Íslendingur


Íslendingur - 09.01.1952, Blaðsíða 8

Íslendingur - 09.01.1952, Blaðsíða 8
Alessa. — N. k. sunnudag kl. 2 e.h. í Akureyrarkirkju. — (P. S.) I.O.O.F. — 1331118% — O. I.O.O.F. — Rb.st. 2 — Fundi frestað. Simnudazaskóli A kureyrarkirkju er á sunnudag- inn kemur kl. 10,30 f. h. — 5—6 ára hörn í kapell- unni. 7—13 ára börn í kirkjunni. — Verðlaunaspjöldin fyrir árið 1951 af- hent. — Æskulýðsblaðið kemur út. — Æsktdýðsjélag Akureyr- arkirkju. — Elzta deild, fundur kl. 9 e.h. á sunnu- daginn í kapellunni. — Heiðasmárasveitin. Islendingur er nú síðbúnari en ætlað var vegna rafmagnsskömmtunarinnar. Auglýsingaverð bæjarblaðanna hækk ar frá 1. janúar s. 1. í 8 kr. dálksenti- metrinn vegna mikillar hækkunar á pappírsverði og prentunarkostnaði á s. 1. ári. Dánardœgur. — Á Þorláksdag lézt að heimili sínu Strandgötu 17 liér í bæ, frú Guðrún Magnúsdóttir, ekkja Bjarna Einarssonar skipasmíðameist- ara, áttræð að aldri. Þriðja jóladag lézt að heimili sínu hér í bæ Stefán Sig. Stefánsson járn- smiður, aðeins 36 ára gamall, eftir langa og þunga vanheilsu. Hann lætur eftir sig konu og barn. Þann 4. janúar lézt hér í bæ Aðal- heiður Jóhannsdóttir fyrrum húsfreyja að Dæli í Fnjórkadal, 81 árs að aldri. Þann 5. janúar lézt að heimili sínu einn af elztu borgurum bæjarins Valdl- mar Ilalldórsson, 86 ára að aldri. Hafði liann legið rúmfastur mörg ár. Jarðarför Stefáns Sigurðar Stef- ánssonar, járnsmiðs, scm andað- ist 27. desember fór fram f gær að viðstöddu fjölmenni. — Séra Jóhann Hlíðar flutti bæn á heim- ili hins látna. Séra Friðrik J. Rafnar vígslubiskup flutti ræðu í kirkjunni og jarðsöng. Iðnaðar- menn báru kistuna í kirkjuna. Oddfellowar úr kirkju, en Þórs- félagar báru hana síðasta spölinn að gröf. Karlakórinn Geysir ann- aðist sönginn. Akureyringar! Munið eftir fuglun- um, þegar þeir leita til byggða á náðir ykkar. Hjónabönd. Þann 25. des. s.l. voru gefin saman í hjónaband: Ungfrú Að- alheiður Ágústa Axelsdóttir og Bryn- leifur Konráð H. Jóhannesson, bíla- lakkari. Heimili þeirra er að Hafnarstr. 37. Akureyri. — 26. des.: Ungfrú Jó- hanna Hermannsdóttir og Ilannes Björn Kristinsson, efnafræðingur. Heimili þeirra er að Hofteigi 14, Rvík. — 30. des.: Ungfrú Kolbrún Magnea Kristjánsdóttir og Þorvaldur Nikulás- son, símam. Heimili þeirra er að Grænumýri 11, Ak. — 1. janúar: Ung- frú Guðný Aðalsteinsdóttir og Guð- björn Péturssori, starfsm. á Gefjun. Heimili þeirra er að Oddeyrargötu 12, Ak. — Guðrún Lovísa Stefánsdóttir, Akureyri, og Ásgeir Olafsson, Grænu- mýri, Seltjarnarnesi. Gift 24. des. — Anna Kristjánrdóttir, Akureyri. og Bjarni Guðjón Bjarnason, matsveinn, Reykjavík. Gift 25. des. — Guðrún 4rnína Guðjónsdóttir og Guðmundur Reynis Antonsson, vélstjóri, Akureyri. Annáll íslendings Desember 1951. Fjárlög fyrir árið 1952 afgreidd á Uþingi. Tekjur á rekstraryfirliti 356,7 nillj. kr. en gjöld 332,2 millj. kr. Bærinn að Fossi á Síðu brennur til grunna. , Maður úr Reykjavík, Karl S. Daní- Óvenju rólejt i bsnum ó jalwMd. Lögreglan hefir skýrt svo frá, að óvenju rólegt hafi verið í bænum á gamlaárskvöld. Fólk var í glöðu og góðu skapi yfirleitt, og hafði þó hóf á gleðinni eins og vera ber. Eitthvað bar þó unga fólkið við að draga rusl út á göt- ur miðbæjarins, en ekki var það nema í smáum stíl. Einnig bar nokkuð á því að fullorðið fólk færi með börn sín inn í miðbæ- inn, þegar klukkan var á 12. tím- anum, og telur lögreglan, að slikt hefði getað valdið slysi, og þar að auki með öllu óþarft, því að flugeldar eru hvað fegurstir, ef þeir eru séðir í nokkurri fjar- lægð. Mjög miklu af sprengjum og flugeldum var varpað um bæinn jnt 12 leytið. Lögreglan varð vör /ið sprengjur, sem stálpaðir drengir voru