Íslendingur


Íslendingur - 01.10.1947, Blaðsíða 6

Íslendingur - 01.10.1947, Blaðsíða 6
6 ÍSLENDINGUR Miðvikudaginn 1. október 1947 Norðlenzkir prestar og kenn^ arar skora á þjúðina að sýna þegnskap og túrnarlund Víta harðlega, að ný stjórnarskrá hefir ekki verið samin. FIMMTI ÁRSFUNDUR norðlenzkra presta og kennara var hald- imn á Akureyri dagana 20. og 21. september s. I. Á fundinum mættu 9 prestar og 19 kennarar og 7 fundarmenn aðrir, eða alls 35 manns. Fundur þessi hafði verið und- irbúinn af þingeyskum prestum og kennurum, en formaður und irbúningsnefndar var sr. Björn O. Björnsson, Hálsi. Forseti fundai'ins var Friðrik J. Rafn- ar, vígslubiskup, en auk hans voru fundarstjórar: séra Þor- varður Þormar og Hannes J. Magnússon. Ritarar voru Egill Þorláksson og Eiríkur Sigurðs- son. Aðalumræðuefni fundarins var þegnhollusta. Framsögu- erindi fluttu Þorsteinn M. Jóns- son og séra Björn O. Björnsson. Miklar umræður urðu um þetta mál, svo og nokkur önnur mál, sem rædd voru. Á fundinum flutti Jón H. Þorbergsson erindi um heimilisguðrækni, en séra Pétur Sigurgeirsson sýndi kvik- mynd úr Islendingabyggðum í Ameríku, og flutti stutt erindi um kristilega æskulýðsstarf- semi. Fundarmenn hlýddu á messu í Akureyrarkirkju síðari fundardaginn, þar sem séra Sig- urður Guðmundsson, Grenjaðar stað prédikaði, en séra Ingólfur Þorvaldsson þjónaði fyrir altari. Pétur Sigurðsson ritstjóri úr Reykjavík mætti á fundinum. I undirbúningsnefnd fyrir næsta fund voru kosnir: Séra Friðrik A. Friðriksson, Húsavík, séra Þorvarður Sigurðsson, Vatns- enda og Eiríkur Sigurðsson, kennari, Akureyri. Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á fundinum: 1. Fundurinn telur nauðsyn, að prestum og kennurum gefist sem tíðast kostúr utanferða sér til aukins náms og þroska, slík- ur vandi, sem þeim er fenginn með forystunni í trúar- og menn ingarmálum alþjóðar. 2. Um leið og fundur norð- ienzkra presta og kennara þakk ar dönskum lýðháskólastjórum velvild og skilning í handrita- málinu, leggur hann áherzlu á, að einskis verði látið ófrestað til bráðrar endurheimtar fornra íslenzkra skjala og handrita új erlendum söfnum. 3. Fundurinn vill vekja at- hygli einstaklinga og félaga í sveit og bæ á nauðsyn meiri fág- unar og menningar í skemmt- unar- og samkvæmislífi þjóðar- innar og vill í því sambandi skora á æskulýð landsins að beita sér af alefli fyrir útrým- ingu áfengis og tóbaks á sam- komum sínum.. Jafnframt vill fundurinn taka í þann streng, að skemmtisamkomum sé lokið ekki löngu eftir miðnætti. 4. Fundur presta og kennara norðanlands vottar skólameist- ara Sigurði Guðmundssyni virð- ingu og þökk, er hann nú lætur af stjórn Menntaskólans á Ak- ureyri, og telur mikla giftu hafa fylgt forystu hans. 5. Fundurinn skorar á fræðslu málastjórn landsins að beita sér fyrir því, að bönnuð verði með lögum öll pólitísk æsku- líðsfélög meðal ungmenna innan 18 ára aldurs. 