri en 4 börn víðsvegar,
þar sem hann hefir verið.
Sunnudaginn kl. 5.
Alþýðusýning! Niðursett verð!
Haustæfingar.
LITLI og STÓRl
í herþjonustu.
iUi’, nðiinaiidguin.
| | tiún 53dU414d — Fri/.
Kirkjan. — Á Páskadag kl. 11 f.h. á
Akureyri. — í Glerárþörpi kl. 2. Á ann-
an I páskurn kl. 2 á Akureyri.
Kvenfélagiö „Voröld“ heldur dans-
skeiniiitun a Muakaþverá annan páska-
dag kl. 9 e. h. Gúö inúsik. Aógangur
1 kr. þar innifalið kaffi. Agóðinn rennur
til Kveunaskólans á LaugalanJi.
Fátækrafuiltrúi hefir verió kosinn
Sveinn Bjarnason. U.nsækjendur auk
hans voru frú Elisabet Friðriksdóttir
og Jakob Árnason. Fékk Jakob 2 atkv.
enn Sveinu 6 atkv. Auóir seólar voru 2.
úr Ffljóskadal hafa tveir bæudur rekið
fé inn á Svalbarðsströnd. Sagt er að
inenn séu almennt tæpir i þeirn sveit ef
ekki verður áframhaldandi bati.
Skákliiflfl Norðlendiflja hófsthér i bæn-
uin 8 þ. m. Keppendur I 1. fl. eru 8 og
í 2. flokki 7. ( fyrsta flokki hafa skák-
irnar farið þannig: Guðrn. Guðlaugss. vaun
Uiinstein Stefánsson og Haukur Suorra-
son vann Jóa lugiinarsson. Gústaf A.
Ágústsson vann Guðbjart Vigtússou og
Viglundur Moller gerði jatntefli við
Pórir Guðjónsson. 2. u.nferö; Gústaf v.
Viglund, Hiukur v. Guó.nund, Jón v.
Póri. Biðskák inilli Guðójarts og Uunst.
3. Uíiiferð. Guðm, v. Þóri, jón v. Víglund,
jafntefii milli Hauks og Guðbjarts, og
Gústafs og Unnsteins. — 2. flokkur 1.
uinferð: Július Bogason vauu Vernharð
Sveinsson, Ragnar Skjóldal vann Arnlj.
Ólaf sson. jafnttífli inilli Aðolfs Ingimars-
sonar og Jóhanns Möller. — 2. umferð:
Július v. Ragnar. Jóliann v. Arnljót,
Óiafur Einsson v. Vernharð. 3. umferð:
Júlíus v. Ólaf, Jóhann v. Ragnar, Aðolf
vanu Vernhfiarð. i. flokkur 4. uinferð:
Gústaf v. Jón higiinarsson, Guðbjartur
v Þóri, Guðinundur og Víglundur jafn-
tefli. Jafntefli varð inilli Hauks og Unn-
steins. 2. flokkur 4. umferð: Júliús v.
Jóhann, Arnlj. v. Vernharð, Aðoli vann
Ólaf. Næsta umferð byrjar kl. 8 i kvöld.
Skák fer fram i Skjaldborg.
V 0 R Ð U R
— félag ungra Sjálfstæðismanna —
Fundur verður haldinn fimtudaginnló.
þ. m. kl. 8,30 e h. Fundarstaður og
dagskrá tilkynt síðar með fundarboði.