með. Voru þær svo sterkar, að hæglega hefðu þær getað valdið dauðaslysi. Leituðu drengirnir á að koma sprengjun- um undir bíla, og einni var kast- að á glugga í miðbænum og fór hún inn í herbergi, en til allrar lukku var enginn þar inni. Þrátt fyrir þetta var hegðun bæjarbúa mun betri en árið áður. En betur má, ef duga skal. Sú ómenning verður með öllu að verða útlæg ger úr bænum, að bæjarbúar fagni komu hins nýja árs með fyrirhyggj ulausum að- gerðum, sem valdið geta dauða eða limlestingu. Reykvíkingar hafa mjög mikið dregið úr þessari ómenningu hjá sér með því að efna til brennu á fleiri stöðum í borginni. Akur- eyraibær ætti að athuga, hvort ekki væri rétt að efna til einnar stórrar brennu og flugeldasýning- ar næsta gamlaárskvöld, og væri þessu stjórnað af þeim, sem vel kunna með að fara. Það verður að komast inn í meðvitund bæj- arbúa, að gera allt, sem unnt er til varnar því, að börn þeirra og unglingar bæjarins hafi með höndum sprengjur, sem þeir kunna ekki með að fara og geta ekki borið ábyrgð á. Yfirleitt var drykkjuskapur á almannafæri um jólin og nýárið minni en oftast áður, enda þótt bjartviðri og stillur freistuðu til útivistar, og sömu sögu er að frétta úr höfuðstaðnum. Þar kvað áramótafögnuður hafa verið með meiri menningarbrag en undan- farin ár. „ Lítil atvinna á Húsavík. Húsavik á gamlaársdag. Það sem af er þessum vetri, má íðarfar yfirleitt teljast gott. Þó hefir verið stormasamt, stöðugar austansteytur og ekki gefið á sjó sem neinu nemur af þeim sökum. Atvinna er hér mjög lltil bæði hjá verkamönnum og iðnaðar- nönnum, og ekki annað séð en jvo verði í vetur. Fiskiðjuverið starfar nú ekki sökum skorts á hráefninu. Reynt 'iefir verið að fá togara til að eggja hér upp, en ekki borið á- rangur ennþá. Fengist hann mundi mikið lagast um atvinnu hér. Eigi færri en fimmtíu nanns geta unnið við Frystihúsið ig nokkrir í Beinaverksmiðjunni. Vonast Húsvíkingar til að bæjar- stjórnin lóti einkis ófreistað til að koma þessu í gang. Þrír bátar munu fara suður á ertíð að þessu sinni, þeir Hag- jarður, Smári og Pétur Jónsson. —hallur. Sift 30. des. — Jónína Guðrún Jó- íannsdóttir og Jóhann Gunnar Ragú- ls Ingimundarson, Akureyri. Gift 1. Janúar. — 27. desember voru geíin ,aman í hjónaband í Khöfn ungfrú 'lelga Jónasdóttir (Sveinssonar lækn- 's) og stud. polyt. Jóhann Indriðason (Helgasonar rafvirkjameistara), Akur- ;yri. Heimili ungu hjónanna er Nor- masvej 27. Valby. — Á jóladag voru gefin samán í hjónaband Bryndís Bærinn í Málmcy brenmir. Björgun fólhsins til lands tókst slysalaost. þrdtt fyrir illviðri. Á Þorláksmessukvöld fyrir jóP kom eldur upp í íbúðarhúsinu í Málmey á Skagafirði, og brann það til ösku á örskammri stund. Ekki tókst fólkinu að bjarga með sér nema 2—3 sængum og nokkr- um utanhafnarfötum úr útidyra- skúr, og var það margt léttklætt. Oðrum bóndanum tókst að kalla á hjálp til Siglufjarðar um talstöð ina, áður en hann yfirgaf hið brennandi hús. I Málmey bjuggu tveir bænd- ur ásamt konum sínum og börn- um, sem öll voru ung. Átti annar 6 en hinn 4. Auk þess höfðu þeir vinnumann. Var brotist með fólk- hjá Flugfélagi íslands. — Á gamlárs- dag opinberuðu .trúlofun sína á Húsa- vík ungfrú Unnur Jónsdóttir og hr. Helgi Vigfússon og ungfrú Hafdís Jóhannsdóttir og hr. Gísli Vigfússon. Herrarnir eru hræður. — Ungfrú. 