6. Fundurinn lítur svo á, að margt af því, sem miður hefur farið og fer í löggjöf vorri og stjórnarfari eigi rætur að rekja til óviðunandi stjórnarskrár, er vér búum nú við. Því átelur hann það harðlega, að ekki skuli efnt það heit, að ný og betri stjórnarskrá sé samin og lögð fyrir þjóðina til umræðu og ályktunar. Telur hann heppileg- ustu lausn þessa máls, að kall- að sé saman sérstakt stjórnlaga þing, er taki stjórnarskrármál- ið til meðferðar og afgreiðslu í frumvarpsformi. Alþingi ákveði íjölda þingfulltrúa og séu þeir kosnir af bæjar- og sýslufélög- um. 7. Fundurinn telur þannig komið högum vorum, að óvenju lega mörg og mikil vandamál fjárhags-, stjórnarfars-, og sið- ferðislegs eðlis steðji nú að, og að það sé þjóðinni lífsnauðsyn að sameina nú alla krafta sína til sóknar og varnar í barátt- unni fyrir sjálfstæði sínu og menningu. Lítur fundurinn svo á, að hvergi myndi betri skilyrði til að sameina þjóðina til alvarlegr ar íhugunar og átaka en á hin- um fornhelga þingstað hennar og því sé almennur Þingvalla- fundur æskilegur þegar á næsta sumri. , 8. Fundurinn skorar á alla presta og kennara í landinu að beita sér gegn drykkjuskapar- tízkunni, og fyrst og fremst með því að neyta sjálfir ekki áfengra drykkja. 9. Með því að sjaldan eða aldrei mun hafa verið meiri þörf á sterkum kristilegum á- hrifum á æskuna i landinu en nú, skorar fundurinn á alla presta og kennara landsins að taka upp öflugt samstarf um kristilegt æskulýðsstarf á veg- um þjóðkirkjunnar. 10. Fundurinn lýsir yfir trú sinni á ómetanlegt gildi þess fyrr einstakling og þjóðlíf, að heimilisguðrækni verði endur- vakin í landinu. Sömule'ðis að guðræknisvenjur verði teknar upp í sem flestum skólum. 11. Fundurinn vill hvetja hvern þegn og hverja stétt til þess að leggja fórn frárn til við- náms yfirvofandi hættu í fjár- hags- og gjaldeyrismálum þjóð- arinnar, og láta ekki skammsýn eiginhagsmunasjónarmið sundra nauðsynlegum samtök- um. Einnig skorar fundurinn á stjórnarvöldin að hefja sókn gegn hverskonar óreiðu og sukki í viðskipta- og fjármál- um. 12. Fundurinn telur það æski- legt, að yfirstjórn fræðslumála á Islandi, vinni að því, að árlega verði tekið upp á fjárlög ríkis- ins fjárupphæð, sem varið sé til kristilegrar æskulýðsstarfsemi í Jandinu. Laukur nýr — þiirrkaður. VÖRUHÚSIÐh.f Daoskt kex Blandað kex Marie — Heilhveiti — Iskex. Verzl. Eyjafjörður liL Kaupum Sultuglös og flöskur næstu daga. Ö1 og Gosdrykkir h. f. Sími 337. Ráðskonu vantar á fámennt heimili hér í bænum. — A. v. á. 4ra kóra Píanóharmoiika til sölu. Stefán Halldórsson, Ægisgötu 18. Svíþjóð: | 1 Svíþjóð hefir urn nokkurt ; skeið se'tið á rökstólum nefnd, ! skipuð bæði körlum og konum, ! sem hefir haft það hlutverk ; með höndum að gera allskonar ■ athuganir varðandi karlkyn'.ð. ' Fregnir frá Stokkhólmi herma, að nefndin hafi komizt að þeirri n'ðurstöðu, að sænskir eigin- menn séu ákaflega lélegir elsk- hugar. Ekki er þess getið í hverju gallar þessir eru fólgn- ir. Japan: Það hefir vakið eftirtekt fréttamanna í Japan, að Hiros- hima og Nagasaki, borgirnar sem kjarnorkusprengjunum var varpað á, eru þær borgir í Jap- an, þar sem fólkið er vinveittast Bandaríkjámönnum. — Ibúum Hiroshima finnst sem sprengj- an hafi hreinsað þá af öllum stríðsglæpum og sú hugsun er rík hjá þeim, að borgin geti orð ið nokkurskonar Mekka friðar- unnandi pílagríma. Þegar sprengjunni var varpað á Hiroshima, voru íbúar borgar innar 250 þús. og 175 þús. lifðu af sprenginguna. Nú eru íbúar borgarinnar orðnir 210 þús., og næstum hver einasta kona ber barn á bakinu. 