3igna Hallsdóttir og Gunnlaugur B. Sveinsson. —- Ungfrú Hanna Hofsdal og Axel Kvaran. — Ragnhildur Jóns- dóttir frá Gautlöndum, Mývatnssveit og Jón Sigurgeirsson, lögregluþjónn, 'ið í fjárhús, er stóðu kippkorn frá húsinu, en veðurhæð var mikil með talsverðu frosti og snjókomu. Var vistin köld í fjárhúshlöðunni um nóttina, og kom fáum blundur á brá. Fyrir birtingu á aðfanga- dagsmorgun kom slysavarnasveit frá Siglufirði undir forustu Sveins Ásmundssonar á v. b. Skildi til eyjarinnar og heppnað- ist að koma fólkinu á litlurn ára- bát út í Skjöld, þrátt fyrir brim og illviðri. Var haldið með fólkið til Hofsóss, þar sem önnur fjöl- skyldan varð eftir en hin flaug til Reykjavíkur. Engum varð meint af kuldanum og hrakningnum. Annar bóndinn varð eftir í eynni ásamt vinnumanninum til að hirða um búpeninginn. Bændurn- ir hafa báðir hug á að halda á- fram búskap í eynni, þótt svona tækist -til og þeir yrðu fyrir til- finnanlegu eignatjóni. Vitamála- skrifstofan, sem á jörðina, hefir látið koma þangað iveruskúr og nýrri talstöð, en annar bændanna var þarna jafnframt vitavörður. Stefánsdóttir, Ilúsavík, og Jón Bene- diktsson, múrari frá Akureyri. Hjónaejni: Á jóladag opinberuðu trúlofun sína á Húsavík ungfrú Jón.a Guðjónsdóttir og Björn S. Líndal, og ungfrú Ingibjörg Áskelsdóttir og Kárí Arnórsson. — Á gamlaársdag opinber- uðu trúlofun sína ungfrú Jórunn Krislinsdóttir, hárgreiðslumær og Að- alhjörn Kristhjarnarson, flugmuður Akureyri. — Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Hildur Jóns- dóttir, Ystafelli og Sigurbjörn Sörens- son, iðnnemi, Akureyri. — Á jóladag opinberuðu trúlofun sína Júdith Sveinsdóttir og Bergsteinn Garðars- son, Glerárþorpi. — Einnig Þórdís Gísladóttir og Andrés Bergsson, Gler- árþorpi. AT H U GIÐ ! Kaupendur íslendings, nær og fjær, eru beðnir að til- kynna afgreiðslunni, ef þeir fá ekki blaðið með skilum. Afgreiðslutími 10—12 og 4—6 daglega, nema laugar- daga 10—12 . Sími 1354 eða 1748. elsson prentari, verður hráðkvaddur á þjóðveginum í Aðaldal. Jóhann Eyjólfsson frá Sveinatungu, fyrrv. alþingismaður, læzt á Landspítal anum í Reykjavík nál. níræður að aldri. IJáseta af togaranum Júlí, Martein Jónsson, tekur út, er stórsjór ríður yfir. Tókst ekki að ná Iionum. 60 svín og um 300 hænsni brenna inni að Bjargi á Seltjarnarnesi. Háseti á togaranum Pétri Halldórs- syni, Magnús Þórðarson, fellur fyrir borð og drukknar. Isfisksala íslenzku togaranna á árinu nam 103.6 millj. króna. Samkv. opinberum upplýsingum lét- ust 77 Islendingar af slysförum á ár- inu. Þar af létust 22 í flugslysum, 11 í umferðarslysum, 11 féllu útbyrðis vegna brotsjóa, 15 drukknuðu við 'and og 3 með skipum sem fórust. K. F. U. M. stofnað á Akureyri Stofnfundur kristilegs félags ungra manna á Akureyri var haldinn laugardaginn 1. des. sl. Framhaldsstofnfundur var hald- inn næsta dag. Stofnendur voru 45, 20 í eldri deildunum og 25 í yngri deild. í stjórn voru kjörn- ir: Björgvin Jörgensson formað- ur, Reynir Valdimarsson ritari og Anton Kristjánsson gjaldkeri. — Framkvæmdastjóri félagsins er Björgvin Jörgensson. Fundir eru haldnir hvern sunnudag í kristniboðshúsinu Zíoti; yngsta deild (Y.D.) kl. 1 og eldri deildir kl. 2. I yngstu deild eru drengir á aldrinum 9— 13 ára, í unglingadeild (U.D.) piltar frá 13—17 ára og í aðal- deild (A.D.) ungir menn frá 17 ára aldri. Fró bœjarstjórn Á bæjarstjórnarfundi 3. jan. var til umræðu erindi frá Konráð Vilhjálmssyni, þar sem hann fer fram á styrk til að rekja ættar- skrár Akureyringa. Bæjarráð lagði til að Konráði yrði veittur kr. 1500.00, enda verði eintak af ættarskrá þessari eign Amtbókasafnsins á Akureyri. # Á bæjarráðsfundi 28. des. var samþykkt að auglýsa eftir verk- fræðingi, er yrði slökkviliðsstjóri og annaðist einnig lóðaskráningu í bænum. * Þá hefir og orðið sú breyting á, að Vinnumiðlunarskrifstofa bæjarins var lögð niður um ára- mót. Fer skráning atvinnulausra því hér eftir fram á skrifstofu bæj arstjóra, en 5 manna nefnd hefir áfram vinnumiðlun bæjarins með höndutn.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.