23 þús. hús haía verið reist í stað þeirra 60 þús., sem eyðilögðust. Það er eftir- tektarverðast við þessar frarn- kvæmdir, að 98% húsa þessara eru nokkurs konar „svarta markaðar“ hús, reist af fólkinu sjálfu, án þess að hirða nokkuð um skipulag eða reglur. Bandaríkin: Gallup-stofnunin birti fyrir skömmu heildarniðurstöður sín- ar um skoðanir og ástand banda rísku þjóðarinnar, byggðar á tíu ára reynslu skoðanakönnunar sinnar. Fara hér á eftir nokkur atriði úr skýrslu þessari: Sex af hverjum tíu karlmönn um vilja fremur dökkhærðar stúlkur en Ijóshærðar — og er það heppilegt, því að aðeins 8% af bandarískum stúlkum hafa eðlilega ljóst hár — en þeim finnst — þótt þeir beri auðvit- að ábyrgðina að nokkru leyti — að stúlkurnar kyssi og daðri of mikið áður en þær giftast. Kon- urnar telja meira virði, að eig- inmennirnir séu skapgóðir en tryggir, en vildu gjarnan, að þeir væru rómantískari. Þær vilja yfirleitt ekki eiga börn fyrr en á öðru hjúskaparári og vilja helzt eiga þrjú börn. Aðal- deiluefni bandarískra hjóna eru peningar, afbrýði og börnin. — Næstum englr foreldrar vilja, að synir þeirra verði stjórn- málamenn. Einn af hverjum þremur Bandaríkjaborgurum kvartar ' um fótaveiki. Tveir af hverjum þremur fullorðnum mönnum ganga með gleraugu. Einn af hverjum fimm þjáist af heyrn- ardeyfð. Tveir af hverjum tíu geta ekki lært að blístra. Einn af hverjum tíu er örfhentur, og minna en þriðjungur bifreiða- ! stjóra getur munað númerið á ökuskírteini sínu. Einn af hverj ; mn þremur á erfitt með að ! vakna á morgnana, en aðeins einn af hverjum fimm á erfitt ! með að sofna á kvöldin. Fólk, sem lifir venjulegu líf: fer að | hátta klukkan tíu á kvöldin, ’ fer á fætur klukkan hálf sjö sex ! daga í viku, vakir til kl. 11 á ; laugardagskvöld og sefur til kl. i 8 á sunnudagsmorgna. i Sex af hverjum tíu Banda- i ríkjamanna neyta áfengis, og j sama tala reykir. Helmingur j fólksins álítur, að Hitler sé enn j lifandi. Tveir af hverjum þrem- ; ur telja Amraham Lincoln meiri i mann en George Washington. Þeir fimm núlifandi menn, sem Bandaríkamenn dá mest, eru: Douglas Mac Arthur, yfirhers- höfðingi, Eisenhower, yfirhers- höfðingi, Winston Churchill, Truman, forseti og George Mars hall, utanríkisráðherra. 98 af hundraði Bandaríkja- þjóðarinnar trúir á Guð og 76 af hundraði á líf eftir dauðann. Aðeins fjórir af hundraði eru sannfærð'r um, að þeir séu ó- hamingjusamir, 57 af hundraði telja sig sæmilega hamingju- sama og 38 af hundraði telja sig mjög hamingjusama. Það ler þó hrollur um einn af hverj- um fimm, þegar svartur köttur iúeypur fyrir framan hann. IEWES FORDÆMÍR ÞJÓÐNÝTINGU Hinn kunni leiðtogi banda- rískra kolanáinumanna, john Le- wis, hefir gert kolanámuverkfall- ið í Englandi að umtalsefni. Seg- ir hann óánægju verkamanna stafa af því, að þeir hafi búizt við betri kjörum eftir þjóðnýtinguna, en raunin hafi orðið lengri vinnu- tími og engar kjarabætur. Lewis segir, að þjóðnýting sé alröng stjórnarstefna, og afskipti ríkis- valdsins af atvinnurekstri verði til þess eins að skerða réttindi verkamanna til frjálsra samninga um kaup og kjör. Lewis hefir líka jafnan, þrátt fyrir hörð átök við atvinnurekendur í Bandaríkjun- um, lýst sig eindregið andvígan allri þjóðnýtingu i landinu. Það er annað viðhorf en hjá þeim sósíalistisku verkalýðsforingjum, sem telja það mesta bjargráðið fyrir verkalýðinn, að ríkið vasist í öllum atvinnurekstri undir eftir- Iili pólitískra nefnda, sem ofllega hafa enga sérþekkingu á þeim mál um, sem þær eiga að stjórna.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.